Ólafur verður að bera vitni í Hauck&Aufhäuser-rannsókn

Ólafur Ólafsson, Guð­mundur Hjalta­son og vænt­an­lega önnur vitni verða að mæta fyrir rann­sókn­ar­nefnd Alþingis um aðkomu þýska bank­ans Hauck&Auf­häuser að kaupum S-hóps­ins á hlut í Bún­að­ar­bank­anum. Þetta er úrskurður Hæsta­réttar Íslands í mál­inu.

Rann­­sókn­­ar­­nefnd­in var skipuð í sum­­ar eftir að Umboðs­maður Alþing­is, Tryggvi Gunn­ars­son, sagði að nýjar upp­lýs­ingar væru komnar fram um við­skipt­in. Þessar upp­lýs­ingar varpa skýr­ari ljósi á það að aðkoma fyrr­nefnda bank­a að kaup­un­um hafi ekki verið sú sem full­yrt var þegar gengið var frá sölu rík­is­ins á eign­ar­hlutn­um.

Tryggvi send­i stjórn­­­­­skip­un­­­ar- og eft­ir­lits­­­nefnd Alþing­is bréf þar sem hann lagði til að skipuð yrði rann­­­sókn­­­ar­­­nefnd um mál­ið. Snýst málið meðal ann­ars um að upp­lýsa hvort Kaup­þingi hafi í raun fjár­magnað kaup­in, sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans.

Kjartan Bjarni Björg­vins­son, sem stjórnar rann­sókn­inni, hafði óskað eftir því að Ólafur, Guð­mundur og tveir aðrir kæmu fyrir nefnd­ina til að svara spurn­ingum. Þeir neit­uðu hins vegar að gera það. Það varð til þess að Kjartan Bjarni leit­aði til dóm­stóla til að fá þá til að gefa skýrslu, en við því var brugð­ist með því að krefj­ast þess að dóm­ari við Hér­aðs­dóm Reykja­víkur, Ásmundur Helgason, viki vegna van­hæfis. Hann var sagður van­hæfur vegna þess að hann er dóm­ari við rétt­inn líkt og Kjartan Bjarni. Þessu var vísað á bug af dóm­stólum.

Hins vegar úrskurð­aði Hér­aðs­dómur Reykja­víkur fyrir jólin að þeim yrði ekki gert að gefa skýrslu fyrir dómi. Lögmaður Ólafs og Guð­mundar, Gísli Guðni Hall, hafði þá sent til­kynn­ingu fyrir þeirra hönd þar sem því var haldið fram að allt í kringum rann­sókn­ar­ferlið væri „und­ar­legt, for­dæma­laust og byggt á órök­studdum dylgjum.“ Hæsti­réttur snéri þeirri ákvörðun í dag og kemst að þeirri nið­ur­stöðu ekki sé væri stoð fyrir því í ákvæðum laga að þeir gætu skor­ast með öllu undan því að gefa vitna­skýrslu fyrir dómi.

Upp­haf­lega ætl­aði rann­sókn­ar­nefndin að skila skýrslu til Alþingis fyrir ára­mót, en vegna þess að menn­irnir neit­uðu að koma fyrir og bera vitni frestað­ist það.

Bún­­­­að­­­­ar­­­­bank­inn var seldur til svo­­nefnds S-hóps­ 16. j­an­úar 2003. Hóp­ur­inn var leiddur af þeim Ólafi Ólafs­syni og Finni Ing­ólfs­syni, fyrr­ver­andi vara­for­manni og ráð­herra Fram­sókn­ar­flokks­ins. Aðrir lyk­il­menn í hópnum voru Krist­ján Lofts­son, oft­ast kenndur við Hval, Mar­geir Dan­í­els­son, Jón Helgi Guð­munds­son, oft­ast kenndur við Byko, og lög­mað­ur­inn Krist­inn Hall­gríms­son.

Aðkoma Hauck & Auf­hauser að kaup­unum var þannig að bank­inn keypti hlut í félag­inu Eglu, sem Ólafur átti einnig í, og var eitt þeirra sem keypti hlut í Bún­að­ar­bank­an­um. Guð­mundur var fram­kvæmda­stjóri Eglu. Rúmum tveimur árum eftir að Hauck & Auf­hauser keypti hlut í Eglu, og þar af leið­andi í Bún­að­ar­banka, var bank­inn búinn að selja hann allan til ann­arra aðila innan S-hóps­ins.

Um tveimur mán­uðum eftir að S-hóp­­­­ur­inn keypti Bún­­­­að­­­­ar­­­­bank­ann hófust við­ræður um að sam­eina hann og Kaup­­­­þing. Eftir að sú sam­ein­ing gekk í gegn varð sam­ein­aður banki stærsti banki lands­ins og hóp­­­­ur­inn sem stýrð­i honum gerði það þangað til að hann féll í októ­ber 2008, og skráði sig á spjöld ­sög­unnar sem eitt stærsta gjald­­­­þrot sem orðið hef­­­­ur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár