Bensínverð ekki verið hærra frá árinu 2014

Heims­mark­aðs­verð á olíu og veik­ing krónu gagn­vart dal hefur gert það að verkum að verð á bens­íni hefur hækkað skarpt á Íslandi á skömmum tíma.

Bensínlítrinn er dýrastur á stöðvum N1.
Bens­ín­lítr­inn er dýrastur á stöðvum N1. Mynd: Bára Huld Beck

Með­al­verð á bens­ín­lítra hefur ekki verið hærra hér­lendis frá haust­mán­uðum árs­ins 2014. Þetta kemur fram í sam­an­burð­art­öflu á gasvaktin.is.

Með­al­verð á bens­ín­lítra var í gær 233,9 krónur og hefur hækkað skarpt und­an­farna daga. Það er hæsta verð sem verið hefur frá því í októ­ber 2014 þegar með­al­verðið náði að verða 236,43 krónur á lítra.

Samkvæmt tölum sem birt­ast á gasvaktin.is var hæsta verðið á land­inu í gær á fjöl­mörgum stöðvum N1 um landið, þar sem lítr­inn kost­aði 237,1 krónur. Ódýrastur var lítr­inn að venju hjá Costco í Kauptúni þar sem hann kost­aði 199,9 krónur. Þeir sem ætla að versla þar verða þó að vera með­limir í Costco, en það kostar 4.800 krónur á ári.

Eina bens­ín­stöð lands­ins sem kemst nálægt Costco í verði var stöð Atl­antsolíu við Kaplakrika, en hún er næsta bens­ín­stöð við Costco. Þar kost­aði lítr­inn 204,9 krónur í gær en verð á öðrum Atl­antsol­íu­stöðvum er 230,2 krónur.

Munurinn á dýrasta bens­ín­lítr­anum á Íslandi og þeim ódýrasta var því 37,2 krónur, eða 18,6 pró­sent.

Hæst fór bens­ín­verð í 268,1 krónu hér­lendis í apríl 2012.

Hærra heimsmarkaðsverð og veikari króna

Tvennt er ráð­andi í þróun elds­neyt­is­verðs á Íslandi. Annars vegar er það þróun á heims­mark­aðs­verði á olíu, en það hefur hækkað skarpt á und­an­förnum vikum. Frá því á aðfanga­dag jóla 2018, þegar tunnan af hrá­olíu kost­aði 50,47 dali, hefur verðið hækkað í 71,2 dali á tunnu, eða um 41 pró­sent.

Verð á hverjum lítra af hrá­olíu í íslenskum krónum er í dag 53,8 krónur.

Hins vegar fer verðið eftir gengi íslensku krón­unnar, en það hefur hríð­fallið und­an­farna mán­uði gagn­vart dal. Í byrjun sept­em­ber í fyrra kost­aði einn dalur til að mynda 107 krónur. Í dag kostar hann 120 krónur, eða 12,1 pró­sent meira.

Rúmlega helmingur til ríkisins

Íslenska ríkið tekur til sín stóran hluta af hverjum seldum lítra af bens­íni. Þannig fór 20,28 pró­­sent af verði hans um miðjan apríl í sér­­stakt bens­ín­gjald, 12,57 pró­­sent í almennt bens­ín­­gjald og 3,79 pró­­sent í kolefn­is­­gjald. Þá er ótalið að 19,35 pró­­sent sölu­verðs er virð­is­auka­skatt­­ur.

Sam­an­lagt fóru því 56 pró­­sent af hverjum seldum bens­ín­lítra til rík­is­ins vegna gjalda sem það inn­heimtir. Hæstur fór hlutur rík­­is­ins í 60,26 pró­­sent í júlí 2017.

Samkvæmt Bens­ín­vakt Kjarnans, sem birt var á mánu­dag, var hlutur olíu­fé­lags í hverjum seldum lítra um miðjan þennan mánuð um 16 pró­sent. Hann hefur ekki verið lægri á þessu ári og í febr­úar var hann til að mynda 22,83 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bensínvaktin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár