Stöðva notkun bóluefnis Johnson & Johnson

Notkun bólu­efnis sem fyr­ir­tækið Johnson & Johnson fram­leiðir hefur verið stöðvuð í Banda­ríkj­unum. Ástæðan er sú að sex konur á aldr­inum 18-48 ára hafa fengið sjald­gæfa teg­und blóð­tappa í kjöl­far bólu­setn­ingar.

Bóluefni Johnson & Johnson þarf aðeins að gefa einu sinni.
Bóluefni Johnson & Johnson þarf aðeins að gefa einu sinni. Mynd: EPA

Sex konur á aldr­inum 18-48 hafa fengið sjald­gæfa teg­und blóð­tappa innan tveggja vikna eftir að fá bólu­efni fyr­ir­tæk­is­ins Johnson & Johnson. Yfirvöld tóku í dag þá ákvörðun að hætta notkun efn­is­ins tíma­bundið af þessum sökum á meðan rann­sakað verður til hlítar hvort að tengsl séu milli bólu­efn­is­ins og sjúk­dóms­ins hjá kon­unum. Ein þeirra er látin og önnur liggur þungt haldin á sjúkra­húsi að því er fram kemur í frétt New York Times um málið. Um er að ræða sömu teg­und blóð­tappa og mögu­lega tengj­ast notkun AstraZeneca-bólu­efn­is­ins en bæði lyfin eru fram­leidd með sam­bæri­legum aðferðum. Sótt­varna­yf­ir­völd hér á landi hafa ákveðið að konur yngri en 55 ára fái ekki bólu­efni AstraZeneca.

Bólu­efnis Johnson & Johnson var beðið með mik­illi eft­ir­vænt­ingu þar sem aðeins einn skammt þarf af því í stað tveggja af þeim bólu­efnum sem þegar eru komin á markað. Efnið fékk neyð­ar­leyfi í Banda­ríkj­unum og hefur verið notað þar í nokkrar vikur. Það hefur einnig fengið mark­aðs­leyfi í Evrópu en bólu­setn­ing með því er ekki hafin í álf­unni.

Um sjö millj­ónir manna í Banda­ríkj­unum hafa fengið bólu­efnið hingað til og um níu millj­ónum skammta til við­bótar hefur verið dreift til ríkja lands­ins.

Sér­fræð­ingar Smit­sjúk­dóma­stofn­unar Banda­ríkj­anna (CDC) sem og vís­inda­menn Matvæla- og lyfja­stofn­unar lands­ins munu nú sam­eina krafta sína og rann­saka hvort að tengsl geti verið milli bólu­efn­is­ins og blóð­tapp­anna. Í kjöl­farið verður tekin ákvörðun um hvort halda eigi áfram að gefa fólki efnið og þá hverjum. Neyð­ar­fundur hefur verið boð­aður hjá sér­fræð­inga­ráði CDC á morgun, mið­viku­dag.

Í bólu­efna­á­ætl­unum banda­rískra yfir­valda spilar bólu­efni Johnson & Johnson stórt hlut­verk þó að skammtar af því hafi hingað til verið mun færri en af bólu­efnum Moderna og Pfizer-BionNTech sem einnig eru gefin í land­inu. Hins vegar hafði verið stólað á hraða bólu­setn­ingu með efni J&J þar sem það átti aðeins að þurfa að gefa í einni sprautu. Einnig er mun ein­fald­ara að með­höndla það, það þarf ekki gríð­ar­legan kulda til geymslu eins og hin tvö efnin sem fyrr voru nefnd.

Til stóð að ná að bólu­setja alla full­orðna í Banda­ríkj­unum fyrir maí­lok. Hvort að það muni takast mun skýr­ast á næstu dögum.

Milli 300 og 600 þús­und manns fá blóð­tappa í Banda­ríkj­unum á hverju ári, segir í frétt New York Times. Hins vegar fengu kon­urnar sex mjög sjald­gæfa teg­und blóð­tappa og því þótti ekki annað hægt en að stöðva frek­ari bólu­setn­ingu tíma­bundið. Sér­fræð­ingar vita enn ekki hvers vegna þessi blóð­tappi virð­ist fylgja bólu­setn­ingu með efnum AstraZeneca og Johnson & Johnson en telja mögu­legt að veik­indin teng­ist við­bragði ónæm­is­kerf­is­ins við bólu­efn­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bóluefni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár