100 þúsund tonn af auglýsingapésum

Mán­að­ar­lega fá Danir sam­tals átta til níu þús­und tonn af aug­lýs­ingapésum inn um bréfalúg­una. Stór hluti pésanna fer óles­inn í ruslið. Nú ræðir danska þingið breyt­ingar á reglum þannig að borg­ar­arnir þurfi að biðja um að fá pés­ana.

Um það bil helmingur Dana afþakkar fjölpóst.
Um það bil helm­ingur Dana afþakkar fjöl­póst. Mynd: Postnord

Líklega kann­ast flestir við aug­lýs­ingapé­s­ana, fjöl­póst­inn svo­nefnda, sem ýtt er gegnum póst­lúg­una, stundum oft í viku. Í mörgum löndum er ára­tuga­hefð fyrir aug­lýs­ingum af þessu tagi en hér á Íslandi er þetta fyr­ir­bæri ekki ýkja gam­alt. Pésa­flóðið náði hámarki á árunum fyrir banka­hrunið og í 100 ára afmæl­is­riti póst­manna árið 2019 var sagt frá við­tali og frétt sem birt­ist í dag­blaði árið 2007. Í við­tal­inu var fjallað um póst­kassa, sem séu yfir­fullir af aug­lýs­ingapésum og vand­ræði póst­burð­ar­fólks við að koma bréfum í kass­ana.

Árið 2020 hætti póst­ur­inn að dreifa svo­nefndum frí­pósti á suð­vest­ur­horn­inu en þá hafði dregið veru­lega úr bæk­linga­flóð­inu. Í áður­nefndu við­tali árið 2007 nefndi við­mæl­and­inn, póst­maður, að vanda­málið með yfir­fulla póst­kassa sé síður en svo sér­ís­lenskt fyr­ir­bæri og vitnar í frétt danska dag­blaðs­ins Politi­ken frá sama ári. Þar lýsti við­mæl­andi blaðs­ins nákvæm­lega sama vanda­mál­inu, póst­kass­arnir gætu engan veg­inn rúmað alla bæk­ling­ana.

Átta þúsund tonn á mánuði

Skrifari þessa pistils bjó um átta ára skeið í Kaup­manna­höfn, 2010- 2018, í stóru íbúða­blokka­hverfi. Vikulega, oft­ast á mið­viku­dögum, stundum á fimmtu­dögum, kom sendi­bíll hlað­inn aug­lýs­ingapésum á bíla­stæði við blokk­irnar. Hópur ungra manna tók svo til við að hlaða bæk­lingum á stórar hand­kerrur, sem fylgdu bílnum. Síðan voru kerr­urnar dregnar að hús­unum og pilt­arnir keppt­ust við að dreifa pés­unum í póst­kassa í hús­unum. Allt gekk þetta hratt fyrir sig, tím­inn er jú pen­ingar! Og líkt og árið 2007 var engin leið að koma öllum pés­unum í póst­kass­ana og því iðu­lega skil­inn eftir stafli á gólf­inu innan við aðal­inn­gang­inn.

Pistla­skrif­ari var, satt að segja, undr­andi á öllu þessu bæk­linga­flóði. Laus­legar athug­anir, á net­inu, leiddu í ljós að í hverri ein­ustu viku árs­ins er í Danmörku dreift aug­lýs­ingapésum sem sam­tals vega rúm­lega tvö þús­und tonn. Það gerir sam­tals um 100 þús­und tonn af pappír á hverju ári.

Mörgum hefur blöskrað

100 þús­und tonn af pappír er stór haugur. Væri þó enn stærri ef ekki væri hin svo­kall­aða „Nej tak ordn­ing“. Í henni felst að eig­andi póst­kassa getur sett sér­stakt merki, sem á stendur „Nej tak“ á kass­ann þar sem aug­lýs­inga­póstur er afþakk­aður. Þessi „Nej tak ordn­ing“ hefur verið við lýði um langt ára­bil og um það bil helm­ingur allra póst­kassa í Danmörku er nú merktur með þessum hætti. Fyrir tíu árum var nei takk mið­inn á sjö­unda hverjum póst­kassa þannig að breyt­ingin er mikil. Rétt er að nefna að einnig er til merk­ing sem nefn­ist „Nej tak+“. Sú merk­ing þýðir að sá sem hefur slíkt merki á póst­kass­anum hefur valið, og skráð hjá dreif­ing­ar­fyr­ir­tæk­inu og póst­inum, hvaða pésa hann vill fá í kass­ann, ásamt kannski hverfis- eða svæð­is­blöðum.

Coop reið á vaðið

Árið 2016 til­kynnti Coop, ein stærsta versl­ana­sam­steypa Dan­merkur, að innan tveggja ára yrði prentun og dreif­ingu aug­lýs­ingapésa á vegum fyr­ir­tæk­is­ins hætt, fram­vegis yrðu þeir á net­inu. Þessi ákvörðun vakti athygli og skoð­anir um hana skiptar. Samkvæmt könn­unum var það einkum eldra fólk sem vildi halda í prent­uðu aug­lýs­ingapé­s­ana sem, vel að merkja, eru oft tugir blað­síðna. For­svars­menn Coop sögðu tím­ana ein­fald­lega breytta, í dag væri allt á net­inu. Fleiri fyr­ir­tæki hafa fylgt for­dæmi Coop þótt enn láti mörg fyr­ir­tæki, einkum versl­anir prenta, og dreifa bæk­ling­unum.

Nei eða já

Síð­ast­lið­inn þriðju­dag var í danska þing­inu rædd (før­stebehand­let) þings­á­lykt­un­ar­til­laga frá Sós­íal­íska þjóð­ar­flokknum, SF. Tillagan, verði hún sam­þykkt, gerir ráð fyrir þeirri grund­vall­ar­breyt­ingu að fram­vegis þurfi Danir að setja svo­kallað já merki á póst­kass­ann vilji þeir fá aug­lýs­inga­póst. Eins og áður sagði er í dag hægt að hafna því að fá aug­lýs­inga­póst, með sér­stöku nei merki. Kannanir sýna að margir sem ekki eru með nei merkið kæra sig þó ekk­ert um aug­lýs­ing­arnar og henda pés­unum beint í ruslið. Með því að setja já merki (ég vil aug­lýs­ing­arnar) á póst­kass­ann fá þeir einir aug­lýs­ingapé­s­ana, sem kæra sig um þá, segir tals­maður SF.

Þessi hug­mynd er reyndar ekki ný. Í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórnar Helle Thorning-Schmidt (2011-2015) var kveðið á um að kanna mögu­leik­ana á því fyr­ir­komu­lagi, að setja já merki á póst­kassa. Þá vildi fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins ekki sam­þykkja slíka merk­ingu. Rökin voru þau að slíkt fyr­ir­komu­lag myndi hindra fyr­ir­tæki innan ESB í að kynna vörur sínar fyrir Dönum, væri við­skipta­hindrun, eins og það var orðað. Þá voru umhverf­is­sjón­ar­mið ekki talin jafn mik­il­væg og þau eru í dag.

Já merkið leyfilegt í Amsterdam

Ein meg­in­á­stæða þess að þing­menn SF telja að ESB muni ekki standa í vegi fyrir já merk­ing­unni í Danmörku er sú að slík merki eru við lýði í Amster­dam, með sam­þykki ESB. Þar voru já merkin tekin í notkun í árs­byrjun 2018. Þá hafði Hér­aðs­dómur í Amster­dam úrskurðað að heim­ilt væri að nota já merkið. Rökin voru umhverf­is­sjón­ar­mið. Hæsti­réttur Hollands er með málið til með­ferðar og reiknað er með að dómur verði kveð­inn upp 2. júlí næst­kom­andi.

Neytendasamtökin hlynnt já merkingunni

Dönsku neyt­enda­sam­tökin Tænk hafa árum saman verið hlynnt já merk­ing­unni. Lög­fræð­ingur sam­tak­anna segir að sam­tökin líti svo á að eig­andi póst­kassa eigi að ráða, og sam­þykkja hvað í hann fari.

Í fylgi­skjölum með þings­á­lykt­un­ar­til­lögu SF kemur fram að sam­kvæmt tölum dönsku Umhverf­is­stofn­un­ar­innar séu aug­lýs­ingapésar 35% af öllum pappír og pappa sem frá dönskum heim­ilum kemur.

Eins og nefnt var framar í þessum pistli er þings­á­lykt­un­ar­til­laga SF um breyttar merk­ingar póst­kassa nú til með­ferðar í danska þing­inu. Nái hún fram að ganga þýðir það lík­lega mikla breyt­ingu hjá þeim sem útbúa, prenta og dreifa aug­lýs­ingapés­unum. En þangað til nið­ur­staða þings­ins liggur fyrir detta áfram tvö þús­und tonn af aug­lýs­inga­pappír í danska póst­kassa í viku hverri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Neytendamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár