Glerbrot fannst í Egils malti og appelsíni – gefa ekki upp sölutölur

Salan á Egils malti og app­el­síni var góð yfir hátíð­irnar en ekki fást nákvæmar upp­lýs­ingar hjá Ölgerð­inni um sölu­tölur. Fyr­ir­tækið hefur í sam­ráði við Heil­brigð­is­eft­ir­lit Reykja­víkur stöðvað sölu og inn­kallað Egils malt og app­el­sín í hálfs lítra dósum.

Ölgerðin Egill Skalla­gríms­son ehf. gefur aldrei upp ein­stakar sölu­tölur en sala á Egils malti og app­el­síni er sam­kvæmt fyr­ir­tæk­inu ætíð góð, ekki síst yfir hátíð­irnar og síð­asta ár var þar ekki und­an­tekn­ing.

Þetta kemur fram í svari fyr­ir­tæk­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans um hversu mikið ölgerðin hefði selt af Egils malti og app­el­síni á síð­asta ári. Fram kom í til­kynn­ingu frá Reykja­vík­ur­borg í vik­unni að fyr­ir­tækið hefði í sam­ráði við Heil­brigð­is­eft­ir­lit Reykja­víkur stöðvað sölu og inn­kallað Egils malt og app­el­sín í hálfs lítra dósum.

Ástæða inn­köll­unar var að hugs­an­lega gæti verið gler­brot í drykkj­ar­dós. Glerbrot í mat­vælum geta valdið skemmdum á tönnum og sárum í munn­holi og melt­ing­ar­vegi, segir í til­kynn­ing­unni.

Um eina framleiðslulotu að ræða

Guðni Þór Sig­ur­jóns­son, for­stöðu­maður vöru­þró­unar og gæða­deildar, segir í svar­inu til Kjarnans að neyt­andi hafi haft sam­band eftir að hann fann gler­brot í dós af Malti og App­el­síni.

Þá kemur enn fremur fram í svar­inu að ekki liggi fyrir á þess­ari stundu hversu stór hluti af því sem fram­leitt var fyrir jólin sé um að ræða. „Aðeins var um að ræða eina fram­leiðslu­lotu. Þessi ein­staka lota var innan við 5 pró­sent af fram­leiddu Malti og App­el­síni,“ segir í svar­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Neytendamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár