Aðkoma Hauck & Aufhäuser sögð aðeins til málamynda

Í bréfi rann­sókn­ar­nefndar Alþingis um einka­væð­ing­una á Bún­að­ar­bank­anum segir að aðkoma þýsks banka að við­skipt­unum hafi verið ein­göngu til mála­mynda.

Aðkoma þýska bank­ans Hauck & Auf­häuser að kaupum á 45,8 pró­senta eign­ar­hlut rík­is­ins í Bún­að­ar­banka Íslands í árs­byrjun 2003 var í „reynd aðeins að nafni til“ að mati sér­stakrar rann­sókn­ar­nefndar Alþingis og voru kaupin fjár­mögnuð í gegnum aflands­fé­lag á vegum Kaup­þings. 

Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í dag, og vísað til bréfi rann­sókn­ar­nefndar Alþingis þar sem fyrr­nefnd við­skipti eru til umfjöll­unar.

„Samkvæmt gögnum sem nefndin hefur aflað sér verði ekki annað séð en „að fjár­fest­ing Hauck & Auf­häuser í gegnum Eglu hf. í, og síðar með sama hætti eign­ar­hald á, hlutum í Bún­að­ar­bank­anum hafi […] aðeins verið til mála­mynda og tíma­bundið“, auk þess sem þýska bank­anum hafi verið „tryggt skað­leysi af þátt­töku sinni í þessum við­skiptum“. Þetta kemur fram í bréfi rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar frá því 13. mars síð­ast­lið­inn sem Frétta­blaðið hefur undir höndum. Í bréf­inu segir að gögn og upp­lýs­ingar nefnd­ar­innar „sýna að dag­ana áður en skrifað var undir kaup­samn­ing Eglu hf. og ann­arra lög­að­ila (það er hins svo­nefnda S-hóps) um kaup á hlut íslenska rík­is­ins í Bún­að­ar­bank­anum hf. 16. jan­úar 2003, stóð hópur manna að gerð tveggja samn­inga varð­andi hluti Hauck & Auf­häuser í Eglu hf. á milli ann­ars vegar Hauck & Auf­häuser og hins vegar aflands­fé­lags­ins Welling & Partners Limited, skráðu á Bresku-Jóm­frú­areyjum, sem Kaupþing hf. útveg­aði til að standa að samn­ingnum,“ segir í umfjöllun Frétta­blaðs­ins.

Segir í umfjöllun Frétta­blaðs­ins að þar hafi verið um að ræða svo­nefndan sölu­rétt­ar­samn­ing (e. Put Option Agreement) en hinn samn­ing­ur­inn varð­aði veð- og trygg­inga­ráð­staf­anir (e. Pledge and Security Agreement). Þeir sem stóðu að gerð þess­ara samn­inga, að því er kemur fram í bréfi nefnd­ar­innar, voru meðal ann­ars „nokkrir starfs­menn“ Kaup­þings á Íslandi og dótt­ur­fé­lags þess í Lúx­em­borg og auk þess starfs­menn Hauck & Auf­häuser, einkum þá Martin Zeil, þáver­andi for­stöðu­maður lög­fræði­deildar bank­ans.

Í bréf­inu, sem vísað er til í Frétta­blað­inu, segir að ekki verði séð „að íslenska ríkið eða aðrar stofn­anir þess hafi á nokkru stigi verið upp­lýst um gerð þess­ara samn­inga, efni þeirra og áhrif, sem og atvik varð­andi síð­ari fram­kvæmd þeirra.“

Kaupþing sam­ein­að­ist Bún­að­ar­banka þremur mán­uðum eftir söl­una á hlut rík­is­ins. Rúmum tveimur árum eftir að þýski bank­inn eign­að­ist hlut í Bún­að­ar­bank­anum í gegnum félagið Eglu var hann búinn að selja allan hlut­inn til ann­arra hlut­hafa innan S-hóps­ins en á meðal þeirra sem leiddu þann hóp var Ólafur Ólafsson fjár­festir.

Alþingi sam­þykkti í júní í fyrra þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um að aðkoma Hauck & Auf­häuser að kaupum S-hóps­ins á 45,8 pró­senta hlut rík­is­ins fyrir um 11,9 millj­arða yrði rann­sökuð af sér­stakri rann­sókn­ar­nefnd sem hefði víð­tækar heim­ildir til að kalla eftir upp­lýs­ingum. Sá sem fer með rann­sókn­ina er Kjartan Bjarni Björg­vins­son hér­aðs­dóm­ari en gert er ráð fyrir að skýrsla nefnd­ar­innar verði birt opin­ber­lega á mið­viku­dag­inn.

Í Frétta­blað­inu segir, að í bréfi rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar, sem var sent á ýmsa ein­stak­linga sem höfðu aðkomu að kaup­unum, að sam­kvæmt gögnum nefnd­ar­innar hafi þýski bank­inn „enga fjár­hags­lega áhættu tekið“ með þessum við­skiptum. „Fjár­hags­legir hags­munir bank­ans af þeim hafi tak­markast við þóknun sem samið var um sam­kvæmt samn­ing­unum en öll hagn­að­ar­von af umræddum hlutum í Eglu hf. þess í stað verið áskilin gagn­að­ila bank­ans að samn­ing­unum, það er fyrr­greindu aflands­félagi, Welling & Partners Limited.“

Nokkr­ir starfs­menn Kaup­þings á Íslandi og í Lúx­em­borg eru sagðir hafa staðið að fyrr­nefndum samn­ingn­um, sam­kvæmt frétt Frétta­blaðs­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár