Samræmd bólusetningavottorð innan ESB gætu litið dagsins ljós eftir þrjá mánuði

Fram­kvæmda­stjóri Evr­ópu­sam­bands­ins sagði eftir fund leið­toga þess í gær að það myndi taka „að minnsta kosti“ þrjá mán­uði að þróa tækni­lega útfærslu sam­ræmdra bólu­setn­inga­vott­orða.

Ursula von der Leyen, framkvæmdastjóri Evrópusambandsins.
Ursula von der Leyen, fram­kvæmda­stjóri Evr­ópu­sam­bands­ins. Mynd: EPA

Samræmd bólu­setn­inga­vott­orð innan Evr­ópu­sam­bands­ins gætu verið til­búin til notk­unar innan þriggja mán­aða, segir fram­kvæmda­stjóri sam­bands­ins.

Leið­togar ríkja innan ESB komu saman á fjar­fundi í gær til að ræða sam­eig­in­legar aðgerðir í kór­ónu­veiru­far­aldr­inum. Ræddu þeir m.a. um ein­hliða lok­anir landamæra og aðgerðir ólíkra ríkja sam­bands­ins, hversu hægt hefur miðað í bólu­setn­ingum og útgáfu sam­ræmds bólu­setn­inga­vott­orðs.

Ríki sunn­ar­lega í álf­unni, m.a. Grikk­land og Spánn, hafa kallað eftir sam­ræmdu bólu­setn­inga­vott­orði, og hafa sagt það leið­ina til að koma ferða­þjón­ust­unni, sem þau stóla svo mikið á, af stað á ný.

[adspot]

Sebast­ian Kurz, kansl­ari Aust­ur­ríkis, er meðal þeirra sem styður hug­mynd­ina og sagði slík vott­orð geta „tryggt og verndað“ greinar sem hefðu barist í bökkum í far­aldr­inum, s.s. lista- og menn­ing­ar­geir­ann, íþróttir og veit­inga­hús.

Fleiri hafa ýtt opin­ber­lega á eftir fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins að hefja útgáfu vott­orð­anna, m.a. Manfred Weber, leið­togi hægri­manna á Evr­ópu­þing­inu. Hann hefur sagt vott­orðin „bráð­nauð­syn­leg“ og að þau myndu „skipta sköpum“, ekki síst í ljósi þess hversu hægt bólu­setn­ingar innan ESB hafa gengið hingað til. Hann hefur lagt til að fólk fái vott­orðin á sama tíma og það komi í bólu­setn­ingu.

Grikkir eru orðnir mjög óþreyju­fullir og hafa þegar myndað ferða­banda­lag við Ísrael, landið þar sem bólu­setn­ingar eru komnar lengst í heim­inum vegna sér­staks samn­ings við lyfja­fyr­ir­tækið Pfizer.

Önnur ríki, á borð við Frakk­land og Þýska­land, hafa verið meira hik­andi við útgáfu sam­ræmdra bólu­setn­inga­vott­orða. Þar hafa yfir­völd m.a. sagt að með slíkum vott­orðum væri verið að beita fólki þrýst­ingi til að fara í bólu­setn­ingu, sem er val­kvæð, og að vott­orðin og þau fríð­indi sem þeim myndu fylgja gætu valdið mis­munun. Innan þess­ara ríkja hafa sumir emb­ætt­is­menn svo sagt að þó að þeir styðji gagna­grunna með upp­lýs­ingum um bólu­setta sé of snemmt að gefa út sam­ræmd bólu­setn­ing­ar­vott­orð til að liðka fyrir ferða­lögum fólks.

Áður en slík vott­orð verða gefin út, „verður í fyrsta lagi að vera full­víst að bólu­settir séu ekki lengur smit­andi,“ sagði Angela Merkel, kansl­ari Þýska­lands, í við­tali í gær. „Á meðan fjöldi þeirra sem er bólu­settur er enn miklu minni en þeirra sem eru að bíða eftir bólu­setn­ingu, á hið opin­bera ekki að með­höndla þessa hópa með ólíkum hætti.“

Þrír mánuðir langur tími

Ursula von der Leyen, fram­kvæmda­stjóri Evr­ópu­sam­bands­ins, sagði hins vegar eftir fund leið­toga þess í gær, sagði að innan þriggja mán­aða gæti kerfi um útgáfu sam­ræmdra bólu­setn­inga­vott­orða verið til­búið til notk­unar. Hún sagði að tækni­legar úrlausnir stæðu fyrir dyrum – og að því myndi þróun kerf­is­ins taka tíma. „Þess vegna þurfum við að minnsta kosti þrjá mán­uði,“ sagði hún.

Þessi tíma­freka útfærsla hefur komið sumum á óvart og hefur Euronews m.a. eftir Guntram Wolff, fram­kvæmda­stjóra þekk­ing­ar­set­urs­ins Bruegel, að útgáfan ætti að vera nokkuð ein­föld í fram­kvæmd. „Við erum þegar að gefa út sam­ræmd bólu­setn­inga­vott­orð og þau eru notuð til að stað­festa til dæmis að þú sért bólu­settur gegn gulu­sótt þegar þú ferð til ákveð­inna landa. Það gæti tekið ein­hvern tíma að aðlaga slík vott­orð en þegar upp er staðið þá er ég viss um að þetta eru engin geim­vís­indi og ætti að vera frekar ein­falt og vel fram­kvæm­an­legt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bóluefni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár