„Sumt fólk tók skellinn á meðan aðrir mökuðu krókinn“

Forseti ASÍ segir að þegar fólk, sem hefur verið svipt atvinnu­ör­yggi sínu til lengri tíma, les tekju­blaðið sitji eftir sú eðli­lega til­finn­ing að sumt fólk hafi tekið skell­inn á meðan aðrir hafi makað krók­inn.

Drífa Snædal, forseti ASÍ.
Drífa Snædal, for­seti ASÍ. Mynd: Bára Huld Beck

Drífa Snædal telur það sjálf­sagt og eðli­legt að Íslend­ingar fái upp­lýs­ingar um tekjur fólks og ekki síst fram­lag til sam­fé­lags­ins og þeirra kerfa sem „við treystum öll á og gætum ekki lifað án“. Þetta kemur fram í viku­legum pistli Drífu í dag en tekju­blöð Frjálsrar versl­unar og DV komu út í vik­unni.

Það sem veki athygli að þessu sinni umfram annað séu laun for­stjóra og yfir­manna hjá þeim fyr­ir­tækjum sem hafa fengið hvað hæstu rík­is­styrk­ina til að við­halda ráðn­inga­sam­böndum, fengið tekju­falls­styrki, upp­sagn­ar­styrki og nið­ur­greidd laun til að ráða fólk aftur til starfa.

Segir hún að þegar fólk, sem hefur verið svipt atvinnu­ör­yggi sínu til lengri tíma og tekið skell­inn á þeim for­sendum að „við séum öll á sama báti“, les tekju­blaðið sitji eftir sú eðli­lega til­finn­ing að „sumt fólk tók skell­inn á meðan aðrir mök­uðu krók­inn“.

[links]„Öll við­brögð við umræðum um að nú þurfum við öll að leggj­ast á árarnar í atvinnu­líf­inu lit­ast af þeirri stað­reynd að við erum einmitt ekki öll á sama báti. Sett er krafa á lág­launa­fólk um að sýna atvinnu­rek­endum tryggð með því mæta aftur til erf­iðra starfa um leið og kallið kemur og sama hvaðan sem það kemur. Við­brögðin hljóta þó að lit­ast af tryggð þess sama atvinnu­lífs eða vinnu­staðar við starfs­fólk á erf­iðum tímum,“ skrifar hún.

Kjarninn greindi frá því í vik­unni að tíu tekju­hæstu for­stjór­arnir hefðu sam­tals verið með 176,9 millj­ónir í tekjur á mán­uði árið 2020 og hefðu átta af þeim verið með yfir 12 millj­ónir. Tuttugu for­stjórar voru með yfir sex millj­ónir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár