10 staðreyndir um uppgjör þriggja stærstu bankanna

Þrír stærstu bank­arnir skil­uðu millj­arða­hagn­aði í fyrra, þrátt fyrir virð­is­rýrnun á útlána­safni þeirra. Hagn­að­ur­inn var meðal ann­ars til kom­inn vegna útlána­aukn­ingar og fækkun 260 stöðu­gilda. Kjarninn tók saman tíu stað­reyndir úr reikn­ingum bank­anna.

Lilja Björk Einarsdóttir, Birna Einarsdóttir og Benedikt Gíslason
Lilja Björk Ein­ars­dóttir, Birna Ein­ars­dóttir og Benedikt Gíslason Mynd: Samsett

1. Allir skila hagnaði, en Arion tekur vinninginn

Líkt og Kjarninn fjall­aði um í nóv­em­ber síð­ast­liðnum hefur yfir­stand­andi efna­hag­skreppa ekki náð til banka­kerf­is­ins, en sam­kvæmt nýbirtum árs­reikn­ingum skil­uðu þrír stærstu bank­arnir millj­arða­hagn­aði í fyrra. Hagn­að­ur­inn hjá Íslands­banka nam 6,8 millj­örðum króna, en hann nam 10,5 millj­örðum króna hjá Lands­bank­anum. Rekstur Arion banka var þó gjöf­ulastur, en hagn­aður bank­ans eftir skatta nam 12,5 millj­örðum króna í fyrra.

2. Mikil niðurfærsla á eignum

Þrátt fyrir góða rekstr­ar­nið­ur­stöðu gætir þó áhrifa far­ald­urs­ins í bók­haldi bank­anna, þar sem mikil óvissa ríkir um hversu mikið af við­skipta­vinum þeirra muni geta greitt upp lánin sín. Vegna þess­arar óvissu telja bank­arnir að útlána­safn þeirra sé minna virði en áður, og hafa þeir því nið­ur­fært virði þeirra í árs­reikn­ing­unum. Alls voru 8,8 millj­arðar króna afskrif­aðir hjá Íslands­banka, 12 millj­arðar hjá Lands­bank­anum og 13 millj­arðar hjá Arion banka. Hjá öllum bönk­unum var virð­is­rýrn­unin marg­falt meiri í fyrra heldur en árið 2019.

3. Mismunur í þóknanatekjum

Auk mik­illar virð­is­rýrn­unar á útlána­safni bank­anna segir Íslands­banki að þókn­ana­tekjur hans hafi dreg­ist saman vegna minni korta­veltu í heims­far­aldr­inum. Þær lækk­uðu um rúm þrjú pró­sent milli ára, eða um 400 millj­ónir króna. Svipað virð­ist hafa verið upp á ten­ingnum hjá Lands­bank­anum, en þar dróg­ust hreinar þjón­ustu­tekjur saman um sjö pró­sent, eða úr 8,2 millj­örðum niður í 7,6 millj­arða.

Arion banki fann hins vegar ekki fyrir sam­drætti í þókn­ana­tekjum þrátt fyrir heims­far­ald­ur­inn. Þvert á móti juk­ust þær tölu­vert, eða úr tæpum 10 millj­örðum króna í rúma 13 millj­arða.

4. Minni fjármunatekjur yfir árið, en síðasti fjórðungur gjöfull

Til við­bótar við virð­i­s­ýrnun og minni þókn­ana­tekjur juk­ust minnk­uðu fjár­magnstekjur bank­anna. Hreinar fjár­magnstekjur Íslands­banka voru nei­kvæðar, en hann greiddi 1,3 millj­arða króna í fjár­magns­gjöld í fyrra. Sömu­leiðis lækk­uðu fjár­muna­tekjur Arion banka um tæpan hálfan millj­arð, en lækk­unin nam um 3,8 millj­arða hjá Lands­bank­anum miðað við árið á undan.

Hins vegar hafa síð­ustu mán­uðir verið gjöf­ulir á verð­bréfa­mörk­uðum. Íslands­banki greindi frá því að hann hafi grætt tæpar 800 millj­ónir króna á síð­asta árs­fjórð­ungi af fjár­eignum sínum, en hreinar fjár­muna­tekjur Arion námu sömu­leiðis 1,3 millj­örðum króna og Íslands­banki græddi 5 millj­arða króna á sínum fjár­eignum á tíma­bil­inu.

5. Mikil aukning í útlánum

Hagnaður bank­anna á síð­asta ári stafar fyrst og fremst af auknum útlánum. Líkt og Kjarninn hefur fjallað um áður stórjókst eft­ir­spurn ein­stak­linga eftir hús­næð­is­lánum í kjöl­far vaxta­lækk­ana Seðla­bank­ans vor, sem leitt hefur til auk­innar virkni á fast­eigna­mark­aði.

Útlán Arion banka til við­skipta­vina sinna juk­ust um tæpa 50 millj­arða á milli 2019 og 2020. Enn meiri aukn­ingu mátti þó sjá hjá Lands­bank­anum og Íslands­banka, þar sem virði hús­næð­is­lána jókst um rúm­lega 100 millj­arða.

6. Hægt að fjármagna útlánin þar sem innlán jukust einnig

Aukn­ingin í útlánum bank­anna er þó ekki ein­ungis til­komin vegna vaxta­lækk­ana Seðla­bank­ans. Íslands­banki, Lands­bank­inn og Arion banki nutu einnig góðs af óvissu­á­stand­inu sem skap­að­ist vegna heims­far­ald­urs­ins, þar sem mörg heim­ili drógu úr neyslu sinni og juku sparn­að­inn sinn.

Aukinn sparn­aður heim­il­anna leiddi til mik­illar aukn­ingar í inn­lánum bank­anna, sem gaf þeim nægt fjár­magn á lágum vöxtum sem hægt var að nýta í aukna eft­ir­spurn eftir hús­næð­is­lánum. Innlán Arion banka juk­ust um 76 millj­arða króna, en aukn­ingin nam um 60 millj­örðum hjá Íslands­banka og 86 millj­örðum hjá Lands­bank­anum.

7. Vaxtamunur minnkar hjá ríkisbönkunum en ekki Arion

Vaxta­lækkun Seðla­bank­ans virð­ist einnig hafa leitt til auk­ins þrýst­ings á hagnað rík­is­bank­anna tveggja á hverju láni, þar sem vaxta­munur þeirra er minni en hann var á síð­asta ári. Munurinn á inn- og útláns­vöxtum þeirra var 2,5 pró­sent í fyrra, en hann hafði lækkað úr 2,6 pró­sentum hjá Íslands­banka og 2,8 pró­sentum hjá Lands­bank­anum.

Öfuga þróun mátti hins vegar sjá hjá Arion banka, þar sem vaxta­mun­ur­inn jókst úr 2,8 pró­sentum í 2,9 pró­sent.

8. Minni fyrirtækjalán

Þrátt fyrir að eft­ir­spurn ein­stak­linga eftir hús­næð­is­lánum jókst tölu­vert á síð­asta ári var ekki mikið að frétta í fyr­ir­tækja­lánum. Á fyrstu níu mán­uðum árs­ins voru ný lán banka­kerf­is­ins til fyr­ir­tækja innan við 10 pró­sent af lán­veit­ingu sama tíma­bils árið 2018. Benedikt Gíslason banka­stjóri Arion banka sagði á fjöl­miðla­fundi við kynn­ingu á árs­hluta­upp­gjöri bank­ans að ástæðan á bak við litla lán­veit­ingu til fyr­ir­tækja væri sú að lítil eft­ir­spurn væri eftir slíkum lánum þessa stund­ina.

Á síð­ustu mán­uðum árs­ins tóku lánin svo nokkurn kipp, en þó var heild­ar­magn þeirra tölu­vert minna heldur en á árinu á undan. Í des­em­ber síð­ast­liðnum lán­aði íslenska banka­kerfið atvinn­u­­fyr­ir­tækjum lands­ins alls sjö millj­arða króna í nýjum útlán­um, að frá­­­dregnum upp­­greiðslum og umfram­greiðsl­u­m, í des­em­ber síð­ast­liðn­um. Við það hækk­aði heild­ar­um­fang nýrra útlána sem veitt voru til fyr­ir­tækja á árinu 2020 veru­lega, eða upp í 7,8 millj­arða króna.

9. Minni rekstrarkostnaður

Bank­arnir virð­ast allir hafa skorið niður í mannauði sínum á árinu, miðað við fjölda stöðu­gilda í árs­lok 2019 og 2020. Mestur er mun­ur­inn hjá Íslands­banka, þar sem stöðu­gild­unum fækk­aði um 205, en starfs­mönnum Arion banka fækk­aði um 39 og starfs­mönnum Lands­bank­ans fækk­aði um 15. Því fækk­aði starfs­mönnum bank­anna þriggja um tæp­lega 260 manns í fyrra.

Þessi fækkun hefur leitt til minni rekstr­ar­kostn­aðar hjá bönk­unum, en hann lækk­aði um rúma tvo millj­arða króna hjá Arion banka og Lands­bank­anum, en um tæp­lega fjóra millj­arða króna hjá Íslands­banka.

10. Landsbankinn og Arion greiða til hluthafa

Í ljósi hagn­að­ar­ins og engra arð­greiðslna á síð­asta ári hafa Lands­bank­inn og Arion banki ákveðið að greiða hlut­höfum sínum miklar fjár­hæðir í ár. Stjórn Lands­bank­ans leggur til 4,5 millj­arða króna arð­greiðslu, en 4,4 millj­arðar af þeirri upp­hæð myndu renna til rík­is­ins. Arion hyggst greiða hlut­höfum sínum 3 millj­arða króna í arð, en hann mun einnig kaupa upp eigin bréf að and­virði 15 millj­arða króna á árinu, sam­kvæmt end­ur­kaupa­á­ætlun sem nýlega var leyfð af Fjár­mála­eft­ir­liti Seðla­banka Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

arion

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár