Gamlar flíkur fá nýtt líf

Halldóra Björg­vins­dóttir hannar ný tísku­föt úr gömlum fötum. Hún safnar nú fyrir fram­tak­inu á Karolina fund.

Halldóra Björg­vins­dóttir er 22 ára áhuga­kona um fata­hönnun. Hún vill gefa gömlum og not­uðum fötum nýjan til­gang með því að breyta þeim í ný föt. Fata­iðn­að­ur­inn er ein mest meng­andi atvinnu­grein heims. Jarð­ar­búar fleygja um 13 millj­ónum tonna af fatn­aði á hverju ári og þess vegna vill Halldóra leggja sitt af mörkum í að bæta umhverfið og end­ur­vinna gömul föt sem fólk hefur losað sig við.

Hún hefur nú stofnað Karolina fund verk­efni. Mark­miðið er að stofna net­verslun með fötum sem hún hefur saumað en nú safnar hún fyrir betri sauma­bún­aði.

[adspot]Halldóra segir að hug­myndin að verk­efn­inu hafi kviknað í fyrra­haust, þegar hún lá í veik­indum sem ollu því að hún var mikið rúm­liggj­andi og gat lítið gert. „Þegar mér byrj­aði að batna fór ég að reyna að finna mér við­ráð­an­leg verk­efni og byrj­aði þá að æfa mig á sauma­vél­ina hennar mömmu. Þannig byrj­aði þetta, síðan þá hef ég ekki getað hætt að sauma og er alltaf að reyna að finna mér ný sauma­verk­efni. Ég hef virki­lega fundið mína hillu og elska að nýta gam­alt drasl og breyta því í eitt­hvað flott.“skemmti­legt.“

Hún seg­ist ekki þola að horfa á ónotuð föt uppi í hillu og að hún gæti alltaf ímyndað sér eitt­hvað nýtt og flott­ara sem væri hægt að breyta þeim í. „Ég fók­usa á föt sem fara fólki vel, ég er ekki mikið fyrir föt sem hanga utan á mér eins og lufsur.“

Því sé þemað í vinnu hennar að það sé engin flík eins, enda er eng­inn fjölda­fram­leiðsla í gangi hjá Halldóru. „Hver og ein flík er ein­stök af því að ég geri hverja og eina flík úr öðrum flíkum sem ég fæ gef­ins og hef tak­markað magn af hverju og einu efni. Það er það sem gerir þetta verk­efni mjög skap­andi og skemmti­legt.“

Hér er hægt að styðja við söfn­un­ina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár