Ekki til skoðunar að lengja tíma milli 1. og 2. sprautu

Sótt­varna­læknir segir það ekki til skoð­unar að lengja tím­ann milli bólu­efna­skammt­anna tveggja sem fólki eru gefnir. Sú leið hefur verið farin í mörgum ríkjum til að geta gefið fleirum fyrri spraut­una sem fyrst.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Almannavarnir

„Það er ekki til neinnar sér­stakrar skoð­unar að lengja tím­ann á milli fyrstu og ann­arrar sprautu hjá Pfizer og Moderna,“ segir Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans. Tólf vikur eru látnar líða hér á landi á milli fyrstu og ann­arrar sprautu af bólu­efni AstraZeneca en aðeins þrjár vikur í til­felli Pfizer og Moderna.

[links]Í Bret­landi hafa yfir 32 millj­ónir fengið fyrri spraut­una og um sjö millj­ónir þær báðar og eru því full­bólu­settar. Þar í landi er stefnt að því að í lok mán­aðar verði allir fimm­tíu ára og eldri búnir að fá fyrri skammt­inn og í lok júlí verði allir full­orðnir í þeirri stöðu. Snemma í jan­úar tóku stjórn­völd þá ákvörðun að hraða bólu­setn­ingu sem mest og gefa sem flestum fyrri spraut­una af bólu­efni Pfizer og seinna AstraZeneca sem fengið hafa mark­aðs­leyfi þar í landi. Allt að tólf vikur eru látnar líða á milli fyrri og seinni sprauta sem er mun lengri tími en í fyrstu var ráð­lagt af Pfizer miðað við nið­ur­stöður klínískra rann­sókna.

Þessi stefnu­breyt­ing varð til þess að nær hvergi í heim­inum hafa hlut­falls­lega fleiri verið bólu­settir með fyrri skammti en í Bret­landi. Rúmlega sex­tíu pró­sent allra íbúa Englands, átján ára og eldri, hafa fengið fyrri skammt­inn en aðeins um 11 pró­sent báða skammt­ana. Í Wales og Skotlandi er hlut­fallið svipað en nokkru lægra á Norður-Írlandi þar sem um 55 pró­sent full­orð­inna hafa fengið fyrri skammt­inn.

[adspot]

Þessi leið er nú einnig farin í Kanada. Heil­brigð­is­yf­ir­völd þar ákváðu nýverið að skipta um kúrs og gefa sem flestum fyrri skammt­inn. Ýmsir sér­fræð­ingar í smit­sjúk­dómum hafa bent á að þessa sömu leið væri nú far­sæl­ast að fara í Banda­ríkj­unum. Í grein New York Times um málið er því haldið fram að ein helsta ástæða

þess að svo stuttur tími var ráð­lagður milli skammta af Pfizer og Moderna bólu­efn­unum sé sú að þannig hafi skammt­arnir verið gefnir í klínískum rann­sóknum og þá til að flýta því ferli. Í þessum rann­sóknum var því ekki prófað hvort að lengri tími milli skammta gæfi sömu raun – eða jafn­vel betri. Þetta varð til þess að bólu­setn­ingar gegn COVID-19 gátu haf­ist þegar í des­em­ber.

Í Banda­ríkj­unum hefur bæði til­fellum af kór­ónu­veirunni og inn­lögnum á sjúkra­hús fjölgað á síð­ustu dögum. Dauðs­föllum hafði farið fækk­andi en nú hald­ast dán­ar­töl­urnar svip­aðar dag frá degi. Því er það mat nokk­urra sér­fræð­inga að breyta um stefnu og feta í fót­spor Breta og Kanada­manna.

Spurður um þetta bendir Þórólfur sótt­varna­læknir á að það geti haft kosti að lengja tíma milli sprauta þar sem útbreiðsla á far­aldr­inum er mikil líkt og átt hefur við bæði Banda­ríkin og Bretland. „En það getur líka haft ókosti,“ segir hann, „til dæmis minni vörn og hugs­an­lega meiri líkur á að fram komi ný og verri afbrigði. Það er þó ósannað.“

Fleiri vís­inda­menn hafa viðrað þessar áhyggjur. Þess vegna hefur Anthony Fauci, helsti ráð­gjafi Joe Bidens for­seta í bar­átt­unni við kór­ónu­veiruna, lagst gegn því að lengja tíma milli skammta. Aðrir sér­fræð­ingar hafa bent á að þetta séu aðeins kenn­ingar, engar sann­anir séu fyrir því að afbrigði kór­ónu­veirunnar séu lík­legri til að þró­ast í fólki sem hafi aðeins fengið fyrri skammt bólu­efnis og hafa bent á að breska-leiðin sé að skila árangri. Svipaður fjöldi skammta af bólu­efnum hefur verið gef­inn í Bret­landi og Banda­ríkj­unum miðað við höfða­tölu. Munurinn er hins vegar sá að Bretar hafa vís­vit­andi seinkað seinni spraut­unni. Þar er far­ald­ur­inn á nið­ur­leið í augna­blik­inu, mun hraðar en vest­an­hafs. Bæði nýjum smitum og dauðs­föllum hefur fækkað hratt. Óvissu­þætt­irnir fel­ast þó í nýjum afbrigðum kór­ónu­veirunnar líkt og Þórólfur nefnir, og eins því að svo virð­ist sem það sé mis­jafnt eftir aldri fólks hversu lengi virkni af fyrri skammti t.d. Pfizer-bólu­efn­is­ins helst án þess seinni og hversu góð hún er. Því eldra sem fólk er þeim mun minni virð­ist vörnin af fyrri skammti vera og vara skemur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bóluefni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár