Ríkið fær 65% af hverjum bensínlítra sem Costco selur

Hlut­deild rík­is­ins í bens­ín­verði er nú tæp 60% og hefur aldrei verið meiri. Meðal olíu­fé­lag­anna er hlut­deild rík­is­ins hæst í bens­íni hjá Costco, en þar er hún 65%.

Verð á bensínlítra hefur lækkað um rúmar 9 krónur síðustu fjórar vikur
Verð á bens­ín­lítra hefur lækkað um rúmar 9 krónur síð­ustu fjórar vikur Mynd: EPA

Hlut­deild rík­is­ins í hverjum seldum lítra af olíu hefur aldrei verið meiri, en á síð­ustu fjórum vikum hafa um það bil 60% olíu­tekna runnið til hins opin­bera. Hlut­fallið er hæst í Costco, en þar er hlut­deild rík­is­ins í hverjum bens­ín­lítra 65%. Þetta sést í bens­ín­vakt Kjarnans þar sem skoða má sund­ur­liðað bens­ín­verð og þá kostn­að­ar­liði sem mynda bens­ín­verð hér á landi.

Bens­ín­verð á hvern lítra stendur nú í 186,4 krónum og hefur það lækkað um 9,5 kr. frá því í síð­asta mán­uði. Þar sem flest opin­ber gjöld á bens­íni eru fastar krónu­tölur á hvern lítra hefur hlut­deild rík­is­ins auk­ist sam­hliða verð­lækkun á bens­íni.

Á síð­ustu tíu árum hefur sam­an­lagður hlutur rík­is­ins á tíma­bil­inu breyst mikið, en lægst var hann 43,78% í júlí 2008. Hins vegar mælist hann nú 59,89% og hefur aldrei verið hærri en nú. Mest er hlut­deild rík­is­ins í bens­íni frá Costco, en þar er hún 65% af hverjum seldum lítra.

Senni­legt er að verð­lækk­unin megi að miklu leyti rekja til opnun Costco. Áætlaður hlutur olíu­fé­laga, sem inni­heldur álagn­ingu þeirra auk trygg­inga- og flutn­ings­kostn­aðar hefur snar­lækkað á síð­ustu mán­uðum og stendur nú í rúmum 33 krónum á lítra. Ekki liggja fyrir tölur um álagn­ingu olíu­fé­lag­anna, en gera má ráð fyrir því að hún hafi lækkað hjá þeim í kjöl­far auk­innar sam­keppni frá Costco.

Bens­ín­verð á Íslandi skipt­ist í þrjá meg­in­liði: Algengt inn­kaups­verð, opin­ber gjöld sem ríkið leggur á elds­neyt­is­verð og hlutur olíu­fé­laga. Opinberu gjöldin breyt­ast lítið á milli mán­aða; það er raunar aðeins inn­koma virð­is­auka­skatts­ins sem getur breyst. Virð­is­auka­skatt­ur­inn er hlut­falls­legur skattur á elds­neyt­is­verð en önnur opin­ber gjöld sem leggj­ast á lítra­verðið eru föst krónu­tala sem ákvörðuð er í fjár­lögum. Krónu­gjöldin á bens­ín­verð skipt­ast svo í almenn vöru­gjöld, sér­stök vöru­gjöld og kolefn­is­gjald.

Heims­mark­aðs­verð á olíu lækk­aði um 9% á síð­ustu fjórum vikum, en búist er við því að það muni hækka lít­il­lega á næstu vikum. Hins vegar er mögu­legt að virk sam­keppni með Costco á mark­aðnum muni halda áfram að minnka álagn­ingu íslensku olíu­fé­lag­anna og draga þannig bens­ín­verðið niður.

Lesa má nánar um sund­ur­liðun bens­ín­verðs­ins á vef bens­ín­vakt­ar­innar. Þar eru verð­upp­lýs­ingar um bens­ín­verð teknar saman á 15. dag hvers mán­aðar og hægt að sækja und­ir­liggj­andi gögn og reikni­módel á Excel-sniði. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bensínvaktin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár