Þjóðin gráðug í grasker – en borðar þau þó fæst

Þau sjást varla allt árið en í októ­ber er ekki hægt að snúa sér við án þess að koma auga á þessi app­el­sínu­gulu flykki. Árlega eru flutt inn tugir tonna af þeim þótt þau endi fæst í iðrum Íslend­ing­ana sem elska að skera út í þau.

Hefð er komin fyrir því að skera út í grasker í aðdraganda hrekkjavökunnar hér á landi.
Hefð er komin fyrir því að skera út í grasker í aðdrag­anda hrekkja­vök­unnar hér á landi. Mynd: EPA

Í fyrra voru rúm­lega 243 tonn flutt inn af graskerjum og flösku­kerjum, líkt og toll­flokk­ur­inn heitir í tölum Hagstofu Íslands. Í októ­ber einum saman voru tonnin 123 sem skýrist auð­vitað af hrekkja­vök­unni sem aðeins á örfáum árum hefur fest sig í sessi meðal margra Íslend­inga.

Árið 2019 voru flutt inn tæp­lega 193 tonn af þessum app­el­sínu­gulu hlussum sem eru víst ávöxtur en ekki græn­meti í plöntu­fræð­unum. Í fyrra jókst inn­flutn­ing­ur­inn því um 25 pró­sent á milli ára. Ef litið er aðeins til inn­flutn­ings í októ­ber jókst hann um 27 pró­sent á milli áranna 2019 og 2020.

[adspot]

Á fyrstu níu mán­uðum þessa árs hafa verið flutt inn 95 tonn en það segir auð­vitað ein­göngu örlítið brot af sög­unni: Enn á eftir að taka saman tölur fyrir sjálfan hrekkja­vöku­mán­uð­inn. Ef aukn­ingin verður 25 pró­sent líkt og hún var milli áranna á undan hafa hvorki meira né minna en 155 tonn af graskerjum verið flutt inn. En þetta er auð­vitað aðeins til­gáta enn sem komið er byggð á því að app­el­sínu­gulu ferlíkin eru ekki aðeins fyr­ir­ferð­ar­mikil í versl­unum heldur einnig á sam­fé­lags­miðlum – oft við hlið stoltra útskurð­ar­meist­ara nú eða með log­andi kerti inn í.

En svo fer þetta auð­vitað að lang mestu leyti allt saman í ruslið. Og á þeim stöðum þar sem líf­rænn úrgangur er ekki flokk­aður, sem er staðan víð­ast, þá enda bæði útskornu hrekkja­vöku­höf­uðin og gumsið innan úr þeim með almennu heim­il­issorpi.

Grasker eru auð­vitað matur. Þau eiga rætur að rekja til Mið-Ameríku þótt þau sem þar uxu villt fyrir þús­undum ára eigi lítið sam­eig­in­legt í útliti með hinum ofvöxnu graskerjum nútím­ans. Þau grasker sem við þekkjum hafa verið rætkuð í Norður-Ameríku í aldir og fólk sem þar bjó, löngu áður en Evr­ópu­menn létu þar sjá sig, nýtti þau til matar.

Grasker hafa verið flutt inn til Íslands frá 26 löndum síð­ustu árin en mest af þeim kemur frá nágrönnum okkar; Dönum, Bretum og Þjóð­verjum. Í Bret­landi er um 15 milljón grasker ræktuð og seld árlega en ætla má að rúm­lega helm­ingur þeirra sé ekki étinn heldur með­höndl­aður eins og farið er að gera hér á landi: Til skrauts til skamms tíma. Fram­leiðslan hefur sprungið út í Þýska­landi á síð­ustu árum, hún tvö­fald­að­ist til að mynda milli áranna 2006 og 2016. Mörg eru þau ræktuð til matar en flest til skrauts og frægra graskers­sýn­inga þar sem stærsta og furðu­leg­asta graskerið fær vinn­ing­inn.

Þau grasker sem seld eru í versl­unum í októ­ber, hér á landi sem ann­ars staðar, eru í seinni tíð fyrst og fremst ræktuð til að sinna hlut­verki sínu á hrekkja­vöku og eru mjög vatns­mikil og gróf. Þau grasker sem fólk borðar helst eru fín­legri og bragð­meiri.

En app­el­sínu­gulu risarnir eru þó ætir. Ein­faldasta leiðin til að nýta inn­volsið úr þeim er að frysta það, með steinum og öllu, og nota í græn­met­is­soð sem aftur má svo nota til að gera súpur. Þeir sem vilja ganga lengra geta bakað úr grasker­inu eða gert bökur. Ágætt er að hafa í huga að grasker spretta ekki úr engu. Það tekur um þrjá mán­uði að rækta eitt grasker og til þess þarf nær­ing­ar­efni, vatn og nóg pláss.

Þótt flestir séu eflaust búnir að henda gums­inu má alltaf hugsa til næsta árs. Til að minnka mat­ar­sóun er hér t.d. listi yfir fjórtán upp­skriftir. Þær eru auð­vitað mun fleiri á net­inu og finn­ast með ein­földu googli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Neytendamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár