Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin styður ekki bólusetningarvegabréf að svo stöddu

Vegna óvissu um hvort bólu­settir geti borið með sér veiruna og jafn­ræð­is­sjón­ar­miða styður Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­unin ekki áform um að gera bólu­setn­ingu að skyldu fyrir ferða­lögum á milli ríkja.

Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­unin (WHO) styður ekki að gerð verði krafa um bólu­setn­ing­ar­vott­orð, svokölluð bólu­setn­ing­ar­vega­bréf, til þess að fólk megi ferð­ast landa á milli, að minnsta kosti þessa stund­ina.

Sú ákvörðun byggir á því að enn óvíst sé hvort bólu­setn­ing komi í veg fyrir að veiran ber­ist með fólki, auk jafn­ræð­is­sjón­ar­miða, en ýmsar spurn­ingar vakni ef úti­loka eigi þá sem af ein­hverjum orsökum geta ekki þegið bólu­setn­ingu frá því að ferð­ast. Fjallað er um þetta á vef Reuters og vísað til svara tals­konu stofn­un­ar­innar, Margaret Harris, á blaða­manna­fundi á vegum Sam­ein­uðu þjóð­anna.

Reglu­verk um bólu­setn­ing­ar­vega­bréf, eða raf­ræn vott­orð um bólu­setn­ingu sem á að vera hand­hægt að fram­vísa til þess að fá að ferð­ast eða nota þjón­ustu, er þó víða í smíðum. Evr­ópu­sam­bandið hefur þegar kynnt til sög­unnar áætlun um sam­ræmd raf­ræn skír­teini sem eiga að sýna fram á að fólk hafi ýmist verið bólu­sett, fengið nýlegt nei­kvætt PCR-próf eða náð sér eftir að hafa sýkst af COVID-19.

Eft­ir­lits­stofn­anir ESB á sviði per­sónu­verndar hafa þóvarað við því að heil­brigð­is­gögnum verði safnað saman á þennan máta. Tryggja þurfi að laga­grund­völlur sé fyrir áætl­unum Evr­ópu­sam­bands­ins í hverju og einu aðild­ar­ríki. Einnig þurfi að tryggja að ef af þess­ari gagna­söfnun verði þurfi sömu­leiðis að passa að hún verði ein­ungis tíma­bundin og hætti þegar far­aldr­inum ljúki.

Þá hafa hin ýmsu ríki kynnt til sög­unnar eins­konar bólu­setn­ing­arpassa sem nota má inn­an­lands til þess að fá aðgang að þjón­ustu. Smám saman er að verða tví­skiptur heimur þeirra sem geta sýnt fram á ónæmi og ann­arra.

Í Bret­landi er til dæmis verið að smíða tækni­lausn sem mætti nota til þess að gera fjölda­sam­komur af ýmsu tagi mögu­legar á ný. Úrslita­leik­ur­inn í ensku bik­ar­keppn­inni í fót­bolta í vor verður til dæmis vett­vangur fyrir til­rauna­starf­semi af þessu tagi, en til stendur að hleypa bólu­settum áhorf­endum eða þeim geta fært sönnur á ónæmi með öðrum hætti á leik­inn.

Danir hafa einnig kynnt til sög­unnar raf­rænan kór­ónupassa, sem tók gildi í dag. Hann gerir bólu­settum, þeim sem hafa smit­ast af veirunni á síð­ustu 2-12 vikum og þeim sem eru með nei­kvætt PCR-próf sem er minna en 72 tíma gam­alt að sækja sér þjón­ustu sem ekki hefur verið í boði und­an­farnar vikur, eins og til dæmis hár­greiðslu­stofur.

Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­unin ætlar þó sem sakir standa ekki að styðja við áætl­anir sem gera bólu­setn­ingu að kröfu varð­andi ferða­lög á milli landa og því ekki lík­legt að stofn­unin muni á næst­unni koma að því að setja upp eitt­hvert reglu­verk um slíkt kerfi bólu­setn­ing­ar­vega­bréfa á alþjóða­vísu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár