Niðurstaða í Hauck & Aufhäuser-rannsókn væntanleg í lok mánaðar

Samkvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans er stefnt að því að birta nið­ur­stöður úr rann­sókn­inni 29. mars næst­kom­andi. Ólafur Ólafsson hefur látið setja upp vef þar sem hann ætlar að birta eigin fram­setn­ingu á sög­unni um söl­una á Bún­að­ar­bank­anum.

Búist er við því að rann­sókn á aðkomu þýska bank­ans Hauck & Auf­häuser á kaupum á hlut rík­is­ins í Bún­að­ar­bank­anum snemma árs 2003 ljúki á næst­unni. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans er stefnt að því að birta nið­ur­stöður rann­sókn­ar­innar 29. mars en sú dag­setn­ing hefur þó ekki verið að öllu leyti nið­ur­negld.

Alþingi sam­þykkti í júní 2016 þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um að aðkoma þýska einka­­bank­ans Hauck & Auf­häuser að kaupum S-hóps­ins á 45,8 pró­­sent hlut í Bún­­að­­ar­­bank­­anum í byrjun árs 2003 yrði rann­­sökuð af sér­­stakri rann­­sókn­­ar­­nefnd sem myndi hafa víð­tækar heim­ildir til að kalla eftir upp­­lýs­ing­­um. Rann­­sókn máls­ins átti að vera lokið fyrir árs­­lok sama ár og var tekið fram að einn maður myndi skipa rann­­sókn­­ar­­nefnd­ina.

Í byrjun júlí 2016 var Kjartan Bjarni Björg­vins­son, hér­aðs­dóm­ari við Hér­aðs­dóm Reykja­víkur, skip­aður til að fara með rann­sókn­ina. Kjartan Bjarni var um tíma aðstoð­ar­maður umboðs­manns Alþing­is, og vann hjá emb­ætt­inu frá árinu 2002 til 2009. Hann starf­aði síðar hjá EFTA-­dóm­stóln­um. Kjartan Bjarni var skip­aður í hér­aðs­dóm­ari í maí 2015.

Rann­­sóknin bein­ist sér­­stak­­lega að hlut þýska einka­­bank­ans Hauck & Auf­häuser að kaupum S-hóps­ins á Bún­­að­­ar­­bank­­anum í byrjun árs 2003. Ákveðið var að ráð­ast í hana eftir ábend­ingu Tryggva Gunn­­ar­s­­son­­ar, umboðs­­manns Alþing­is, sem send­i ­stjórn­­­skip­un­­ar- og eft­ir­lits­­nefnd bréf í júní­mán­uði 2016 þar sem hann lagði til að skipuð yrði rann­­sókn­­ar­­nefnd um mál­ið. Þetta eigi að gera vegna þess að Tryggvi hafi nýjar upp­­lýs­ingar sem byggja á ábend­ingum um hver raun­veru­­leg þátt­­taka þýska bank­ans var. Sam­­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans mun rann­­sóknin meðal ann­­ars snú­­ast um hvort Kaup­­þing, sem var sam­ein­aður Bún­­að­­ar­­bank­­anum skömmu eftir að söl­una á bank­an­um, hafi fjár­­­magnað Hauck & Auf­häuser.

Kjarn­inn fjall­aði ítar­lega um málið í frétta­skýr­ingu í lok maí 2016.

Vildu ekki gefa skýrslu

Rannsókn Kjartans Bjarna hefur þó ekki gengið snurðu­laust fyrir sig og fresta hefur þurfti skilum á nið­ur­stöðu. Þegar Kjartan Bjarni ætl­aði að kalla til ein­stak­linga til að gefa skýrslu í mál­inu reynd­ust þeir ein­stak­lingar ekki vilj­ugir til þess að gera slíkt að óbreyttu. Skýrslu­tök­unum átti að vera stýrt af dóm­ara við Hér­aðs­dóm Reykja­víkur, Ásmundi Helga­syni. Þrír ein­stak­lingar sem áttu að gefa skýrslu neit­uðu hins vegar að mæta nema að Ásmundur myndi víkja fyrst sæti sökum van­hæfis. Það van­hæfi var sagt lúta að því að hann væri dóm­ari við Hér­aðs­dóm Reykja­víkur líkt og Kjartan Bjarni. Hæsti­réttur hafn­aði þessum kröfum í lok nóv­em­ber 2016. Einn þeirra sem neit­aði að gefa skýrslu á þessum tíma var Ólaf­ur Ólafs­­son kaup­­sýslu­mað­ur, sem var eig­andi tíu pró­sent eign­ar­hlutar í Kaup­þingi þegar hann féll haustið 2008. Ólafur er líka fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður Eglu sem var hluti S-hóps­ins svo­kall­aða. Annar sem var kall­aður til skýrslu­töku var Guð­mundur Hjalta­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Eglu.

Menn­irnir töldu sér hins vegar ekki skylt að gefa skýrslu fyrir dómi og fóru fram á stað­fest­ingu dóm­stóla þess efnis. Lög­maður Ólafs og Guð­mund­ar, Gísli Guðni Hall, sendi til­kynn­ingu fyrir þeirra hönd þar sem því var haldið fram að allt í kringum rann­sókn­ar­ferlið væri „und­ar­legt, for­dæma­laust og byggt á órök­studdum dylgj­u­m.“ Hér­aðs­dómur úrskurð­aði skömmu fyrir jól 2016 að þeim yrði ekki gert að gefa skýrslu fyrir dómi en Hæsti­réttur snéri þeirri ákvörðun um miðjan jan­úar síð­ast­lið­inn og komst að þeirri nið­ur­stöðu ekki væri stoð fyrir því í ákvæðum laga að þeir gætu skor­ast með öllu undan því að gefa vitna­skýrslu fyrir dómi. Skýrslu­tökur fóru fram loks fram 30. jan­úar.

[links]Í kjöl­far þeirra var hægt að ljúka vinnu við rann­sókn­ina og nú stefnir í að nið­ur­staða hennar verði birt undir lok mars­mán­aðar.

Opnar síðu með eigin skýringum á söluferlinu

Daginn eftir að skýrslu­tökur fóru fram sendi almanna­tengsla­fyr­ir­tækið KOM, sem starfar fyrir Ólaf Ólafsson, frá sér til­kynn­ingu þar sem sagt var að engin ný gögn hefðu verið lögð fram við rann­sókn­ina. Þar var eft­ir­far­andi haft eftir Ólafi: „Ég hef ávallt verið reiðu­bú­inn að láta af hendi öll gögn sem snúa að mér og mínum félögum í þessu ferli sem átti sér stað fyrir nærri 15 árum. Þessi upp­á­koma fyrir hér­aðs­dómi í gær, þar sem mér eru sýndar gamlar blaða­úr­klippur, styrkir mig í þeirri trú að rann­sókn­ar­nefndin hafi verið sett á fót til að leysa póli­tískan ágrein­ing á Alþingi fyrir kosn­ingar um hvernig ætti að standa að rann­sókn á einka­væð­ingu bank­anna. Verra er þegar ein­stak­lingar eru dregnir inn í þann skolla­leik, þeir sviptir sjálf­sögðum mann­rétt­indum við rann­sókn máls­ins og gjörðir þeirra gerðar tor­tryggi­legar í augum almenn­ings. Ég frá­bið mér að vera þátt­tak­andi í slíku póli­tísku leik­riti.“

Í til­kynn­ing­unni kom einnig fram að Ólafur væri að láta vinna sam­an­tekt til opin­berrar birt­ingar þar sem farið yrði yfir sölu­ferli Bún­að­ar­bank­ans, frum­gögn birt og spurn­ingum svarað. Þessi sam­an­tekt mun birt­ast á vefnum solu­ferli.issem KOM er skráð fyrir. Almanna­tengsla­fyr­ir­tækið mun auk þess sjá um efnið sem birt­ist á vefnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

einkavæðing

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár