Segir ákall eftir sölu Íslandsbanka koma frá væntanlegum kaupendum, ekki almenningi

Forseti ASÍ bendir á að kann­anir sýni lít­inn stuðn­ing almenn­ings við sölu á banka í rík­i­s­eigu. Í könnun sem gerð var við vinnslu hvít­bókar um fjár­mála­kerfið sögð­ust 61,2 pró­sent aðspurðra vera jákvæðir gagn­vart því að íslenska ríkið sé eig­andi banka.

Drífa Snædal, forseti ASÍ.
Drífa Snædal, for­seti ASÍ. Mynd: Bára Huld Beck

Drífa Snædal, for­seti Alþýðu­sam­bands Íslands (ASÍ), segir að ætlað ákall eftir því að selja hlut rík­is­ins í Íslands­banka komi lík­lega frá vænt­an­legum kaup­endum, ekki almenn­ingi. „Könnun eftir könnun hefur sýnt lít­inn stuðn­ing við söl­una, enda hefur traust eftir síð­ustu banka­sölu og hruns í kjöl­farið ekki verið end­ur­heimt.“

Þetta kemur fram í viku­legum pistli hennar sem birtur var í dag.

Þar vísar Drífa meðal ann­ars í könnun sem gerð var fyrir starfs­hóp sem vann hvít­bók um fjár­mála­kerfið sem skilað var til fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra í des­em­ber 2018. Formaður þess hóps var Lárus Blöndal, stjórn­ar­for­maður Banka­sýslu rík­is­ins, sem gerði til­lögu um sölu á Íslands­banka í síð­asta mán­uði.

Í þeirri könnun kom fram að 61,2 pró­sent lands­manna var jákvæður gagn­vart því að íslenska ríkið sé eig­andi við­skipta­banka. Ein­ungis 13,5 pró­sent þeirra voru nei­kvæðir gagn­vart því og 25,2 pró­sent höfðu ekki sér­staka skoðun á því.

[adspot]Þegar fólk var spurt hver væri helsta ástæða þess að það væri jákvætt gagn­vart því að ríkið sé eig­andi við­skipta­banka voru algeng­ustu svörin þau að ríkið væri betri eig­andi en einka­að­ili, að slíku eign­ar­haldi fylgdi öryggi og traust, að arð­ur­inn af fjár­mála­starf­semi myndi þá fara til þjóð­ar­innar og að minni líkur væru á spill­ingu, græðgi og slæmum enda­lok­um.

Svo sögð­ust ein­ungis 16 pró­sent lands­manna treysta banka­kerf­inu, sem þó er að langstærstu leyti í eigu íslensku þjóð­ar­inn­ar. Og 57 pró­sent sögð­ust alls ekki treysta því.

Skýringar og röksemdir skortir

Í dag var einnig send út grein­ar­grerð sér­fræð­inga­hóps verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar um áform­aða sölu Íslands­banka. Megin nið­ur­staða hóps­ins er að skýr­ingar og rök­semdir skorti fyrir þeirri ákvörðun að hefja sölu bank­ans nú við þær óvenju­legu aðstæður sem ríkja og að ekki sé ráð­legt að stíga svo stórt skref á óvissu­tímum. Þá er vakin athygli á þeim sam­fé­lags­vanda sem ófull­nægj­andi traust í garð stjórn­valda og fjár­mála­kerf­is­ins skapar.

Í nið­ur­lagi skýrsl­unnar segir meðal ann­ars að Íslands­banki sé ekki í eigu rík­is­ins vegna ásælni almenn­ings í að eiga banka heldur vegna þess að banka­kerfi lands­ins brást almenn­ingi full­kom­lega í efna­hags­hrun­inu 2008. „Sú stað­reynd þarf jafn­framt að skoð­ast í sam­hengi við hina umdeildu einka­væð­ingu bank­anna í upp­hafi ald­ar­innar. Þau rök sem helst eru borin á borð fyrir einka­væð­ingu Íslands­banka núna eru að um hana hafi verið samið við gerð stjórn­ar­sátt­mála. Þá virð­ist hrað­inn öðru fremur skýr­ast af þeirri stað­reynd að Alþing­is­kosn­ingar fara fram síðar á árinu. Þessar rök­semdir eru ekki full­nægj­andi og með þess­ari grein­ar­gerð er kallað á nán­ari rök­semdir og skýr­ingar. Veiga­mikil rök standa gegn því að selja stóran hlut í bank­anum við þær aðstæður sem nú ríkja í efna­hags­líf­inu og á fjár­mála­mark­aði, jafnt hér á landi sem erlendis.“

Kallar eftir umræðu um samfélagsbanka

Drífa segir í pistli sínum að kjarni máls­ins sé sá að verið sé að taka hlut í allra eigu og selja hann til fárra. Fyrir því þurfi að vera góð rök. Einu rökin sem sett séu fram séu hins vegar hug­mynda­fræði­leg, að ríkið eigi ekki að eiga banka. „Við höfum eitt stykki banka­hrun til að læra af og lexían er þessi: Það er ekki þjóð­inni í hag að taka sam­eig­in­legar eignir hennar og setja í hendur fjár­magns­eig­enda. Bank­arnir eru ekki endi­lega betur settir í einka­eigu. Ef á að breyta eign­ar­haldi á bönk­unum skulum við fyrst tryggja það að fólk geti valið við­skipti við banka í almanna­eigu, rek­inn á for­sendum almenn­ings og til hags­bóta fyrir okkur öll.“

Hún kallar síðan eftir að rykið verði dustað af þeirri hug­mynd að breyta Lands­bank­anum í sam­fé­lags­banka. „Slíkt form byggir á þeirri rót­tæku hug­mynd að fjár­mála­stofn­anir vinni í þágu almenn­ings en ekki fjár­magns­eig­enda. Að bankar þurfi ekki endi­lega að skila gróða, geti verið í almanna­eigu og stuðlað að sam­fé­lags­lega mik­il­vægum verk­efnum. Að ein­hverju leyti þekkjum við þessa hug­mynda­fræði í gegnum spari­sjóða­kerfið eins og það var hugsað í upp­hafi. Síðustu ára­tugir hafa hins vegar verið und­ir­lagðir af ofur­trú á að gróða­sjón­ar­mið eigi að ráða för í fjár­mála­starf­semi og að „“fé án hirðis”“ sé skað­legt.“

Selt á næstu mánuðum

Til stendur að selja hlut af eign rík­is­ins í Íslands­banka á næstu mán­uðum. Tillaga þess efnis var lögð fram af Banka­sýslu rík­is­ins 17. des­em­ber og sam­þykkt af fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra fjórum dögum síðar.

[links]Áformin ganga út á að skrá bank­ann á markað og selja ótil­greindan hlut í honum í aðdrag­anda þess. Fyrri áform, sem lögð voru á hill­una vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins, gerðu ráð fyrir að bank­inn yrði seldur í sam­hliða sölu­ferli þar sem gert var ráð fyrir beinni sölu á hluta í gegnum upp­boð, mögu­lega til erlends banka. Þá gerðu þau áform líka ráð fyrir tví­hliða skrán­ingu Íslands­banka, á íslenskan hluta­bréfa­markað og í erlenda kaup­höll.

Nýju áformin gera ein­ungis ráð fyrir sölu í gegnum hluta­fjár­út­boð hér­lendis og skrán­ingu í íslensku kaup­höll­ina. Það er meðal ann­ars rök­stutt í til­lögu Banka­sýslu rík­is­ins með því að ólík­legt sé að erlendur banki sýni áhuga á að eign­ast hlut í inn­lendum banka í núver­andi umhverfi, enda séu fá dæmi á síð­asta ári um beina sölu á bönkum í Evrópu til fjár­festa eða ann­arra banka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

einkavæðing

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár