Bensínverð lækkað skarpt síðustu mánuði

Um mitt ár í fyrra náði bens­ín­verð á Íslandi sínum hæsta punkti frá árinu 2014. Síðustu mán­uði hefur það hins vegar lækkað nokkuð skarpt og í hverjum mán­uði frá því í októ­ber.

Við­mið­un­ar­verð á bens­íni hefur lækkað um tæp átta pró­sent frá miðjum júlí­mán­uði í fyrra, og fram í jan­úar 2020. Við­mið­un­ar­verðið var 235,2 krónur á lítra í fyrra­sumar en um miðjan jan­úar var það komið niður í 217,1 krónu. Á milli des­em­ber og jan­úar lækk­aði það um 2,7 krónur á lítra.

Þetta kemur fram í nýlega birtri Bens­ín­vakt Kjarnans sem unnin er í sam­vinnu við Bens­ín­verð.is.

Bens­ín­verð var á mjög svip­uðum slóðum um miðjan jan­úar og það var á sama tíma fyrir ári, þegar bens­ín­lítr­inn kost­aði að jafn­aði 215,5 krón­ur. Gengi krónu gagn­vart Banda­ríkja­dal­hækk­aði lít­il­lega á árinu 2019, en það gengi hefur umtals­verð áhrif á þróun elds­neyt­is­verðs hér­lendis þar sem að inn­kaup á elds­neyti fara fram í dölum.

Heims­­mark­aðs­verð á olíu hefur hækkað um tæp 14 pró­sent frá því í byrjun jan­úar 2019. Verðið hefur þó legið frekar niður á við und­an­farið.

Hlutur rík­is­ins í hverjum lítra 56 pró­sent

Íslenska ríkið tekur til sín stóran hluta af hverjum seldum lítra af bens­íni. Þannig fór 20,31 pró­­sent af verði hans um miðjan jan­úar í sér­­stakt bens­ín­gjald, 12,60 pró­­sent í almennt bens­ín­­gjald og 3,80 pró­­sent í kolefn­is­­gjald. Þá er ótalið að 19,35 pró­­sent sölu­verðs er virð­is­auka­skatt­­ur.

[adspot]Sam­an­lagt fór því 121,88 krónur af hverjum seldum lítra til rík­­is­ins, eða 56,14 pró­­sent. Hæstur fór hlutur rík­­is­ins í 60,26 pró­­sent í júlí 2017.

Bens­ín­vakt Kjarn­ans reiknar einnig út lík­­­legt inn­­­kaups­verð á bens­íni út frá verði á lítra til afhend­ingar í New York í upp­­hafi hvers mán­aðar frá banda­rísku orku­­stofn­un­inni EIA og mið­gengi doll­­ars gagn­vart íslenskri krónu í yfir­­stand­andi mán­uði frá Seðla­­banka Íslands.

Í þessum útreikn­ingum kann að skeika nokkru á hverjum tíma­­punkti vegna lag­er­­stöðu, skamm­­tíma­­sveiflna á mark­aði o.s.frv. Nákvæmara væri að miða við verð á bens­íni til afhend­ingar í Rott­er­dam, en verð­­upp­­lýs­ingar þaðan liggja ekki fyrir á opnum gagna­veit­­um. Mis­­munur á verði í New York og Rott­er­dam er þó yfir­­­leitt mjög lít­ill.

Lík­­­legt inn­­­kaups­verð í síð­­­ustu birtu Bens­ín­vakt var 57 krónur á lítra.

Hlut­fall olíu­fé­laga fer lækk­andi

Bens­ín­vaktin reiknar loks út hlut olíu­­­fé­lags í hverjum seldum lítra sem afgangs­­stærð þegar búið er að greina aðra kostn­að­­ar­liði, líkt og farið er yfir hér að ofan. Hlutur olíu­­­fé­laga, þ.e. álagn­ingin sem fer í þeirra vasa, er nú að minnsta kosti 38,38 krónur á hvern seldan bens­ín­lítra. Í maí 2017 fengu olíu­­­fé­lögin, til sam­an­burðar, 41,74 krónur í sinn hlut af hverjum seldum lítra.

Olíu­­­fé­lögin taka nú að minnsta kosti 17,68 pró­­sent af hverjum seldum olíu­­lítra. Það hlut­­fall hefur ekki verið lægra frá því í apríl 2019 þegar það nam 16,3 pró­sent­um. Það náði lægsta punkti sínum í sept­­em­ber 2017 þegar olíu­­­fé­lögin fengu 11,38 pró­­sent í sinn hlut.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bensínvaktin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár