Lækkun á bensínlítranum á Íslandi miklu minni en lækkun á innkaupaverði olíufélaga

Olíu­fé­lögin hafa aldrei tekið fleiri krónur til sín af hverjum seldum lítra af bens­íni. Skörp lækkun varð á bens­ín­lítr­anum milli mán­aða, þegar við­mið­un­ar­verðið lækk­aði um rúm­lega sex krónur á lítra. Inn­kaupa­verð olíu­fé­lag­anna um tæp­lega 26 krónur.

Það er sannarlega ekki ókeypis að fylla bílinn af bensíni um þessar mundir þótt verðið hafa lækkað.
Það er sann­ar­lega ekki ókeypis að fylla bíl­inn af bens­íni um þessar mundir þótt verðið hafa lækkað. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Við­mið­un­ar­verð á bens­íni lækk­aði um 6,3 krónur milli mán­aða og var 315,8 krónur á lítra um miðjan des­em­ber. Við það gekk að mestu til baka sú hækkun sem orðið hafði á bens­ín­lítr­anum frá miðjum sept­em­ber og til 15. nóv­em­ber, sem var um sjö krónur. Það sem af er þessu ári hefur verðið hækkað um rúm­lega 18 pró­­sent.

Frá því að verð á bens­ín­lítra náði nálægt hámarki í júní í sumar hefur verðið lækkað um 25,2 krónur, eða 7,3 pró­sent. Líklegt inn­kaupa­verð olíu­fé­lag­anna á lítra af bens­íni hefur á sama tíma lækkað mun meira. Það er í dag 94,9 krónur og hefur lækkað um 25,6 krónur frá því um miðjan nóv­em­ber. Ef horft er aftur til miðs júní­mán­aðar þá hefur inn­kaupa­verðið lækkað um 54,3 krónur á lítra. Inn­kaupa­verðið hefur því lækkað um rúm­lega tvö­falda þá krónu­tölu sem útsölu­verð á bens­ín­lítra hefur lækkað um síð­ustu sjö mán­uði.

Hlutur olíu­fé­laga í hverjum seldum lítra óx gríð­ar­lega á milli nóv­em­ber og des­em­ber­mán­aða, eða um 43 pró­sent. Hann er nú rúm­lega 71 króna af hverjum seldum lítra og hefur aldrei verið hærri í krónum talið.

Þetta má lesa út úr nýj­­­­­­ustu bens­ín­vakt Kjarn­ans.

Heimsmarkaðsverðið á niðurleið

Útreikn­ingar bens­ín­vakt­­­ar­inn­­­ar á inn­kaupa­verði á olíu ákvarð­­­ast einkum ann­­­ars vegar af heims­­­mark­aðs­verði á olíu og hins vegar gengi krón­unnar gagn­vart Banda­­ríkja­­dal. Lík­­­legt inn­kaupa­verð fór í fyrsta sinn síðan í febr­­­ú­­­ar, áður en stríðið í Úkra­ínu skall á, undir 100 krónum á lítra í sept­em­ber­mán­uði.

[adspot]Verðið í júlí var það hæsta sem það hefur nokkru sinni verið í krónum talið, eða 341,9 krónur á lítra. Það hafði þá hækkað um 71 pró­­­­sent á tveimur árum og um 28 pró­­­­sent frá því í jan­ú­­­­ar. Upp­­­­­­­­­­­reiknað miðað við þróun vísi­­­­­­tölu neyslu­verðs á bens­ín­lítr­inn þó nokkuð í land með að ná sínu hæsta verði, en það náð­ist í apríl 2012.

Verð­­­­lækk­­­­unin sem varð síðsum­­­ars var þó ekki í neinum takti við þá þróun sem hefur orðið á heims­­­­mark­aði með olíu, en heims­­­­mark­aðs­verðið á tunnu af hrá­olíu hafði lækkað um tæp­­­lega 30 pró­­­­sent milli júní og miðs sept­­em­ber á meðan að verðið lækk­­aði um 7,5 pró­­­­sent hér­­­­­­­lend­­­­is.

Síðla í sept­­em­ber fór heims­­mark­aðs­verðið að lækka nokkuð skarpt en hækk­aði á ný þegar leið á októ­ber­mánuð og fram í byrjun nóv­em­ber. Síð­ast­lið­inn mánuð hefur það svo fallið skarpt, eða um næstum ell­efu pró­sent.

Hlutur olíu­­­fé­laga eykst gríðarlega milli mánaða

Hlutur olíu­fé­laga í hverjum seldum lítra óx gríð­ar­lega á milli mán­aða, eða um 43 pró­sent. Hann var 71,1 króna um miðjan des­em­ber. Alls taka olíu­­­­­fé­lögin nú til sín 22 pró­­­sent af sölu­and­virði hvers selds lítra. Hlut­­falls­­lega tóku þau mest af hverjum lítra, 30,3 pró­­sent, í apríl 2020, þegar bens­ín­verð var hærra en nokkru sinni í Íslands­­­sög­unni. Það er eina skiptið sem hlutur olíu­­­fé­laga hefur farið yfir 30 pró­­sent síðan í nóv­­em­ber 2008.

Hlutur olíu­fé­lag­anna í hverjum seldum lítra jókst frá maí og fram í sept­em­ber. Hann rúm­lega tvö­fald­að­ist í krónum talið, en fór síðan lækk­andi á ný þar til nú.

Að hluta til má skýra þessa breyt­ingu með því að olíu­­­­­fé­lögin voru ekki að velta hækk­­­­­unum á heims­­­­­mark­aðs­verði að fullu út í verð­lag­ið framan af ári. Með því héldu þau að ein­hverju leyti aftur af hækk­­­unum og minn­k­uðu hagnað sinn af elds­­­neyt­is­­­sölu. Þetta breytt­ist í sum­ar. Sam­hliða því að inn­kaupa­verðið lækk­aði kropp­uðu olíu­­­­­fé­lögin til baka þá álagn­ingu sem þau gáfu eftir fyrr á árinu 2022.

Álögur rík­­­is­ins hækka á næsta ári

Hlutur rík­­­­­­is­ins í hverjum seldum bens­ín­lítra, sem sam­anstendur af virð­is­auka­skatti, almennu og sér­­­­­­­­­­­stöku bens­ín­gjaldi og kolefn­is­gjaldi er nú 150,52 krónur á hvern lítra af seldu bens­íni. Það þýðir að 47,7 pró­­­­­­sent af hverjum lítra fer í rík­­­­­­is­­­­­­sjóð.

Bif­­­reið­­­ar­eig­endur geta búist við því að greiða meira í rík­­­is­­­sjóð á næsta ári en þeir gera í ár. Sam­­­kvæmt fjár­­­laga­frum­varpi næsta árs er áætl­­­­­­að að tekjur rík­­­­­­is­­­­­­sjóðs vegna vöru­gjalda af öku­tækjum auk­ist um 2,7 millj­­­­arða króna og verði 8,2 millj­­­­arðar króna á næsta ári.

Vöru­­­­gjöld af bens­íni aukast um 440 millj­­­­ónir króna milli ára og verða 9,3 millj­­­­arðar króna, kolefn­is­­­­gjöld aukast um 560 millj­­­­ónir og verða 7,5 millj­­­­arðar króna og olíu­­­­gjaldið eykst um tæpan millj­­­­arð króna og verður rúm­­­­lega 13,5 millj­­­­arðar króna.

Kíló­­­­metra­­­­gjald mun skila rúm­­­­lega 1,6 millj­­­­arð króna í rík­­­­is­­­­sjóð og bif­­­­reiða­­­­gjöld 10,6 millj­­­­örðum króna.

Gögn og aðferða­fræði

Hér að ofan er birt nið­­ur­­staða útreikn­inga og áætl­­unar á því hvernig verð á lítra af bens­íni skipt­ist milli aðila í fram­­setn­ingu GRID.

  • Við­mið­un­­ar­verð er fengið frá hug­­bún­­að­­ar­­fyr­ir­tæk­inu Seið ehf. sem meðal ann­­ars heldur úti síð­­unni Bens­ín­verð.is og fylgst hefur með bens­ín­verði á flestum bens­ín­­stöðum lands­ins dag­­lega síðan 2007. Miðað er við næst­lægstu verð­­tölu í yfir­­lit­inu til að forð­­ast að ein­hverju leyti áhrif tíma­bund­innar verð­­sam­keppni á allra lægsta verð. Við­mið­un­­ar­verðið er þó með lægstu verðum og sýnir þar með lægri hlut olíu­­­fé­lags­ins en reikna má með að raunin sé með­­al­talið af öllu seldu bens­íni á land­inu.
  • Hlutur rík­­is­ins liggur ljós fyrir út frá sköttum sem eru ýmist fastir og hlut­­falls­­leg­­ir. Upp­­lýs­ingar um breyt­ingar á skatta­lögum eru fengnar frá Við­­skipta­ráði sem fylgst hefur með slíkum breyt­ingum um ára­bil.
  • Lík­­­legt inn­­­kaupa­verð er reiknað útfrá verði á bens­íni til afhend­ingar í New York-höfn í upp­­hafi mán­aðar frá banda­rísku orku­­stofn­un­inni EIA og mið­­gengi doll­­ars gagn­vart íslenskri krónu í yfir­­stand­andi mán­uði frá Seðla­­banka Íslands. Í þessum útreikn­ingum kann að skeika nokkru á hverjum tíma­­punkti vegna lag­er­­stöðu, skamm­­tíma­­sveiflna á mark­aði o.s.frv. Nákvæmara væri að miða við verð á bens­íni til afhend­ingar í Rott­er­dam, en verð­­upp­­lýs­ingar þaðan liggja ekki fyrir á opnum gagna­veit­­um. Mis­­munur á verði í New York og Rott­er­dam er þó yfir­­­leitt mjög lít­ill.
  • Hlutur olíu­­­fé­lags er loks reikn­aður sem afgangs­­stærð enda hald­­góðar upp­­lýs­ingar um ein­staka kostn­að­­ar­liði olíu­­­fé­lag­anna ekki opin­ber­­ar. Hafa ber í huga að þar sem við­mið­un­­ar­verð er með lægstu verðum á hverjum tíma er þessi liður ef til vill ein­hverju hærri sé litið til heild­­ar­við­­skipta með bensín á Íslandi.

Verð­­upp­­lýs­ingar mið­­ast við verð­lag hvers tíma. Gögnin eru upp­­­færð mán­að­­ar­­lega í kringum 15. hvers mán­að­­ar. Fyr­ir­vari er gerður um skekkju­­mörk sem þó ættu í mesta lagi að nema fáeinum krónum á útreikn­aða liði. Ábend­ingar um vill­­ur, lag­­fær­ingar og betrumbætur skal senda á gogn@kjarn­inn.is og er tekið fagn­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bensínvakt

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár