Starfskjör forstjóra N1 munu taka mið af launadreifingu innan félagsins

N1, sem brátt mun breyta nafni sínu í Festi, hefur lagt fram nýja starfs­kjara­stefnu. Starfs­kjör for­stjóra eiga meðal ann­ars að taka mið af launa­dreif­ingu innan félags­ins.

Á hlut­hafa­fundi N1, sem hald­inn verður 25. sept­em­ber næst­kom­andi, verður meðal lögð fram til­laga að nýrri starfs­kjara­stefnu félags­ins.

Á meðal þess sem lagt er til er áfram­hald­andi kaupauka­á­ætlun sem geri stjórn félags­ins kleift að greiða for­stjóra, æðstu stjórn­endum og eftir atvikum öðrum stjórn­endum kaupauka. Til­gangur hennar er, sam­kvæmt til­lög­unni, að „bæta hag hlut­hafa og verð­launa árangur.“

[links]Kaup­auk­inn getur verið í formi reiðu­fjár, sér­stakrar líf­eyr­is­greiðslu eða með greiðslu hluta­bréfatengdra rétt­inda sem eru utan fastra starfs­kjara starfs­manna. Fjárhæð kaupaukans getur á árs­grund­velli að hámarki svarað til sex mán­aða grunn­launa fyrir for­stjóra og þriggja mán­aða launa fyrir fram­kvæmda­stjóra.

Slík kaupauka­á­ætlun er til staðar í starfs­kjara­stefnu félag­ins eins og og hefur verið í fimm ár.

Horfa á til launadreifingar

Í til­lög­unni að nýju starfs­kjara­stefn­unni, sem birt var í Kauphöll í dag, er einnig fjallað um starfs­kjör for­stjóra félags­ins, en Kjarninn greindi frá því í mars síð­ast­liðnum að Eggert Þór Krist­ó­fers­son, for­stjóri N1, hefði verið með tæpar 5,9 millj­ónir króna í heild­ar­laun á mán­uði á árinu 2017. Launin hækk­uðu um rúm­lega ein milljón á mán­uði milli ára. Heild­ar­laun for­stjór­ans jafn­giltu launa­töxtum 22 afgreiðslu­manna á bens­ín­stöðvum N1.

Nokkrar breyt­ingar verða gerðar á starfs­kjörum for­stjóra verði breyt­inga­til­lög­urnar sam­þykktar. Í þeim er meðal ann­ars sagt að starfs­kjör for­stjóra eigi að vera ítar­lega skil­greind og að skýrt komi fram hvað séu grunn­laun, breyti­leg laun, líf­eyr­is­rétt­indi, orlof, önnur hlunn­indi og upp­sagn­ar­frestur. Þá bæt­ist við að upp­sagn­ar­frestur for­stjór­ans geti að hámarki verið 12 mán­uðir, en þó sé heim­ilt við sér­stök, en óskil­greind skil­yrði, að gera sér­stakan starfs­loka­samn­ing við for­stjóra „þjóni slíkur samn­ingur hags­munum félags­ins að mati stjórnar.“

[adspot]Athygli vekur nýtt ákvæði sem segir að við ákvörðun heild­ar­launa for­stjóra N1 eigi meðal ann­ars að að horfa til launa­dreif­ingar innan félags­ins og að þau séu „sam­keppn­is­hæf á þeim mark­aði sem félagið starfar á.“

Keyptu Krónuna

Sam­keppn­is­eft­ir­litið sam­þykkti í lok júlí síð­ast­lið­ins kaup N1 á öllu hlutafé Festi hf., sem rekur meðal ann­ars versl­anir Krón­unnar. Kaup­verðið var 23,7 millj­arðar króna var það ann­­ars veg­ar greitt með af­hend­ingu ríf­­lega 79,5 millj­­óna hluta í N1 á geng­inu 115, eða 9,2 millj­­arða króna, og hins veg­ar með ríf­­lega 14,5 millj­­arða í formi reiðu­fjár.

Fyrr í þessum mán­uði var greint frá því að Jón Björns­son væri hættur sem for­stjóri Festar og fyrir liggur að Eggert Þór verður for­stjóri sam­ein­aðs félags. Fyrir hlut­hafa­fund­inum liggur fyrir til­laga að nafn sam­ein­aðs félags verði Festi hf.Sex lyk­il­stjórn­endur Fest­ar, þar á meðal Jón Björns­son for­stjóri, fengu sam­an­lagt um 344 millj­ónir króna greiddar þegar kaup­rétt­ar­samn­ingar þeirra voru gerðir upp fyrr á árinu í tengslum við sölu á keðj­unni til N1.

N1, sem selur elds­neyti og rekur versl­anir, er skráð á markað og stærstu eig­endur félags­ins eru íslenskir líf­eyr­is­sjóðir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bensínvaktin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár