Bensínlítrinn hækkað um sjö krónur á tveimur mánuðum og kostar nú 322 krónur

Bens­ín­verð hefur hækkað um tæp­lega 21 pró­sent það sem af er ári. Ríkið tekur til sín tæp­lega helm­ing af hverjum seldum lítra í allskyns gjöld. Til stendur að auka álögur á bif­reiða­eig­endur á næsta ári til að afla millj­arða í nýjar tekjur.

Við­mið­un­ar­verð á bens­íni hækk­aði um 1,9 krónur milli mán­aða og var 322,1 krónur á lítra um miðjan nóv­em­ber. Frá miðjum sept­em­ber­mán­uði hefur það hækkað um næstum sjö krónur á lítra og er nú 320,20 krón­ur. Það sem af er þessu ári hefur verðið hækkað um tæp 21 pró­sent.

Verðið í júlí var það hæsta sem það hefur nokkru sinni verið í krónum talið, eða 341,9 krónur á lítra. Það hafði þá hækkað um 71 pró­­­sent á tveimur árum og um 28 pró­­­sent frá því í jan­ú­­­ar. Upp­­­­­­­­­reiknað miðað við þróun vísi­­­­­tölu neyslu­verðs á bens­ín­lítr­inn þó nokkuð í land með að ná sínu hæsta verði, en það náð­ist í apríl 2012.

Þetta má lesa út úr nýj­­­­­ustu bens­ín­vakt Kjarn­ans.

Verð­­­lækk­­­unin sem varð síðsum­ars var þó ekki í neinum takti við þá þróun sem hefur orðið á heims­­­mark­aði með olíu, en heims­­­mark­aðs­verðið á tunnu af hrá­olíu hafði lækkað um tæp­­lega 30 pró­­­sent milli júní og miðs sept­em­ber á meðan að verðið lækk­aði um 7,5 pró­­­sent hér­­­­­lend­­­is.

[adspot]Síðla í sept­em­ber fór heims­mark­aðs­verðið að lækka nokkuð skarpt en hækk­aði á ný þegar leið á októ­ber­mánuð og fram í byrjun nóv­em­ber. Í lið­inni viku féll það skarpt á ný og er nú á svip­uðum stað og um miðjan októ­ber.

Lík­legt inn­kaupa­verð olíu­­­fé­lag­anna á lítra af bens­íni er nú 120,5 krónur sam­­kvæmt útreikn­ingum bens­ín­vakt­­ar­inn­­ar, sem ákvarð­­ast einkum ann­­ars vegar af heims­­mark­aðs­verði á olíu og hins vegar gengi krón­unnar gagn­vart Banda­ríkja­dal. Lík­legt inn­kaupa­verð fór í fyrsta sinn síðan í febr­­ú­­ar, áður en stríðið í Úkra­ínu skall á, undir 100 krónum á lítra í sept­em­ber­mán­uði. Frá því að það náði hámarki á þessu ári, í júní, hefur lík­­­legt inn­kaupa­verð lækkað um 19 pró­sent.

Hlutur olíu­fé­laga farinn að minnka á ný

Hlutur olíu­fé­laga er nú 49,79 krónur. Hann hefur lækkað um rúm­lega 23 pró­sent á tveimur mán­uðum. Alls taka olíu­­­fé­lögin nú til sín 15,5 pró­­sent af sölu­and­virði hvers selds lítra. Hlut­falls­lega tóku þau mest af hverjum lítra, 30,3 pró­sent, í apríl 2020, þegar bens­ín­verð var hærra en nokkru sinni í Íslands­sög­unni. Það er eina skiptið sem hlutur olíu­fé­laga hefur farið yfir 30 pró­sent síðan í nóv­em­ber 2008.

Hlutur olíu­fé­lag­anna í hverjum seldum lítra jókst frá maí og fram í sept­em­ber. Hann rúm­lega tvö­fald­að­ist í krónum talið, en hefur síðan farið lækk­andi á ný.

Að hluta til má skýra þessa breyt­ingu með því að olíu­­­fé­lögin voru ekki að velta hækk­­­­unum á heims­­­­mark­aðs­verði að fullu út í verð­lag­ið framan af ári. Með því héldu þau að ein­hverju leyti aftur af hækk­­unum og minn­k­uðu hagnað sinn af elds­­neyt­is­­sölu. Þetta breytt­ist í sumar. Sam­hliða því að inn­kaupa­verðið lækk­aði kropp­uðu olíu­­­fé­lögin til baka þá álagn­ingu sem þau gáfu eftir fyrr á árinu 2022.

Álögur rík­­is­ins hækka á næsta ári

Hlutur rík­­­­­is­ins í hverjum seldum bens­ín­lítra, sem sam­anstendur af virð­is­auka­skatti, almennu og sér­­­­­­­­­stöku bens­ín­gjaldi og kolefn­is­gjaldi er nú 151,74 krónur á hvern lítra af seldu bens­íni. Það þýðir að 47 pró­­­­­sent af hverjum lítra fer í rík­­­­­is­­­­­sjóð.

Bif­­reið­­ar­eig­endur geta búist við því að greiða meira í rík­­is­­sjóð á næsta ári en þeir gera í ár. Sam­­kvæmt fjár­­laga­frum­varpi næsta árs er áætl­­­­­að að tekjur rík­­­­­is­­­­­sjóðs vegna vöru­gjalda af öku­tækjum auk­ist um 2,7 millj­­­arða króna og verði 8,2 millj­­­arðar króna á næsta ári.

Vöru­­­gjöld af bens­íni aukast um 440 millj­­­ónir króna milli ára og verða 9,3 millj­­­arðar króna, kolefn­is­­­gjöld aukast um 560 millj­­­ónir og verða 7,5 millj­­­arðar króna og olíu­­­gjaldið eykst um tæpan millj­­­arð króna og verður rúm­­­lega 13,5 millj­­­arðar króna.

Kíló­­­metra­­­gjald mun skila rúm­­­lega 1,6 millj­­­arð króna í rík­­­is­­­sjóð og bif­­­reiða­­­gjöld 10,6 millj­­­örðum króna.

Gögn og aðferða­fræði

Hér að ofan er birt nið­­ur­­staða útreikn­inga og áætl­­unar á því hvernig verð á lítra af bens­íni skipt­ist milli aðila í fram­­setn­ingu GRID.

  • Við­mið­un­­ar­verð er fengið frá hug­­bún­­að­­ar­­fyr­ir­tæk­inu Seið ehf. sem meðal ann­­ars heldur úti síð­­unni Bens­ín­verð.is og fylgst hefur með bens­ín­verði á flestum bens­ín­­stöðum lands­ins dag­­lega síðan 2007. Miðað er við næst­lægstu verð­­tölu í yfir­­lit­inu til að forð­­ast að ein­hverju leyti áhrif tíma­bund­innar verð­­sam­keppni á allra lægsta verð. Við­mið­un­­ar­verðið er þó með lægstu verðum og sýnir þar með lægri hlut olíu­­­fé­lags­ins en reikna má með að raunin sé með­­al­talið af öllu seldu bens­íni á land­inu.
  • Hlutur rík­­is­ins liggur ljós fyrir út frá sköttum sem eru ýmist fastir og hlut­­falls­­leg­­ir. Upp­­lýs­ingar um breyt­ingar á skatta­lögum eru fengnar frá Við­­skipta­ráði sem fylgst hefur með slíkum breyt­ingum um ára­bil.
  • Lík­­­legt inn­­­kaupa­verð er reiknað útfrá verði á bens­íni til afhend­ingar í New York-höfn í upp­­hafi mán­aðar frá banda­rísku orku­­stofn­un­inni EIA og mið­­gengi doll­­ars gagn­vart íslenskri krónu í yfir­­stand­andi mán­uði frá Seðla­­banka Íslands. Í þessum útreikn­ingum kann að skeika nokkru á hverjum tíma­­punkti vegna lag­er­­stöðu, skamm­­tíma­­sveiflna á mark­aði o.s.frv. Nákvæmara væri að miða við verð á bens­íni til afhend­ingar í Rott­er­dam, en verð­­upp­­lýs­ingar þaðan liggja ekki fyrir á opnum gagna­veit­­um. Mis­­munur á verði í New York og Rott­er­dam er þó yfir­­­leitt mjög lít­ill.
  • Hlutur olíu­­­fé­lags er loks reikn­aður sem afgangs­­stærð enda hald­­góðar upp­­lýs­ingar um ein­staka kostn­að­­ar­liði olíu­­­fé­lag­anna ekki opin­ber­­ar. Hafa ber í huga að þar sem við­mið­un­­ar­verð er með lægstu verðum á hverjum tíma er þessi liður ef til vill ein­hverju hærri sé litið til heild­­ar­við­­skipta með bensín á Íslandi.

Verð­­upp­­lýs­ingar mið­­ast við verð­lag hvers tíma. Gögnin eru upp­­­færð mán­að­­ar­­lega í kringum 15. hvers mán­að­­ar. Fyr­ir­vari er gerður um skekkju­­mörk sem þó ættu í mesta lagi að nema fáeinum krónum á útreikn­aða liði. Ábend­ingar um vill­­ur, lag­­fær­ingar og betrumbætur skal senda á gogn@kjarn­inn.is og er tekið fagn­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bensínvakt

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár