Sagði Ólaf Ólafsson hafa haft „beinan aðgang“ að Halldóri Ásgrímssyni

Í skýrsl­unni um aðkomu Hauck & Auf­häuser að kaup­unum á Bún­að­ar­bank­anum er birt afrit af skýrslu sem tekin var af Björgólfi Guð­munds­syni árið 2010. Þar segir hann frá fundi sem Halldór Ásgríms­son boð­aði hann á.

Björgólfur Guð­munds­son, fyrr­ver­andi for­maður banka­ráðs Lands­banka Íslands, segir að Halldór Ásgríms­son, þá ráð­herra og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, hafi kallað sig á fund og hund­skammað fyrir að leggja Ólaf Ólafsson og tengda aðila í ein­elti. Það ein­elti hafi birst í áróðri um að aðkoma Hauck & Auf­häuser að kaup­unum í Bún­að­ar­bank­anum væru blekk­ing. Björgólfur sagði enn fremur að hefðu verið „rosa­leg fram­sókn­ar­tengsl“ milli aðila og að „Ólafur Ólafsson virt­ist hafa alltaf beinan aðgang að Halldóri og ein­hvern veg­inn, og var alltaf að magna upp ein­hver leið­indi.“

Þetta kemur fram í afriti af skýrslu sem tekin var af Björgólfi 8. jan­úar 2010 í tengslum við vinnu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis um banka­hrunið. Þetta afrit var birt í fyrsta sinn opin­ber­lega í skýrsl­unni um aðkomu Hauck & Auf­häuser að kaup­unum á 45,8 pró­sent hlut í Bún­að­ar­bank­anum, sem birt var í gær.

Segir Halldór hafa hundskammað sig

Í stóru skýrsl­unni um aðstæður hruns­ins, sem birt var í apríl 2010, var þessi skýrsla af Björgólfi ekki birt með sama hætti og í skýrsl­unni um Hauck & Auf­häuser.

[links]

Þar sagði Björgólfur að það hefði verið „óskap­lega mikið hatur“ milli Bún­að­ar­bank­ans/Kaup­þings og Lands­banka Íslands, sem hann hefði aldrei skilið. Skýr­ingin hafi verið sú að Kaup­þings­menn töldu að aðilar innan Lands­bank­ans hefðu komið því í umræð­una að til­boð Hauck & Auf­häuser hefði verið ein­hvers konar „falstil­boð frá Þýska­landi“.

Síðan segir Björgólfur: „ Ég man bara eftir því að ég var kall­aður til ákveð­ins aðila, hann hund­skamm­aði mig fyrir að vera að leggja þá í ein­elti, þessa góðu drengi, Ólaf Ólafsson og félaga út af þessu máli í Þýska­landi, þetta væri allt hreint og klárt og þetta var nú Halldór Ásgríms­son sem að gerði það.“ Halldór Ásgríms­son var á þessum árum for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, utan­rík­is­ráð­herra og for­sæt­is­ráð­herra á árunum 2004 til 2006. Hann lést árið 2015.

Björgólfur sagði við nefnd­ina að honum hefði brugðið mikið við þetta. „Ég man ég sagði við hann [Halldór Ásgríms­son]: Heyrðu, má ég skrifa þetta eftir þér? Af því að hann var, þetta var nú mánu­dagur kl. 9, erfið helgi og ég fékk miklar skammir fyrir það að ég stæði fyrir ein­hverjum miklum áróðri, eða við, um þann hóp sem hefði keypt Bún­að­ar­bank­ann að það væri hvergi allt greitt með erlendu fjár­magni. Ég hafði ekki hug­mynd um það.“

Ólafur alltaf með beinan aðgang

Aðspurður sagði Björgólfur að þessi fundur hafi lík­lega átt sér stað árið 2004. Hann sagði að Halldór hefði sagt að „þeir [væru] alltaf að kvarta í sig yfir að við[...]hefðum haldið uppi áróðri að[...]þessi þýski banki væri bara falskt identity.“

[adspot]

Svo sagði Björ­gölfur: „Þessi tengsl, það voru rosa­leg fram­sókn­ar­tengsl þarna inni, alveg ótrú­leg. Ég veit ekk­ert um flokkapóli­tík eða neitt en þetta var, virt­ist vera, Ólafur Ólafsson virt­ist hafa alltaf beinan aðgang að Halldóri og ein­hvern veg­inn, og var alltaf að magna upp ein­hver leið­indi.“

Kroll gerði skýrslu um Rússlandsmál

Björgólfur sagð­ist einnig vita til þess að Ólafur Ólafsson og aðilar tengdir honum hafi látið taka saman skýrslu um „okkur til þess að reyna að finna eitt­hvað mjög bjagað um okkur í Rúss­landi. [...]Það var nú bara heims­þekkt fyr­ir­tæki sem var fengið til þess, og það var Kroll“.

Að sögn Björg­ólfs hafi maður sem unnið hafi umrædda skýrslu hins vegar komið að máli við sig og beðið hann um að lesa skýrsl­una um sig og sína við­skipta­fé­laga, sem og hann gerði. „Bún­að­ar­bank­inn var með okkur á heil­anum alla tíð[...]Það er alveg sama hvort það voriu Bakka­bræður [Ágúst og Lýður Guð­munds­synir] eða hinir, Ólafur verstur, að við vorum, ein­hvern veg­inn, þeim finnst við fá alltof góða umfjöllun og það var alltaf, þetta var mjög slæmt, að þetta var mjög óþægi­legt.“

Halldór hafði samband við Ríkisendurskoðanda

Halldór Ásgríms­son sat einnig í ráð­herra­nefnd um einka­væð­ingu þegar hlutur rík­is­ins í Bún­að­ar­bank­anum og Lands­banka Íslands voru seldir á árunum 2002 og 2003.

Eftir að Vil­hjálmur Bjarna­son, nú þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hafði vakið upp spurn­ingar um raun­veru­lega aðkomu Hauck & Auf­häuser í kaup­unum var Rík­is­end­ur­skoðun fengin til að skoða sér­stak­lega athuga­semdir sínar.

Í skýrsl­unni um Hauck & Auf­häuser er sér­stak­lega fjallað um þessa skoðun og sagt að í umræðum vegna þeirra þing­mála á Alþingi um þátt­töku Hauck & Auf­häuser í einka­væð­ingu Bún­að­ar­bank­ans á Alþingi hafi komið fram í máli þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, Halldórs Ásgríms­sonar, í þing­ræðu á Alþingi 20. febr­úar 2006 að hann hefði haft sam­band við rík­is­end­ur­skoð­anda þann morgun vegna máls­ins og innt hann eftir því „hvort eitt­hvað nýtt væri í þessu máli“. Halldór kvað rík­is­end­ur­skoð­anda hafa svarað því til að svo væri ekki og rakti nánar sam­ræður þeirra af þessu til­efni.

Í skýrsl­unni segir að þessu næst hafi Rík­is­end­ur­skoðun átt fund með Vil­hjálmi Bjarna­syni mið­viku­dag­inn 22. febr­úar 2006 þar sem hann kynnti athuga­semdir sínar um þetta mál­efni og rök­semdir fyrir þeim og lagði fram gögn þar að lút­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hauck&Aufhäuser

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Að opin­bera Ólaf Ólafsson er ekki mann­rétt­inda­brot

Ólafur Ólafsson hefur kært íslenska ríkið til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu fyrir það að Alþingi hafi skipað rann­sókn­ar­nefnd til að upp­lýsa um það að hann og sam­starfs­fé­lagar hans hefðu beitt ríkið, fjöl­miðla og almenn­ing allan stór­kost­legum blekk­ingum til að kom­ast yfir Bún­að­ar­bank­ann árið 2003. Ólafur telur að vinna og birt­ing á skýrslu rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar hafi vegið „alvar­lega að orð­spori og æru“ hans án...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár