Stóru lífeyrissjóðirnir hækka vexti á íbúðalánum – Eru enn lægri en hjá bönkunum

Stærstu líf­eyr­is­sjóð­irnir sem lána óverð­tryggt til sjóðs­fé­laga sinna hafa til­kynnt um vaxta­hækk­anir. Þær eru þó hóf­legri en hækk­anir sem flestir bankar réð­ust í og taka ekki gildi fyrr en á næsta ári.

Lífeyrissjóður verzlunarmanna, næst stærsti lífeyrissjóður landsins, tilkynnti um vaxtahækkun í síðustu viku.
Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna, næst stærsti líf­eyr­is­sjóður lands­ins, til­kynnti um vaxta­hækkun í síð­ustu viku. Mynd: Kjarninn

Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna ákvað í síð­ustu viku að hækka vexti á óverð­tryggðum íbúða­lánum sínum um 0,28 pró­sentu­stig í 4,13 pró­sent. Um er að ræða lán fyrir 70 pró­sent af kaup­verði sem að hámarki mega vera 75 millj­ónir króna. Breyt­ingin tekur hins vegar ekki gildi fyrr en 1. febr­úar.

Gildi líf­eyr­is­sjóður greindi svo frá því á fimmtu­dag að stjórn sjóðs­ins hefði einnig ákveðið að hækka óverð­tryggða breyti­lega vexti sjóðs­fé­laga­lána sinna en um 0,25 pró­sent. Breyt­ingin tekur gildi 17. jan­úar og eftir það verða vextir óverð­tryggðra grunn­lána fyrir 65 pró­sent af kaup­verði 4,05 pró­sent en við­bót­ar­lána fyrir næstu tíu pró­sentu­stigum kaup­verðs 4,80 pró­sent. Vextir fyrir 75 pró­sent lán verða eftir breyt­ing­una 4,15 pró­sent.

Tilefni þess­ara hækk­ana er síð­asta stýri­vaxta­hækkun Seðla­banka Íslands í nóv­em­ber, þegar þeir vextir fóru úr 1,5 í tvö pró­sentu­stig. Stýri­vextir hafa alls hækkað um 1,25 pró­sentu­stig frá því í maí.

Bankarnir hafa sópað til sín lánum

Við­skipta­bank­arnir þrír til­kynntu allir um hækkun á óverð­tryggðum vöxtum sínum fyrir síð­ustu mán­aða­mót og þær vaxta­hækk­anir tóku allar gildi skömmu síðar. Því eru við­skipta­vinir Lands­bank­ans, Íslands­banka og Arion banka að greiða vaxta­hækk­un­ina fyrr en við­skipta­vinir áður­nefndra líf­eyr­is­sjóða, sem eru tveir af þremur stærstu sjóðum lands­ins.

­[adspot]Arion banki og Lands­bank­inn hækk­uðu breyti­lega vexti óverð­tryggðra hús­næð­is­lán um 0,4 og 0,35 pró­sentu­stig, upp í 4,29 og 4,20 pró­sent.

Íslands­banki var síð­astur stóru bank­anna til að kynna hækkun, alls um 0,2 pró­sentu­stig, og óverð­tryggðir vextir á sam­bæri­legum lánum við aðra stóra lán­tak­endur hjá bank­anum eru nú 4,15 pró­sent hjá Íslands­banka.

Hlut­­deild banka í úti­stand­andi íbúða­lánum er nú um 70 pró­­sent en var 55 pró­­sent í byrjun árs 2020. Á sama tíma hefur vaxta­munur bank­anna þriggja: Lands­bank­ans, Arion banka og Íslands­banka hald­ist svip­aður en hagn­aður þeirra stór­auk­ist. Þeir högn­uð­ust sam­tals um 60 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2021, sem er meira en þeir hafa hagn­ast innan árs frá árinu 2015.

Óverðtryggðu lánin taka yfir

Eftir skarpa stýri­vaxta­lækkun Seðla­bank­ans í fyrra­vor, sem var við­bragð við kór­ónu­veiru­far­aldr­inum þá ákvað bank­inn líka að afnema tíma­bundið sveiflu­jöfn­un­ar­auka á eigið fé íslensku bank­anna til að auka útlána­getu þeirra.

Fyrir vikið urðu óverð­tryggð lán mun hag­stæð­ari en verð­tryggð og eðl­is­breyt­ing varð á lán­tökum lands­manna. Óverð­tryggðu lánin er enn mun hag­stæð­ari en þau verð­tryggðu í ljósi þess að verð­bólga mælist 4,8 pró­sent um þessar mundir, en ódýr­ustu nafn­vextir á slíkum lánum eru nú vel yfir sex pró­sent.

Hlut­­fall óverð­­tryggðra lána af öllum íbúða­lánum var 27,5 pró­­sent í byrjun árs 2020 en er nú komið yfir 50 pró­­sent. Þau bíta lán­tak­endur strax í budd­una þegar vextir hækka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Neytendamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár