Vilja kolefnismerkingu á kjöt og grænmeti

Flutn­ings­menn nýrrar þings­á­lykt­un­ar­til­lögu vilja að neyt­endur geti tekið upp­lýst­ari ákvörðun við kaup á mat­vöru með til­liti til lofts­lags­á­hrifa. Fyr­ir­mynd til­lög­unnar er sótt til Skand­in­avíu.

Flutningsmenn tillögunnar, þeir Þorgrímur, Sigurður Páll og Ásmundur Friðriksson, vilja auðvelda neytendum að nálgast upplýsingar um umhverfisáhrif matvælanna í innkaupakörfunni.
Flutn­ings­menn til­lög­unnar, þeir Þor­grímur, Sigurður Páll og Ásmundur Frið­riks­son, vilja auð­velda neyt­endum að nálg­ast upp­lýs­ingar um umhverf­is­á­hrif mat­væl­anna í inn­kaupa­körf­unni. Mynd: Samsett/Kjarninn

Lögð hefur verið fram þings­á­lykt­un­ar­til­laga sem snýr að því að upp­runa­merk­ingar verði settar á kjöt­vörur með skýr­ari hætti en nú er. Lagt er til að á merk­ing­unum komi fram upp­lýs­ingar um kolefn­is­spor vegna flutn­ings, bæði á kjöt­vörum sem og á garð­yrkju­af­urðum sem ætl­aðar eru til mann­eldis.

Fram kemur í grein­ar­gerð með til­lög­unni að hún hafi tví­vegis verið lögð fram en ekki náð fram að ganga. Hún er nú lögð fram óbreytt en flutn­ings­menn til­lög­unnar eru þeir Þor­grímur Sig­munds­son og Sigurður Páll Jónsson, sitj­andi vara­þing­menn úr Mið­flokki, og Ásmundur Frið­riks­son úr Sjálf­stæð­is­flokki.

„Betur má ef duga skal“

Í grein­ar­gerð með til­lög­unni er vísað í skýrslu milli­ríkja­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna um lofts­lags­breyt­ingar (IPCC) sem varpar ljósi á þær áskor­anir sem mann­kynið stendur frammi fyrir í lofts­lags­málum. „Þar kemur fram að bregð­ast þurfi við lofts­lags­breyt­ingum strax og vinna mark­visst að því að afstýra því að með­al­hiti á jörð­inni hækki um meira en 1,5 gráður með hörmu­legum afleið­ingum fyrir líf­ríkið,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Umhverf­is­ráð­herra hefur lagt fram aðgerða­á­ætlun í lofts­lags­málum til árs­ins 2030 sem hefur það að mark­miði að draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda og stuðla að kolefn­is­bind­ingu svo Ísland geti staðið við mark­mið Par­ís­ar­sam­komu­lags­ins til 2030. Að mati flutn­ings­manna þarf engu að síður að velta við hverjum steini í bar­átt­unni. „Stefnan er metn­að­ar­full en betur má ef duga skal og nauð­syn­legt að skoða alla kosti við að minnka kolefn­is­sporið.“

Sérstök áhersla er lögð á að neyt­endur geti fengið upp­lýs­ingar um kolefn­is­spor inn­fluttra mat­væla. „Kjöt­vörur eru fluttar hingað hvaðanæva úr heim­inum með til­heyr­andi umhverf­is­á­hrifum. Ljóst er að kolefn­is­spor kjöts sem flutt er t.d. frá Nýja Sjálandi er mun stærra en kjöts sem er flutt í búðir frá fram­leið­endum innan lands. Á síð­ari árum hafa kröfur neyt­enda um upp­lýs­ingar um vöru stór­auk­ist, t.d. um inni­hald vöru og upp­runa hennar. Flutn­ings­menn telja nauð­syn­legt að neyt­endur fái upp­lýs­ingar um kolefn­is­spor vör­unnar, þ.e. hve mikil lofts­lags­á­hrif fram­leiðsla og flutn­ingur á við­kom­andi vöru hefur haft.“

Nýsjálenskt kjöt mengar minna hingað komið en íslenskt

Mikið hefur verið rætt og ritað um áhrif flutn­ings á kolefn­is­spor mat­væla. Hag­fræði­pró­fess­or­inn Þórólfur Matth­í­as­son greindi sér­stak­lega kolefn­is­spor íslensks lamba­kjöts og bar það saman við kolefn­is­spor nýsjá­lensks lamba­kjöts með flutn­ingi árið 2019, sem er einmitt dæmið sem nefnt er í grein­ar­gerð þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unnar. Með því að styðj­ast fyrir fyr­ir­liggj­andi gögn komst Þórólfur að því að kolefn­is­spor lamba­kjöts frá Nýja-Sjálandi hingað komið sé á bil­inu 21,5 til 23 kíló koldí­oxíðs á hvert bein­laust kjöt­kíló, þar af losar flutn­ingur hvers kílós frá Eyjaálfu um fjórum kílóum af koldí­oxíði. Til sam­an­burðar var kolefn­is­spor íslensks lamba­kjöts 28,6 á hvert kíló, og það með beini.

Í grein sem Þórólfur ritar í Bænda­blaðið í októ­ber árið 2019 þar sem hann gerir grein fyrir útreikn­ingum sínum segir hann að reynt hafi verið að gera sam­an­burð­inn sem hag­stæðastan íslenska kjöt­inu. „Þegar tekið er til­lit til afrétt­ar­beitar og leið­rétt fyrir beina­málið þá kemur í ljós að sót­spor íslenskrar lamba­kjöts­fram­leiðslu er nálægt 50 kílóum af CO2-ígildum á kíló af bein­lausu lamba­kjöti. Sótspor nýsjá­lensks lamba­kjöts, komið til Íslands, er undir 25 kílóum af CO2-ígildum á hvert kíló bein­lauss bita,“ ritar Þórólfur.

Lítil losun frá sjóflutningum en flugið vandar málið

Mat­ar­spor Eflu er tól sem hefur rutt sér til rúms í mötu­neytum lands­ins þar sem reikna má út og bera saman kolefn­is­spor ólíkra mál­tíða. Í Mat­ar­spori er til dæmis hægt að reikna hlut flutn­inga í kolefn­is­spor­inu með því að færa inn upp­lýs­ingar um frá hvaða heims­álfu mat­vælin koma og hvort þau voru flutt með skipi eða flug­vél. Á sér­stakri síðu sem geymir algengir spurn­ingar og svör um útreikn­inga í Mat­ar­spori má finna ein­hverja umfjöllun um áhrif flutn­inga á kolefn­is­sporið þó sú umfjöllun sé sam­tvinnuð umfjöllun um mun kolefn­is­spors kjöts og græn­metis.

„Hvernig getur inn­flutt græn­meti verið umhverf­is­vænna en inn­lent kjöt?“ er til að mynda spurt í einni algengri spurn­ingu á vef Eflu. Í svar­inu sem er birt með spurn­ing­unni segir að mun­ur­inn á kolefn­is­spori kjöts og græn­metis sé yfir­leitt það mik­ill að hann er meiri en kolefn­is­spor vegna inn­flutn­ings með sjó­flutn­ingum. Það eigi aftur á móti við um með­al­tal gilda í Mat­ar­spori en sé ekki algilt fyrir alla fram­leið­endur kjöts og græn­metis.

Málið vand­ast aftur á móti þegar græn­meti og ávextir eru fluttir inn með flugi, en þá hækkar los­unin umtals­vert.

Svipað merkingarkerfi sett á fót í Skandinavíu

Þessar línur vilja flutn­ings­menn þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unnar skýra fyrir neyt­endum því til­lagan nær einnig til græn­metis, eða garð­yrkju­af­urða til mann­eldis eins og það er orðað í til­lög­unni. „Á síð­ari árum hafa kröfur neyt­enda um upp­lýs­ingar um vöru stór­auk­ist, t.d. um inni­hald vöru og upp­runa hennar. Flutn­ings­menn telja nauð­syn­legt að neyt­endur fái upp­lýs­ingar um kolefn­is­spor vör­unnar, þ.e. hve mikil lofts­lags­á­hrif fram­leiðsla og flutn­ingur á við­kom­andi vöru hefur haft. Þar með getur neyt­andi tekið upp­lýsta ákvörðun og valið umhverf­is­vænni kost kjósi hann svo.“

Athygli er vakin á sam­bæri­legri upp­lýs­inga­gjöf í Skand­in­avíu en ein af aðgerðum í aðgerða­á­ætlun dönsku rík­is­stjórn­ar­innar í lofts­lags­málum er að hefja vit­und­ar­vakn­ingu meðal almenn­ings um áhrif mat­væla­fram­leiðslu á lofts­lag. Það verður gert með því að merkja mat­væli með lím­miða þar sem fram koma áhrif vör­unnar á lofts­lagið. Í Svíþjóð hafa sænsku bænda­sam­tökin látið útbúa merk­ing­ar­kerfi fyrir mat­vörur sem sýnir hvaða áhrif fram­leiðslan hefur á lofts­lag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Neytendamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár