„Ódýri forstjórinn“ hjá N1 með 5,9 milljónir á mánuði

For­stjóri N1 lýsti sjálfum sér sem „ódýra for­stjór­anum“ þegar hann tók við starf­inu. Mán­að­ar­laun hans hafa síðan hækkað um tæp­lega 60 pró­sent. Verka­lýðs­for­ystan for­dæmir launa­hækk­un­ina og krefst sam­bæri­legra kjara­bóta fyrir annað starfs­fólk.

Eggert Þór Kristófersson, forstjóri N1, var með tæpar 5,9 milljónir króna á mánuði í laun á síðasta ári. Heildarlaun hans á því ári námu 70,5 milljónum króna og hækkuðu um rúmlega 12 milljónir króna á árinu, eða um eina milljón króna á mánuði.

Eggert Þór tók við forstjórastarfinu í N1 í lok febrúar 2015. Hann hafði áður verið fjármálastjóri þess. Þegar Eggert Þór tók við forstjórastarfinu af Eggerti Benedikt Guðmundssyni, sem var sagt upp störfum, var sú uppsögn sögð vera liður í kostnaðarlækkun N1. Eggert Benedikt hafði verið með 55,9 milljónir króna í laun á árinu 2014, eða tæplega 4,7 milljónir króna á mánuði.

Í viðtali við Viðskiptablaðið í byrjun mars 2015 sagði Eggert Þór að það sæist í ársskýrslu félagsins að hann væri „ódýri forstjórinn“. Laun hans fyrsta árið sem hann sat í stóli forstjóra voru lægri en laun fyrirrennara sín. Heildarlaun hans á því ári voru 43,8 milljónir króna, eða tæplega 3,7 milljónir króna á mánuði. Í fyrra höfðu mánaðarlaun Eggerts Þórs hins vegar hækkað um 2,2 milljónir króna á tveimur árum og heildarlaun hans á ári um 26,7 milljónir króna á sama tíma.

Stærstu eigendur N1 eru þrír stærstu lífeyrissjóðir landsins: Lífeyrissjóður verslunarmanna, Gildi lífeyrissjóður og Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins. Þá er Birta lífeyrissjóður fimmti stærsti eigandi félagsins.

Laun stjórnarmanna N1 hafa líka hækkað á þessu tímabili. Margrét Guðmundsdóttir, stjórnarformaður N1, var með 7,3 milljónir króna í laun árið 2014. Í fyrra voru heildarlaun hennar fyrir stjórnarformennskuna 8,9 milljónir króna og hafa því hækkað um 1,6 milljónir króna á nokkrum árum. Mánaðarlaun Margrétar eru 720 þúsund krónur.

Helgi Magnússon, varaformaður stjórnarinnar, er með rúmlega 6,4 milljónir króna í árlegar tekjur fyrir stjórnarstörfin. Hann fékk 4,8 milljónir króna fyrir árið 2014 og því hafa árslaun hans hækkað um 1,6 milljónir króna á tímabilinu.

Verkalýðsforystan fordæmis launahækkunina

Fregnir af launa­hækk­unum for­stjóra N1 hefur farið illa í verka­lýðs­for­yst­una. Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, stærsta stétt­ar­fé­lags lands­ins, segir í stöðu­upp­færslu á Facebook að hann, Sólveig Anna Jóns­dóttir, verð­andi for­maður Eflingar, Vil­hjálmur Birg­is­son, for­maður Verka­lýðs­fé­lags Akraness, og Aðal­steinn Bald­urs­son, for­maður verka­lýðs­fé­lags­ins Fram­sýnar, for­dæmi launa­hækk­anir æðstu stjórn­enda og for­stjóra N1. Laun for­stjór­ans jafn­gildi launa­töxtum 22 afgreiðslu­manna hjá N1. „N1 er að stórum hluta í eigu íslenskra líf­eyr­is­sjóða og því alveg ljóst að líkt og stjórn­völd ætla sam­tök atvinnu­lífs­ins og líf­eyr­is­sjóð­irnir að gefa tón­inn fyrir kom­andi kjara­við­ræður. Við skorum á stjórn­endur N1 að veita starfs­fólki sínu sam­bæri­legar kjara­bætur taf­ar­laust.“

Vil­hjálmur segir í stöðu­upp­færslu á Facebook, þar sem hann tengir inn á frétt um launa­hækkun Eggerts Þórs, að sjálf­taka og græðgi stjórn­enda íslenskra fyr­ir­tækja haldi áfram eins og engin sé morg­un­dag­ur­inn. „Rétt er að geta þess að líf­eyr­is­sjóðir launa­fólks eiga uppundir 50% í N1 og það er líka rétt að geta þess að það þarf 22 afgreiðslu­menn á launa­töxtum sem gilda fyrir afgreiðslu­fólk á bens­ín­stöðvum til að ná mán­að­ar­launum for­stjór­ans.

Ég vil tala tæpitungu­laust við full­trúa Samtaka atvinnu­lífs­ins, stjórn­valda og for­svars­menn líf­eyr­is­sjóð­anna: þið skulið búa ykkur undir átök verka­fólks sem ekki hefur sést á íslenskum vinnu­mark­aði áður. Þetta var kornið sem stút­fyllti mæl­inn!

Að gefnu til­efni bið ég alla um að skamm­ast ekki í afgreiðslu­fólk­inu hjá N1 því þau geta alls ekk­ert gert að þessu og þeim er líka mis­boðið yfir þess­ari skefja­lausu græðgi for­stjór­ans og lyk­il­stjórn­enda eins og öðrum í þessu þjóð­fé­lagi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár