Fatlað fólk mun verr sett en atvinnulausir

Ný spurn­inga­könnun frá Vörðu leiðir í ljós að fjár­hags­leg staða fatl­aðs fólks er sýnu verri en staða atvinnu­lauss félags­fólks innan ASÍ og BSRB. Samkvæmt könn­un­inni eiga 80 pró­sent öryrkja erfitt með að ná endum saman.

Skilti Öryrkjabandalagsins á kröfugöngu 1. maí 2019.
Skilti Öryrkja­banda­lags­ins á kröfu­göngu 1. maí 2019. Mynd: Bára Huld Beck

Tæplega átta af hverjum tíu öryrkjum hér­lendis eiga erfitt með að ná endum saman og hefur svipað hlut­fall þeirra neitað sér um heil­brigð­is­þjón­ustu. Fjár­hags­staða fatl­aðs fólks er tölu­vert verri en fjár­hags­staða atvinnu­lausra, en tæp­lega fjórir af hverjum tíu fötl­uðum búa við skort á efn­is­legum gæðum.

Þetta er á meðal nið­ur­staðna nýrrar spurn­inga­könn­unar sem Varða – rann­sókn­ar­stofnun vinnu­mark­að­ar­ins vann fyrir Öryrkja­banda­lag Íslands. Könnunin var lögð fyrir byrjun sum­ars og er byggð á svörum 1.453 af þeim sem eru á örorku­líf­eyri, örorku­styrk og end­ur­hæf­ing­ar­líf­eyri.

Tvöfalt líklegri en atvinnulausir til að eiga í erfiðleikum

Markmið könn­un­ar­innar var að varpa ljósi á fjár­hags­legri, and­legri og félags­legri stöðu öryrkja, auk þess sem skoða átti heilsu­far þeirra og við­horf þeirra til þjón­ustu­stofn­ana og breyt­inga á almanna­trygg­inga­kerf­inu.

Nið­ur­stöð­urnar leiddu í ljós að fjár­hags­leg staða fatl­aðs fólks er tölu­vert slæm, þar sem stór hluti þeirra á erfitt með að ná endum saman. Ef þessar nið­ur­stöður eru bornar saman við sam­bæri­lega könnun sem atvinnu­lausir félags­menn BSRB og ASÍ svör­uðu á síð­asta ári fæst að fatlað fólk sé tvö­falt lík­legra til að eiga erfitt með að ná endum saman heldur en atvinnu­lausir.

Slæm heilsa og mikil einangrun

Könnunin sýndi einnig að 75% fatl­aðra kvenna og 65% fatl­aðra karla búa við slæma and­lega heilsu. Svipað hlut­fall svar­enda seg­ist vera við slæma lík­am­lega heilsu.

Þrátt fyrir heilsu­leysið hefur stór hluti fatl­aðs fólks neitað sér um heil­brigð­is­þjón­ustu á síð­ustu sex mán­uðum, í lang­flestum til­vikum þar sem þeir réðu ekki við kostn­að­inn sem þjón­ust­unni fylgdi. Þá hafa sex af hverjum tíu neitað sér um tann­lækna­þjón­ustu og ríf­lega helm­ingur um sál­fræði­þjón­ustu.

Til við­bótar við bága fjár­hags­lega stöðu og slæma heilsu stendur fatlað fólk einnig illa félags­lega sam­kvæmt könn­un­inni. Mikill meiri­hluti þeirra seg­ist finna fyrir félags­legri ein­angrun, en rúmur fjórð­ungur þeirra segir að ein­angr­unin sé mjög mikil. Könnunin leiðir einnig í ljós að meiri­hluti þeirra segir ein­angr­un­ina hafa auk­ist í COVID-19 far­aldr­inum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár