Um 25 þúsund skammtar af bóluefni Pfizer til í landinu

Um 100 þús­und skammtar af bólu­efni gegn COVID-19 eru til í land­inu. Mest er til af bólu­efni Moderna. Sótt­varna­læknir hefur stytt tím­ann milli ann­ars skammts og örv­un­ar­skammts úr 5-6 mán­uðum í fjóra.

Bóluefni Pfizer er í augnablikinu af skornum skammti til í landinu.
Bóluefni Pfizer er í augna­blik­inu af skornum skammti til í land­inu. Mynd: EPA

„Það eru um 100.000 skammtar til hjá okkur af Covid-bólu­efni, mest til af Pfizer og Moderna,“ segir Júlía Rós Atla­dóttir, fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins Distica sem sér um geymslu þeirra. Af þessum skömmtum eru um 25 þús­und af bólu­efni Pfizer. Von er á 50.000 skömmtum af bólu­efni næstu vik­urnar.

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir til­kynnti í gær að tími örv­un­ar­skammts bólu­setn­ingar gegn COVID-19 eftir skammt númer tvö yrði styttur í fjóra mán­uði. Hingað til hefur verið mælt með því að 5-6 mán­uðir séu látnir líða á milli.

Nokkuð mis­jafnt er milli landa er hversu langur tími er lát­inn líða í örv­un­ar­bólu­setn­ing­una. 4-6 mán­uðir er algengt en sem dæmi þá ákváðu yfir­völd í Nýju Suður-Wales í Ástralíu í gær að stytta tím­ann í þrjá mán­uði.

Þórólfur sagði í pistli sínum á covid.is að þessi nýja til­högun kæmi til fram­kvæmda í næstu viku, þ.e. frá og með 24. jan­úar. Stefnt sé að því að fólk verði kallað inn í bólu­setn­ing­una.

Í pistli Þórólfs kom enn­fremur fram að örv­un­ar­bólu­setn­ingin yrði með bólu­efni frá Moderna eða Pfizer en benti á að tak­markað magn af bólu­efni Pfizer væri nú til staðar í land­inu.

77 pró­sent allra Íslend­inga eru full­bólu­settir, þ.e. hafa fengið tvo skammta af bólu­efni. Tæplega 176 þús­und manns hafa að auki fengið örv­un­ar­skammt. Frá því að bólu­setn­ing­ar­her­ferð vegna COVID-19 hófst hér á landi í upp­hafi árs 2020 hafa rúm­lega 753 þús­und skammtar verið gefnir.

Langtum flestir hafa fengið bólu­efni Pfizer eða um 168 þús­und lands­manna. Fæstir hafa verið full­bólu­settir með Moderna eða rúm­lega 20 þús­und. Síðustu mán­uði hafa mjög fáir skammtar af bólu­efni AstraZeneca og Janssen verið gefnir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bóluefni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár