Kjörinn fulltrúi Miðflokksins í Múlaþingi firrir sig ábyrgð á bólusetningu barna

Lögmaður og vara­þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins hefur ritað opið bréf fyrir hönd sveit­ar­stjórn­ar­manns í Múla­þingi, þar sem varað er við bólu­setn­ingum barna á aldr­inum 5-11 ára. Full­trú­inn firrir sig ábyrgð á bólu­setn­ingum barna í sveit­ar­fé­lag­inu.

Þröstur Jónsson sveitarstjórnarmaður í Múlaþingi og Arnar Þór Jónsson lögmaður hans og varaþingmaður.
Þröstur Jónsson sveit­ar­stjórn­ar­maður í Múla­þingi og Arnar Þór Jónsson lög­maður hans og vara­þing­maður. Mynd: Samsett

Þröstur Jónsson, sveit­ar­stjórn­ar­full­trúi Mið­flokks­ins í Múla­þingi, hefur sent opið bréf til félaga sinna í sveit­ar­stjórn, skóla­stjórn­enda í sveit­ar­fé­lag­inu og yfir­manna Heil­brigð­is­stofn­unar Aust­ur­lands, þar sem hann seg­ist ekki ætla að taka „ábyrgð á fyr­ir­hug­aðri lyfja­gjöf barna í grunn­skólum Múla­þings eða í öðrum stofn­unum sveit­ar­fé­lags­ins og und­ir­strikar að hann styðji á engan hátt slíkan gjörn­ing.“

Arnar Þór Jónsson lög­maður, sem einnig er vara­þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, ritar þetta opna bréf fyrir hönd sveit­ar­stjórn­ar­manns­ins, en það var birt á hér­aðs­frétta­miðl­inum Aust­ur­frétt í morgun.

Í bréf­inu er marg­hátt­uðum efa­semdum um bólu­setn­ingar barna á aldr­inum 5-11 ára varpað fram, auk þess sem þar segir að sú ákvörðun að nota hús­næði skóla, íþrótta­mann­virki eða hús­næði í eigu eða umsjá sveit­ar­fé­laga undir bólu­setn­ing­arnar sé mjög gagn­rýni­verð.

„Börn gætu skipst í fylk­ingar og þau óspraut­uðu lent utan­garðs eða upp­lifað sig óhrein eða hættu­leg. Þannig gætu þau orðið út undan í frí­mín­útum, leikjum eða orðið fyrir ein­elti. Þess háttar félags­leg útskúfun gæti allt eins náð út fyrir veggi skóla og til athafna eftir skóla­tíma til dæmis til heim­sókna, afmæla eða íþrótta­iðk­unar,“ segir í bréf­inu frá Þresti.

Þar er einnig vísað til einnar rann­sóknar um tíðni hjarta­vöðva- eða goll­ur­húss­bólgu hjá 12-15 ára drengjum í Hong Kong, nýlegrar greinar lækn­is­ins Jóns Ívars Ein­ars­sonar í Morg­un­blað­inu þar sem hann sagð­ist vera þeirra skoð­unar að áhætta við bólu­setn­ingu „gæti hugs­an­lega verið meiri en ávinn­ing­ur­inn“ og fréttar af vef Reuters síðan í des­em­ber um að 8 væg til­felli hjarta­vöðva­bólgu hjá börnum á aldr­inum 5-11 ára hefðu komið í ljós í Banda­ríkj­unum eftir að rúm­lega sjö millj­ónir skammta af bólu­efni hefðu verið gefnir þessum ald­urs­hópi.[links]

Vert er að taka fram að einn helsti sér­fræð­ingur lands­ins í þessum efnum, Ingileif Jóns­dóttir pró­fessor við lækna­deild Háskóla Íslands og deild­ar­stjóri hjá Íslenskri erfða­grein­ingu, rit­aði grein í Kjarnann þar sem hún mælir heils­hugar með bólu­setn­ingum barna á aldr­inum 5-11 ára. Hún hefur sér­þekk­ingu á þessu sviði, sem hvorki sveit­ar­stjórn­ar­full­trú­inn né lög­maður hans hafa.

Í grein Ingi­leifar segir að þeir sem leggi á sig að lesa og rýna í rann­sóknir sem gerðar hafi verið á bólu­efnum megi vera ljóst að nýjar og ábyggi­legar rann­sóknir sýni svart á hvítu, „að við eigum að tryggja 5-11 ára börnum sömu heil­brigð­is­þjón­ustu og þeim sem eldri eru, og sömu vernd gegn alvar­legum afleið­ingum COVID-19 með bólu­setn­ingu.“

Þröstur spyr þó í bréfi sínu, eða Arnar Þór fyrir hans hönd, hvort við­tak­endur bréfs­ins viti af þeim afleið­ingum bólu­setn­inga sem minnst er á í bréf­inu.

[adspot]

„Munt þú, stofn­unin, fyr­ir­tækið, heil­brigð­is­stofn­unin, leik­skól­inn, skól­inn eða stað­ur­inn sem þú vinnur hjá eða veitir for­stöðu taka ábyrgð á veik­indum og skað­legum eft­ir­köstum ef for­eldrar svara hvatn­ingu þinni um að mæta með börnin í sprautu?“ spyr sveit­ar­stjórn­ar­full­trú­inn og bætir síðan við þeirri spurn­ingu, hvort við­tak­endur bréfs­ins þekki efni Nürnberg-sátt­mál­ans.

„Þar kemur meðal ann­ars fram að það telst ekki málsvörn að hafa fylgt fyr­ir­mælum og firrir engan ábyrgð. Í því sam­hengi er ljóst að menn geta ekki vikið sér undan ábyrgð með skírskotun til þess að slíkt hafi verið „fyr­ir­skipað“. Sið­ferði­legir val­kostir fram­kalla sið­ferði­lega ábyrgð. Skorað er á þig að horfast í augu við þá ábyrgð og axla hana. Börnin eiga að njóta vafans,“ segir í bréf­inu.

Þar er því einnig haldið fram að það hljóti að ganga í ber­högg við siða­reglur lækna „að sprauta börn með ein­hverju sem ekki er vitað hvaða áhrif hefur til lang­frama til að verja aðra“ og einnig segir að færa megi rök fyrir því að „fyr­ir­huguð aðgerð,“ þ.e. bólu­setn­ing barna, „stríði í ýmsu til­liti gegn siða­reglum kenn­ara.“

Í bréf­inu segir að „við stöndum á kross­götum sem sam­fé­lag“ og kjörnir full­trúar, skóla­stjórn­endur og for­stöðu­menn HSA eru spurðir að því hvort þeir vilji skipa sér „í flokk með þeim sem hyggj­ast beita lyfja­fræði­legum inn­gripum gagn­vart börnum með ófyr­ir­sjá­an­legum afleið­ingum“ eða hvort þeir vilji „gæta var­úðar og bíða meðan minnsti efi er til staðar“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bóluefni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár