Bensínverð ekki verið hærra frá því í nóvember 2019

Hlutur olíu­fé­lag­anna í hverjum seldum bens­ín­lítra hefur ekki verið minni frá því í jan­úar 2020. Við­mið­un­ar­verð á bens­íni hefur þrátt fyrir það ekki verið hærra í 15 mán­uði og hefur hækkað um 14 pró­sent frá því í maí.

Bensíndropinn er dýr um þessar mundir.
Bens­ín­drop­inn er dýr um þessar mundir. Mynd: Flickr

Við­mið­un­ar­verð á bens­íni á Íslandi hefur hækkað um tæp 14 pró­sent frá miðjum maí­mán­uði í fyrra. Þá var það 194 krónur á lítra en er nú 220,9 krónur á lítra. Hlutur olíu­fé­laga í hverjum seldum lítra er nú 15,54 pró­sent og hefur ekki verið minni síðan í jan­úar í fyrra. Líklegt inn­kaupa­verð á elds­neyti hefur að sama skapi ekki verið hærra hlut­fall af hverjum seldum lítra síðan í byrjun síð­asta árs og bens­ín­verðið hefur ekki verið hærra frá því í nóv­em­ber 2019.

Þetta má sjá í nýj­ustu Bens­ín­vakt Kjarn­ans sem unnin er í sam­vinnu við Bens­ín­verð.is.

Við­mið­un­ar­verðið er fengið frá hug­bún­að­ar­fyr­ir­tæk­inu Seið ehf. sem meðal ann­ars heldur úti síð­unni Bens­ín­verð.is og fylgst hefur með bens­ín­verði á flestum bens­ín­stöðum lands­ins dag­lega síðan 2007. Miðað er við næst­lægstu verð­tölu í yfir­lit­inu til að forð­ast að ein­hverju leyti áhrif tíma­bund­innar verð­sam­keppni á allra lægsta verð. Við­mið­un­ar­verðið er þó með lægstu verðum og sýnir þar með lægri hlut olíu­fé­lags­ins en reikna má með að raunin sé með­al­talið af öllu seldu bens­íni á land­inu.

Miklar sviptingar í fyrra

Miklar svipt­ingar voru í bens­ín­verði í framan af ári fyrra, sem rekja mátti til óróa á heims­mark­aði með olíu. Milli mars og apríl, þegar kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn var að breið­ast hratt út um allan heim, lækk­aði til að mynda lík­legt inn­kaupa­verð íslenskra olíu­fé­laga á bens­ín­lítra um meira en 60 pró­sent. Sú lækkun skil­aði sér ekki strax skilað til íslenskra neyt­enda og bens­ín­verð hélst nán­ast óbreytt. Hlutur íslensku olíu­fé­lag­anna í hverjum seldum lítra varð hins vegar 78 pró­sent hærri í apríl 2020 en hún var í mars þar sem inn­kaupa­verð á olíu hafði aldrei verið lægra sem hlut­fall af seldum lítra hér­lendis.

[adspot]Verðið lækk­aði svo hratt milli apríl og maí, um rúm­lega sjö pró­sent, og þannig nutu íslenskir bens­ín­n­eyt­endur hennar með töfum.

Síðan þá hefur bens­ín­verð hækkað jaft og þétt og við­mið­un­ar­verð í bens­ín­vakt Kjarnans var 220,9 krónur um miðjan febr­úar. Hlut­deild íslensku elds­neyt­is­sal­ana í hverjum seldum lítra er sem stendur um 34,3 krónur eða 15,54 pró­sent.

Bens­ín­vakt Kjarn­ans reiknar út lík­­­­­legt inn­­­­­kaups­verð á bens­íni út frá verði á lítra til afhend­ingar í New York í upp­­­hafi hvers mán­aðar frá banda­rísku orku­­­stofn­un­inni EIA og mið­gengi Banda­ríkja­dals gagn­vart íslenskri krónu í yfir­­­stand­andi mán­uði frá Seðla­­­banka Íslands.

Í þessum útreikn­ingum kann að skeika nokkru á hverjum tíma­­­punkti vegna lag­er­­­stöðu eða skamm­­­tíma­­­sveiflna á mark­aði. Nákvæmara væri að miða við verð á bens­íni til afhend­ingar í Rott­er­dam, en verð­­­upp­­­lýs­ingar þaðan liggja ekki fyrir á opnum gagna­veit­­­um. Mis­­­munur á verði í New York og Rott­er­dam er þó yfir­­­­­leitt mjög lít­ill.

Hlutur ríkisins 58,82 prósent

Hlutur olíu­fé­lags er reikn­aður sem afgangs­stærð þegar búið er að draga frá hlut­deild rík­is­ins í hverjum seldum bens­ín­lítra og lík­legt inn­kaup­verð á honum frá reikn­uðu við­mið­un­ar­verði, enda hald­góðar upp­lýs­ingar um ein­staka kostn­að­ar­liði olíu­fé­lag­anna ekki opin­berar.

Hlutur rík­is­ins er að miklu leyti í formi fastrar krónu­tölu og því hækkar hlut­fallið sem rennur til rík­is­ins að óbreyttu sam­hliða lækk­andi inn­kaupa­verði. Lægst hefur sam­an­lagður hlutur rík­is­ins á tíma­bil­inu verið 43,78 pró­sent í júlí 2008, en hæstur 63,27 pró­sent í maí 2020.

Hann er nú um stundir 58,82 pró­sent af hverjum seldum lítra. Það þýðir að um 130 krónur af hverjum seldum lítra fór til rík­is­ins í formi greidds virð­is­auka­skatts, almenns og sér­staks bens­ín­gjalds og kolefn­is­gjalds.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bensínvaktin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár