Leigubílaleyfum fjölgar um 100 – Mesta fjölgun frá því að lög voru sett um starfsemina

Inni­við­a­ráð­herra hefur ákveðið að fjölga leigu­bíla­leyfum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og á Suð­ur­nesjum, þar sem alþjóða­flug­völl­ur­inn er, um 17,2 pró­sent. Breyt­ing­arnar eru gerðar til að koma til móts við óskir í sam­fé­lag­inu um meiri þjón­ustu á leigu­bíla­mark­aði.

Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra fer með leigubílamál í ríkisstjórninni.
Sigurður Ingi Jóhanns­son inn­við­a­ráð­herra fer með leigu­bíla­mál í rík­is­stjórn­inni. Mynd: Samsett.

Sigurður Ingi Jóhanns­son inn­við­a­ráð­herra hefur ákveðið að fjölga atvinnu­leyfum fyrir leigu­bíla­akstur um 100 á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og á Suð­ur­nesjum. Með breyt­ing­unni fjölgar úthlut­uðum leyfum úr 580 í 680, eða um 17,2 pró­sent. Um er að ræða mestu fjölgun atvinnu­leyfa í einu skrefi frá því að lög um leigu­bif­reiðar voru sett árið 2001, eða í 21 ár. Úthlutun nýrra atvinnu­leyfa er fyr­ir­huguð á næstu vikum.

Í til­kynn­ingu á vef stjórn­ar­ráðs­ins segir að breyt­ing­arnar séu gerðar til að koma til móts við óskir í sam­fé­lag­inu um meiri þjón­ustu á leigu­bíla­mark­aði. Þar segir enn fremur að Sam­göngu­stofa hafi ekki gert athuga­semdir um fjölgun leyfa á umræddu svæði, en hún á sam­kvæmt lögum að meta til­lögur að breyt­ingum sem þessum. „Á hinn bóg­inn taldi stofn­unin ekki ástæðu til að fjölga atvinnu­leyfum á öðrum tak­mörk­un­ar­svæðum.“

Afturkallaði frumvarp um breytingar á markaðnum

Sigurður Ingi lagði fram frum­varp um leigu­bif­reiða­akstur í febr­úar síð­ast­liðnum sem byggði á til­lögum starfs­hóps ráðu­neytis hans um heild­ar­end­ur­skoðun á reglu­verki í kringum starf­sem­ina. Starfs­hóp­ur­inn var skip­aður 19. októ­ber 2017 og skil­aði til­lögum sínum til ráðu­neyt­is­ins í mars 2018, eða fyrir rúmum fjórum árum. Hann hefur aft­ur­kallað frum­varpið.

[adspot]Þegar Sigurður Ingi mælti fyrir frum­varp­inu í byrjun mars sagði hann til­drög þess vera að snemma árs 2017 hafi Eft­ir­lits­stofnun EFTA (ESA) hafið frum­kvæð­is­at­hugun á leigu­bíla­mark­aðnum á Íslandi og mögu­legum hindr­unum að aðgengi að honum.

ESA tók ákvörðun í nóv­em­ber í fyrra um að stíga fyrsta skrefið í samn­ings­brota­máli gegn Íslandi fyrir að virða ekki EES-reglur um leigu­bíla­mark­að­inn. Í til­kynn­ingu frá eft­ir­lits­stofn­un­inni sagði að núver­andi lög­gjöf tak­marki úthlutun atvinnu­leyfa fyrir leigu­biíla­akstur innan tak­mörk­un­ar­svæða. „Reglur um úthlutun atvinnu­leyfa innan skil­greindra svæða eru ekki hlut­lægar og hygla núver­andi leyf­is­hafa. Þetta felur í sér mögu­legar aðgangs­hindr­anir og hindrar fyrir að nýir aðilar hefji starf­semi í atvinnu­grein­inni. Lög­gjöfin skyldar einnig leyf­is­hafa til að hafa leigu­bif­reiða­akstur sem meg­in­atvinnu og krefst þess að við­kom­andi sé tengdur leigu­bif­reiða­stöð.“

Uber og Lyft ekki á leiðinni

Sigurður Ingi sagði þegar hann mælti fyrir frum­varp­inu sem hann hefur nú aft­ur­kallað að ráða mætti af sam­skiptum við ESA að stofn­unin teldi líkur á því að íslensk lög­gjöf um leigu­bílar fæli í sér aðgangs­hindr­anir sem ekki sam­ræmd­ust alþjóð­legum skuld­bind­ingum íslenska rík­is­ins. „Mark­miðið með frum­varp­inu sem ég mæli hér fyrir er fyrst og fremst að tryggja gott aðgengi að hag­kvæmri, skil­virkri og öruggri leigu­bif­reiða­þjón­ustu fyrir almenn­ing á Íslandi. Þá er frum­varp­inu ætlað að færa lög og reglur um leigu­bif­reiðar til nútíma­legra horfs þar sem öruggar og tryggar sam­göngur eru hafðar að leið­ar­ljósi auk þess að tryggja að íslenska ríkið upp­fylli þjóð­rétt­ar­legar skuld­bind­ingar sínar. Verði frum­varpið að lögum munu þau auka atvinnu­tæki­færi fjöl­breyttra hópa.“

Ef frum­varpið yrði að lögum myndi svoköll­uðu tak­mörk­un­ar­svæði heyra sög­unni til, en þau eru höf­uð­borg­ar­svæðið, Suðurnes, Árborg­ar­svæðið og Akureyri. Svo­kall­aðar far­veitur, á borð við Uber og Lyft, gætu hafið starf­semi hér­lendis en þær þyrftu að upp­fylla sömu skil­yrði og hefð­bundnar leigu­bíla­stöðvar til að fá leyfi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Neytendamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár