Þúsundir skammta af AstraZeneca bíða á lager

Þrjátíu ára. 56 ára. 65 ára. Sjötugt. Ald­urs­mörk þeirra sem fá bólu­efni AstraZeneca eru mis­mun­andi eftir ríkjum. Sum ætla að gefa yngra fólki annað bólu­efni í seinni skammti. Önnur hafa sett það í geymslu og enn önnur hyggj­ast ekki nota það yfir höfuð.

Bóluefni lyfjafyrirtækisins AstraZeneca var þróað af vísindamönnum við Oxford-háskóla.
Bóluefni lyfja­fyr­ir­tæk­is­ins AstraZeneca var þróað af vís­inda­mönnum við Oxford-háskóla. Mynd: EPA

Ríki sem keypt hafa bólu­efni AstraZeneca eru mörg hver að ganga lengra í var­úð­ar­ráð­stöf­unum en Evrópska lyfja­stofn­unin telur óhætt. Stofn­unin greindi frá því í vik­unni að „mögu­leg tengsl“ hefðu fund­ist milli notk­unar bólu­efn­is­ins og sjald­gæfs blóð­tappa í heila. Hún telur enn að ávinn­ing­ur­inn af því að nota efnið trompi það að gera það ekki.

Yfirvöld í mörgum löndum hættu að nota bólu­efni AstraZeneca tíma­bundið eftir að fréttir bár­ust af nokkrum dauðs­föllum vegna blóð­tappa hjá fólki sem fengið hafði fyrri skammt­inn. Sum þeirra hafa ekki, þrátt fyrir nið­ur­stöður og ráð­legg­ingar Evrópsku lyfja­stofn­un­ar­innar og Alþjóða heil­brigð­is­stofn­un­ar­innar, hafið bólu­setn­ingu með efn­inu á ný. Þau sem nota efnið í dag hafa mörg hver ákveðið að gefa það aðeins fólki yfir ákveðnum aldri þar sem dauðs­föllin voru fyrst og fremst meðal fólks milli fer­tugs og fimm­tugs.

Frönsk heil­brigð­is­yf­ir­völd hafa ákveðið að fólk undir 55 ára sem fengið hefur fyrri skammt­inn af AstraZeneca skuli héðan í frá fá annað bólu­efni, annað hvort frá Pfizer eða Moderna, í síð­ari skammti.

Spánn og Ítalía hafa einnig ákveðið að setja ald­urs­mörk á notkun efn­is­ins og eru hætt að gefa það fólki yngra en sex­tíu ára. Í Belgíu eru ald­urs­mörkin dregin við 56 ára ald­ur­inn. Þá ákvörðun á að end­ur­skoða innan fjög­urra vikna. Líkt og í Frakk­landi hefur verið ákveðið að yngra fólk sem fengið hafði fyrri sprautu með AstraZeneca fái á meðan þessi óvissa ríki þá seinni af öðru efni. Þetta er verið að gera þrátt fyrir að WHO segi að engin gögn liggi fyrir um hvaða áhrif það hefur að skipta um bólu­efni, eftir að bólu­setn­ing er hafin með efni frá öðrum fram­leið­enda.

Í Bret­landi hefur svo verið ákveðið að mæla með öðru bólu­efni fyrir fólk á aldr­inum 18-29 ára. Ástralar og Fil­ippsey­ingar hafa einnig sett ald­urs­mörk en Afr­íku­banda­lagið, sem semur um bólu­efna­kaup fyrir hönd landa innan álf­unnar, hefur ákveðið að hætta við kaup á efn­inu.

Í Þýska­landi, Svíþjóð, Hollandi, Finn­landi og Norður-Makedóníu hafa einnig verið sett ald­urs­mörk og efnið ekki gefið yngra fólki. Sömu sögu er að segja héðan frá Íslandi. Notkun efn­is­ins var hætt tíma­bundið í byrjun mars líkt og víðar. Það var tekið í notkun á ný í lok mars en er nú ein­ungis gefið fólki yfir sjö­tugu. Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir sagði á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna og land­læknis í gær að hugs­an­lega yrðu ald­urs­mörkin færð niður í 65 ára sem yrði þá í sam­ræmi við leið­bein­ingar og notkun á því í Svíþjóð og Finn­landi.

Í Kanada er aðeins eldra fólki gefið bólu­efni AstraZeneca. Þar í landi á nú að fara þá leið að lengja mjög tím­ann á milli fyrri og seinni sprautu allra bólu­efn­anna sem eru notuð. Er þetta gert til að bólu­setja sem flesta á sem stystum tíma, með sér­stakri áherslu á fram­línu­starfs­fólk. Kanadísk heil­brigð­is­yf­ir­völd telja þetta gríð­ar­lega mik­il­vægt en sam­bæri­leg leið hefur verið farin víðar, m.a. í Banda­ríkj­unum og Bret­landi. „Full­bólu­settir“ eru mun færri en tölur yfir „bólu­setta“ gefa til kynna.

Í Kanada munu nú líða allt að fjórir mán­uðir á milli fyrri og fyrstu sprautu sam­kvæmt nýjum leið­bein­ingum sótt­varna­yf­ir­valda. Seinni skammt­inn á þó að bjóða um leið og mögu­legt er eftir að ákveð­inn hluti allrar þjóð­ar­innar hefur fengið fyrri skammt­inn. Í for­gangi eru sem fyrr fólk í við­kvæmum hópum, eldra fólk og fram­línu­starfs­menn.

Ákvörð­unin er m.a. byggð á nýjum rann­sóknum sem þykja sýna að með fyrri sprautu bólu­efna sem eru á mark­aði dragi veru­lega úr hættu á því að fólk veik­ist alvar­lega, fái það COVID-19, eða um 80 pró­sent.

Danmörk og Noregur hafa enn ekki hafið bólu­setn­ingu með AstraZeneca á ný og nú eru komnar blikur á loft varð­andi nýjasta bólu­efnið sem fengið hefur mark­aðs­leyfi í Evrópu: Bóluefni Johnson & Johnson sem dótt­ur­fyr­ir­tæki þess Janssen fram­leiðir. Evrópska lyfja­stofnun var­aði við því í dag að það efni gæti mögu­lega valdið sam­bæri­legum veik­indum, blóð­tappa, og AstraZeneca-bólu­efnið. Bæði efnin eru fram­leidd með sams­konar aðferðum.

Enn er ekki farið að nota Janssen-efnið í Evrópu en í Banda­ríkj­unum, þar sem notkun þess er hafin, hafa komið í ljós nokkur til­felli blóð­tappa hjá fólki sem hefur verið bólu­sett með því. Þessi til­felli eru enn mjög fá, aðeins fjögur. Einn þeirra sem fékk blóð­tappa í þriðja fasa rann­sóknar á bólu­efn­inu er lát­inn.

Þetta er enn eitt höggið í bólu­efna­her­ferð heims­ins og í Noregi, svo dæmi sé tekið, mun þetta mögu­lega hafa þau áhrif að mark­miðum um bólu­setn­ingu bróð­ur­parts lands­manna mun seinka nokkuð. Sér­stak­lega í ljósi þess að engin ákvörðun hefur enn verið tekin um hvort og þá hvenær farið verði að bólu­setja með AstraZeneca á ný.

Mikil eft­ir­vænt­ing ríkti vegna Janssens-bólu­efn­is­ins þar sem það þarf aðeins að gefa í einni sprautu. Sótt­varna­yf­ir­völd í Noregi segja að mögu­lega verði um 9-13 vikna dráttur á því að mark­mið um bólu­setn­ingar náist.

Sótt­varn­ar­stofnun Noregs hefur nú yfir að ráða lager með 166 þús­und skömmtum af AstraZeneca-bólu­efn­inu. Það hefur ekki verið notað í land­inu í fjórar vikur. Hvort að notkun þess hefj­ist á ný mun koma í ljós 15. Apríl er yfir­völd skila af sér ítar­legum gögnum um mögu­legar auka­verk­anir þess.

„Ég er alveg hand­viss um það að það verður erfitt að byrja að nota þetta bólu­efni aftur í Noregi,“ hefur NRK eftir Gunnveig Grødeland, bólu­efna­sér­fræð­ingi við Háskól­ann í Ósló. Hún seg­ist svart­sýn á að það verði gert.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bóluefni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár