Minni matarsóun en markmiðum ekki náð

Mat­ar­sóun Norð­manna dróst saman um 10 pró­sent á árunum 2015 til 2020. Í því fellst vissu­lega árangur en hann er engu að síður langt frá þeim mark­miðum sem sett hafa verið. Umhverf­is­stofnun Noregs segir enn skorta yfir­sýn í mála­flokknum.

Um þriðjungi allra matvæla sem framleidd eru í heiminum er hent.
Um þriðj­ungi allra mat­væla sem fram­leidd eru í heim­inum er hent. Mynd: Wiki Commons

Um þriðj­ungi allra mat­væla sem fram­leidd eru í heim­inum er hent. Um 10 pró­sent af losun manna á gróð­ur­húsa­loft­teg­undum teng­ist þess­ari miklu mat­ar­sóun. Á þessum stað­reyndum byggir m.a. stefna Sam­ein­uðu þjóð­anna um að helm­inga mat­ar­sóun á heims­vísu fyrir árið 2030. Norsk stjórn­völd og mat­væla­fyr­ir­tæki ákváðu árið 2017 að stefna að þessu mark­miði.

Ný skýrsla um mat­ar­sóun í Noregi árið 2020 sýnir að þótt að málið þok­ist í rétta átt virð­ist leiðin að því að upp­fylla mark­miðið vera tor­fær. Fyrsta skrefið, að draga úr mat­ar­sóun um 15 pró­sent á fimm ára tíma­bili (2015-2020) náð­ist ekki. Á þessum árum tókst þó að minnka mat­ar­sóun um 10 pró­sent að með­al­tali þótt ákveðnir geirar hafi náð settu marki.

[adspot]

Að auki kemur fram í skýrsl­unni að grein­ing á mat­ar­sóun og sam­drætti sé ófull­komin. Þannig skil­greini ákveðnir geirar og fyr­ir­tæki mat­ar­sóun með ólíkum hætti svo dæmi sé tekið.

Talið er að 453.650 tonn af mat hafi endað í norskum sorp­tunnum í fyrra. Það jafn­ast á við að hver Norð­maður hafi hent 84,7 kílóum af mat. Þetta er stór tala en hún er þó um 9,5 pró­sent lægri en árið 2015, segir í skýrsl­unni.

Í skýrsl­unni er farið nánar ofan í hver er að sóa mat. Heimili eru talin hafa hent 261 þús­und tonnum árið 2020, mat­væla­fram­leið­endur 86 þús­und tonnum og mat­vöru­versl­anir um 67 þús­und tonnum.

Inn í þessa grein­ingu vantar hins vegar mat­væla­sóun sem verður í norskum land­bún­aði. Ekki var byrjað að safna gögnum til að meta sóun­ina í þeim geira fyrr en á síð­asta ári.

Hver Íslendingur hendir 90 kílóum af mat árlega

Nýlegar mæl­ingar á mat­ar­sóun á Íslandi benda til þess að hver ein­stak­lingur hendi í kringum 90 kíló af mat árlega. Í hefð­bund­inni fjög­urra manna vísi­tölu fjöl­skyldu er því hent 360 kílóum á ári. Það eru nær 7 kíló af mat á viku. Þetta umfang svipar til hinna Evr­ópu­land­anna.

Í aðgerð­ar­á­ætlun íslenskra stjórn­valda, sem gefin var út í júní 2020 til að stuðla að sam­drætti í losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda fram til 2030, er rætt um áhrif mat­ar­só­unar á losun. Þar er lögð áhersla á að draga eigi úr losun frá úrgangi um 59 pró­sent miðað við árið 2018. Þar sem mat­væli eru stór hluti urð­aðs úrgangs á Íslandi þá mun minni mat­ar­sóun draga úr urðun og til­heyr­andi losun. Þess vegna er það hluti af aðgerðum stjórn­valda að draga úr mat­ar­sóun sam­hliða því að bann við að urða líf­rænan úrgang og urð­un­ar­skattur verði settur á, segir í aðgerða­á­ætl­un­inni. Þar kemur enn­fremur fram að með aðgerðum sem fela í sér að draga mark­visst úr mat­ar­sóun minnki losun koltví­oxíðs frá úrgangi um 14 þús­und tonn til árið 2030.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Neytendamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár