Hæstiréttur: MS misnotaði markaðsráðandi stöðu og á að greiða 480 milljónir í ríkissjóð

Tæplega ára­tuga­langri deilu, sem hófst þegar fyrr­ver­andi for­stjóri Mjólku fékk óvart sendan reikn­ing sem hann átti ekki að fá, er lokið. Nið­ur­staða æðsta dóm­stóls lands­ins er að Mjólk­ur­sam­salan hafi brotið alvar­lega gegn sam­keppn­is­lögum.

Mjólkursamsalan er í markaðsráðandi stöðu hérlendis.
Mjólk­ur­sam­salan er í mark­aðs­ráð­andi stöðu hér­lendis. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Hæsti­réttur Íslands komst í dag að þeirri nið­ur­stöðu að Mjólk­ur­sam­salan ehf. (MS) hafi mis­notað mark­aðs­ráð­andi stöðu sína og mis­munað við­skipta­að­ilum sínum með því að að selja hrá­mjólk til vinnslu mjólk­ur­af­urða á hærra verði til keppi­nauta en til eigin fram­leiðslu­deildar og tengdra aðila. MS var gert að greiða alls 480 millj­ónir króna í rík­is­sjóðs vegna þeirra sam­keppn­islaga­brota.

Með þessu stað­festi Hæsti­réttur þá nið­ur­stöðu sem feng­ist hafði í málið bæði í hér­aði og fyrir Lands­réttar. Í dómi Hæsta­réttar segir að telja verði brot MS gegn sam­keppn­is­lögum alvar­legt „auk þess sem það stóð lengi og var aug­ljós­lega mjög til þess fallið að raska sam­keppn­is­stöðu. Þá laut það að mik­il­vægri neyslu­vöru og snerti á þann hátt almenn­ing í land­inu.“

Hægt er að lesa dóm Hæsta­réttar í mál­inu í heild sinni hér.

Komst óvænt yfir reikning

Sam­keppn­is­eft­ir­litið kom­st að þeirri nið­ur­stöðu að MS hefði brotið mjög alvar­lega gegn sam­keppn­is­lögum með athæfi sínu í sept­em­ber 2014. Málið fór þaðan til áfrýj­un­ar­nefndar sam­keppn­is­mála og svo aftur til efn­is­með­ferðar hjá eft­ir­lit­inu. Í ákvörðun Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins frá árinu 2016 sagði að hátt­semi MS, sem seldi Kaup­fé­lagi Skag­firð­inga hrá­mjólk á lægra verði en öðrum á mark­aði, hefði verið til þess fallin að veita þeim veru­legt sam­keppn­is­for­skot.

[adspot]Upp komst um þessa hátt­semi MS fyrir hálf­gerða slysni. Árið 2012 fékk Ólafur M. Magn­ús­son, sem áður stóð í stafni hjá Mjólku, sendan reikn­ing frá MS sem var stíl­aður á Mjólku II þegar hann sjálfur var byrj­aður með KÚ, sem einnig var að kaupa hrá­mjólk af MS.

Þá komst hann að því að MS var að selja KS hrá­mjólk­ina á nokkuð lægra verði en honum sjálf­um. Í kjöl­farið til­kynnti hann það til Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins, sem fór að skoða mál­ið.

Stofn­endur og fyrrum eig­endur Mjólku stefndu MS vegna máls­ins í fyrra­sumar og fóru fram á að MS við­ur­kenni skaða­bóta­skyldu sína gagn­vart þeim.

MS segist hafa verið í góðri trú

Í til­kynn­ingu frá MS vegna máls­ins segir að fyr­ir­tækið hafi verið „í góðri trú og taldi sig vera að vinna í sam­ræmi við lög“ með við­skipta­háttum sínum.

Þegar málið hafi komið upp fyrir tæpum ára­tug síðan hafi skipu­lagi og fram­kvæmd á sam­starfi afurða­stöðva í mjólkur­iðn­aði og sölu á hrá­mjólk til aðila utan sam­starfs­ins verið breytt. „Dóms­nið­ur­staðan snýr því að afmörk­uðum ágrein­ingi um túlkun laga í liðnum tíma, en hefur ekki bein áhrif á starf­sem­ina í dag. Við blasir að hag­ræð­ing í mjólkur­iðn­aði hefur náð þeim mark­miðum sem að var stefnt með laga­breyt­ingum sem heim­il­uðu verka­skipt­ingu og sam­starf afurða­stöðva í mjólkur­iðn­aði. Þær breyt­ingar eru for­senda fram­leiðni­aukn­ingar sem skilað hefur millj­arða króna ávinn­ingi til sam­fé­lags­ins á hverju ári.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Neytendamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár