Báðir ríkisbankarnir búnir að hækka húsnæðisvexti vegna stýrivaxtahækkunar

Stýri­vextir voru hækk­aðir um 0,25 pró­sent 19. maí síð­ast­lið­inn. Á morgun munu breyti­legir óverð­tryggðir hús­næð­is­vextir Íslands­banka hækka um 0,25 pró­sentu­stig og sömu vextir hjá Lands­bank­anum um 0,15 pró­sentu­stig.

Lands­bank­inn, sem er í eigu íslenska rík­is­ins, hefur ákveðið að hækka breyti­lega vexti á óverð­tryggðum hús­næð­is­lánum um 0,15 pró­sentu­stig.

[links]Ákvörð­unin er tekin í kjöl­far þess að Seðla­banki Íslands ákvað að hækka stýri­vexti um 0,25 pró­sentu­stig – upp í eitt pró­sent – þann 19. maí síð­ast­lið­inn. Ný vaxta­tafla tekur gildi á morgun, 1. júní.

Við þetta hækka breyti­legir vextir á óverð­tryggðum hús­næð­is­lánum Lands­bank­ans, sem hafa verið þeir lægstu sem í boði eru hér­lendis á grunn­lánum (fyrir allt að 70 pró­sent af virði keyptrar eignar), úr 3,3 í 3,45 pró­sent. Fastir vextir á óverð­tryggðum hús­næð­is­lánum verða óbreyttir, en þeir eru nú 4,05 pró­sent af láni upp að 50 pró­sent af virði eignar og svo 4,25 pró­sent af láni fyrir næstu 20 pró­sentu­stigum af virði hennar.

Þetta er minni hækkun en varð hjá hinum rík­is­bank­anum, Íslands­banka, vegna vaxta­á­kvörð­unar Seðla­bank­ans. Hann til­kynnti fyrir helgi að breyti­legir vextir óverð­tryggðra hús­næð­is­lána um 0,25 pró­sent. Íslands­banki hækk­aði einnig vexti á föstum óverð­tryggðum vöxtum.

Mun bíta heimilin í landinu í veskið

Ljóst má vera að þessi hækkun, og hækkun á íbúða­lána­vöxtum ann­arra lán­veit­enda sem búast má við í kjöl­far þess að stýri­vextir voru hækk­aðir, mun hafa áhrif á veskið hjá mörgum heim­ilum í land­inu. Þau hafa flykkst yfir í óverð­tryggð lán á síð­ustu miss­erum, og þar hafa breyti­legir vextir notið mestra vin­sælda, enda bera þau lán lægstu vext­ina. Ný óverð­tryggð hús­næð­is­lán banka til heim­ila lands­ins námu til að mynda 135,5 millj­örðum króna á fyrstu fjórum mán­uðum árs­ins 2021. Frá upp­hafi kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins hér­lendis í mars í fyrra, þegar vextir tóku að hríð­ar­lækka sem leiddu til stór­auk­innar lán­töku til hús­næð­is­kaupa, hafa heim­ili lands­ins tekið 495,8 millj­arða króna í ný óverð­tryggð lán hjá Lands­banka, Íslands­banka og Arion banka að frá­dregnum upp­greiðslum og umfram­greiðslum.

[adspot]Það er rúm­lega 98 millj­örðum krónum meira en heim­ili lands­ins tóku í óverð­tryggð hús­næð­is­lán hjá bönk­unum þremur frá byrjun árs 2013 og til loka febr­úar 2020, eða á sjö árum og tveimur mán­uðum. Á þeim tíma tóku heim­ilin alls 397,2 millj­arða króna í óverð­tryggð lán til að kaupa sér hús­næði.

Það er rúm­lega 98 millj­örðum krónum meira en heim­ili lands­ins tóku í óverð­tryggð hús­næð­is­lán hjá bönk­unum þremur frá byrjun árs 2013 og til loka febr­úar 2020, eða á sjö árum og tveimur mán­uðum. Á þeim tíma tóku heim­ilin alls 397,2 millj­arða króna í óverð­tryggð lán til að kaupa sér hús­næði.

Lands­bank­inn er þó líka að hækka verð­tryggða vexti, bæði breyti­lega og fasta.

Tugir þúsunda á ári

Jón Steindór Valdi­mars­son, þing­maður Við­reisnar, sagði fyrr í mán­uð­inum að rétt væri að hafa áhyggjur af skuld­settum heim­ilum og ekki síst hjá ungu fólki „sem hefur spennt bog­ann til hins ýtrasta til að eign­ast eigið hús­næði“ í ljósi þess að stýri­vextir færu nú hækk­andi. Þar benti hann á að í nýlegri hag­spá Lands­bank­ans sé því spáð að stýri­vextir verði orðnir 2,75 pró­sent í lok árs 2023.

„Ein­hverjum kann að þykja að vaxta­hækk­unin nú, um 0,25 pró­sentu­stig, sé létt­væg. Svo er alls ekki. Sá sem skuldar t.d. 30 millj­ónir þarf að greiða 75.000 kr. meira í vexti á hverju ári og því miður er lík­legt að frek­ari vaxta­hækk­anir fylgi í kjöl­farið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár