Ónæmi eða neikvæð niðurstaða víða að verða aðgöngumiði að samfélaginu

Heimur þar sem þeir sem eru ónæmir eða þeir sem geta sannað að þeir séu ekki smit­aðir af COVID-19 geta einir notið ákveð­innar þjón­ustu er handan við hornið. Þessu munu óhjá­kvæmi­lega fylgja deilur og ýmsar lög­fræði­legar og sið­ferði­legar spurn­ingar.

New York-ríki í Bandaríkjunum hefur þegar kynnt snjallsímaforrit sem fólk á að geta notað til að sýna fram á að það sé bólusett.
New York-ríki í Banda­ríkj­unum hefur þegar kynnt snjall­símafor­rit sem fólk á að geta notað til að sýna fram á að það sé bólu­sett. Mynd: New York-ríki

Alrík­is­stjórn Banda­ríkj­anna mun ekki taka upp nokk­urt kerfi sem gerir sönnun fyrir bólu­setn­ingu gagn­vart COVID-19 að kröfu til þess að mega njóta þjón­ustu eða sækja við­burði. Þetta kom fram í máli Jen Psaki, fjöl­miðla­full­trúa Hvíta húss­ins, á blaða­manna­fundi í gær.

Hún sagði frétta­mönnum að það yrði eng­inn alrík­is­gagna­grunnur um bólu­setn­ingar fólks settur upp og banda­rískum þegnum yrði heldur ekki gert skylt að sækja sér sam­hæfð vott­orð um bólu­setn­ingu. Psaki sagði að Banda­ríkja­stjórn vildi standa vörð um per­sónu­vernd og rétt­indi fólks.

Einstaka ríki og einkageirinn

Þetta er þó ekki alveg svona klippt og skorið hvað Banda­ríkin varðar. Ekki er úti­lokað stór hluti Banda­ríkja­manna muni á næst­unni þurfa að fram­vísa sönnun um bólu­setn­ingu, mótefni eða nei­kvætt COVID-próf til þess að geta notið þjón­ustu eða sótt sam­komur.

Hæsta­rétt­ar­dómur frá árinu 1905, í máli prests af sænskum upp­runa, gerir ein­staka ríkjum Banda­ríkj­anna kleift að gera kröfu um bólu­setn­ingu. Prest­ur­inn sem um ræðir, Henning Jacobson, vildi ekki láta bólu­setja sig við bólu­sótt, þeim ill­víga sjúk­dómi sem síðar tókst að útrýma með bólu­setn­ingu. Þessi áhuga­verða saga var rakin í nýlegum hlað­varps­þætti frá The Atlantic.

New York-ríki er á meðal þeirra ríkja sem hafa kynnt til sög­unnar raf­ræna lausn sem fólk getur notað, ef það vill, til þess að halda utan um eigin bólu­setn­ing­ar­vott­orð. „Hugsaðu um það sem raf­rænan flug­miða, nema til þess að sanna að þú hafir fengið COVID-19 bólu­setn­ingu eða nei­kvætt próf,“ segir á vef rík­is­ins um snjall­símafor­ritið Excelsior Pass. Walmart hefur einnig boðið upp á svipað snjall­símafor­rit fyrir þá sem vilja, en banda­ríska versl­un­ar­keðjan hefur tekið þátt í að bólu­setja fjöl­marga Banda­ríkja­menn und­an­farnar vikur.

Samkvæmt frétta­skýr­ingu New York Times um ýmsar hliðar þessa máls vest­an­hafs eru einka­fyr­ir­tæki einnig mörg að hugsa um að gera stað­fest­ingu á ónæmi eða nýlegu nei­kvæðu prófi að skyldu fyrir við­skipta­vini sína. Fyr­ir­tæki eru sögð ótt­ast að margir við­skipta­vinir muni kjósa að halda sig fjarri stöðum þar sem fólk safn­ast saman nema þeir hafi vissu fyrir því að aðrir gestir séu einnig bólu­settir.

Þessu öllu eru þegar byrjuð að fylgja hug­mynda­fræði­leg átök, eftir kunn­ug­legum átaka­línum. Á sama tíma og demókrat­arnir sem stjórna í New York-ríki hafa kynnt sín áform til sög­unnar og háskólar á borð við Brown og Cornell boðað að nem­endur þurfi að vera bólu­settir er þeir mæta næsta haust, hafa rík­is­stjórar úr röðum Repúblikana­flokks­ins bæði í Texas og Flórída bannað öllum stofn­unum rík­is­ins og einka­að­ilum sem þiggja fé úr sam­eig­in­legum sjóðum að gera bólu­setn­ingu að ein­hverri kröfu.

WHO varar við bólusetningarvegabréfum

Þetta er því póli­tískt umdeilt í Banda­ríkj­unum. Eins og Kjarninn sagði frá í gær hefur Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­unin (WHO) komið því á fram­færi að hún styðji ekki við að bólu­setn­ing­ar­vega­bréf verði gerð að skyldu fyrir ferða­lögum milli ríkja.[links]

Sú afstaða WHO byggir bæði á því að ekki er enn vitað með vissu hvort bólu­settir geti borið kór­ónu­veiruna með sér þrátt fyrir að veikj­ast ekki sjálfir og einnig á jafn­ræð­is­sjón­ar­miðum, ekki sé rétt að meina þeim ekki geta af ein­hverjum ástæðum þegið bólu­setn­ingu að ferð­ast.

Reglu­verk um bólu­setn­ing­ar­vega­bréf, eða raf­ræn vott­orð um bólu­setn­ingu sem á að vera hand­hægt að fram­vísa til þess að fá að ferð­ast eða nota þjón­ustu, er þó víða í smíð­um, bæði hjá ein­staka ríkjum heims og í sam­vinnu ríkja.

Grænn passi Ísraela

Slíkt kerfi, Græni pass­inn, hefur þegar verið tekið í notkun í Ísrael, en þar hefur yfir helm­ingur íbúa þegar verið full­bólu­settur, ef íbúar á hernumdum svæðum Palest­ínu­manna eru ekki taldir með. Græna pass­ann þarf fólk að sýna í snjall­símum sínum áður en það fer inn á staði á borð við lík­ams­rækt­ar­stöðvar og leik­hús.

Stafrænt grænt skírteini ESB

Evr­ópu­sam­bandið hefur kynnt til sög­unnar áætlun um sam­ræmd raf­ræn skír­teini fyrir ferða­lög á milli landa innan ESB sem eiga að sýna fram á að fólk hafi ýmist verið bólu­sett, fengið nýlegt nei­kvætt PCR-­próf eða náð sér eftir að hafa sýkst af COVID-19.

Eft­ir­lits­stofn­anir ESB á sviði per­sónu­verndar hafa þó varað við því að heil­brigð­is­gögnum verði safnað saman á þennan máta. Tryggja þurfi að laga­grund­völlur sé fyrir áætl­unum Evr­ópu­sam­bands­ins í hverju og einu aðild­ar­ríki. Einnig þurfi að tryggja að ef gagna­söfn­un­inni verði þurfi sömu­leiðis að passa að hún verði ein­ungis tíma­bundin og hætti þegar far­aldr­inum ljúki.

Kórónupassinn danski

Einstaka ríki Evrópu hafa þó þegar stokkið af stað og eru byrjuð að þróa eða nota sín eigin kerfi til þess að koma atvinnu­starf­semi sem hefur verið lokuð lengi af stað á ný.

Í Danmörku hófst notkun á kór­ónupass­anum í gær, en þá var hár­greiðslu­fólki, snyrti­fræð­ingum, öku­kenn­urum og öðrum sem vinna störf sín í návígi og hafa þurft að hafa lokað leyft að taka til starfa á ný, en sú kvöð er sett á herðar atvinnu­rek­enda að fylgj­ast með því hvort við­skipta­vin­irnir fram­vísi gildum kór­ónupassa.

Fyr­ir­tæki sem hleypa inn við­skipta­vinum sem eru ekki með gildan kór­ónupassa geta búist við sektum sem geta verið veru­legar, ef upp kemst um ítrekuð brot. Það hefur ekki fallið í kramið hjá öllum, sumum atvinnu­rek­endum þykja tölu­verðar byrðar lagðar á sínar herðar. Gríð­ar­legt ásókn hefur verið í skimun í Danmörku und­an­farna daga, enda veitir nei­kvæð nið­ur­staða í COVID-19 prófi fólki 72 klukku­stunda leyfi til þess að fara til rak­ar­ans eða snyrti­fræð­ings­ins.

Til stendur að hleypa áhorf­endum á íþrótta­kapp­leiki undir sömu for­merkjum frá 21. apríl og opn­un­ar­á­ætlun danskra stjórn­valda gerir ráð fyrir því að veit­inga­staðir, söfn, leik­hús og kvik­mynda­hús muni geta starfað á ný frá 6. maí og þjón­u­stað, í fyrstu hið minnsta, þá sem hafa verið bólu­settir, þegar fengið COVID-19 eða fram­vísa nei­kvæðu PCR-prófi.

Veirupróf fyrir pöbbaferð?

Bretar eru að prófa sig áfram með svip­aða hluti og Danir. Þegar versl­unum sem ekki eru skil­greindar sem nauð­syn­legar og krám með úti­að­stöðu verður leyft að taka á móti við­skipta­vinum á ný þann 12. apríl verður þessum stöðum þó í sjálf­vald sett hvor þær krefji fólk um að fram­vísa breska kór­ónu­veiru­vega­bréf­inu eða ekki.

Breska rík­is­stjórnin vinnur nú að því að koma upp ein­hverri sam­ræmdri lausn sem gæti gilt í Englandi, Skotlandi, Wales og Norður-Írlandi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár