Fólk yfir fimmtugu fær ekki lengur bóluefni Pfizer

Til að hraða bólu­setn­ingum í Ástralíu hefur verið gripið til þess ráðs að gera bólu­efni AstraZeneca að fyrsta kosti hjá fimm­tíu ára og eldri. Yngra fólk og fram­línu­starfs­menn munu áfram fá efnið frá Pfizer.

Ferðamaður að koma inn á sóttkvíarhótel í Melbourne.
Ferða­maður að koma inn á sótt­kví­ar­hótel í Melbourne. Mynd: EPA

Fimmtíu ára og eldri Ástralar munu ekki fá bólu­efni Pfizer gegn COVID-19 fyrr en í lok árs­ins. Stjórn­völd í land­inu hafa breytt áherslum í bólu­setn­ing­ar­her­ferð sinni veru­lega og að auki sam­þykkt að setja veru­legar ferða­hömlur á fólk sem er að koma frá Indlandi og mögu­lega öðrum háá­hættu­löndum.

Ítarlega er fjallað um þessar breyttu áætl­anir í frétt Sydney Morning Herald og þar kemur fram að frá og með mán­aða­mótum, þegar næsta stig bólu­setn­ing­ar­her­ferð­ar­innar verði stigið, verði bólu­efni frá AstraZeneca fyrsti kostur fyrir fimm­tíu ára og eldri og bólu­efni Pfizer gefið yngra fólki, fólki í fram­línu­störfum sem og öldruðum á hjúkr­un­ar­heim­ilum sem enn á eftir að bólu­setja.

Mjög harðar aðgerðir hafa verið í Ástralíu frá því far­ald­ur­inn braust út og skellt hefur verið stað­bundið í lás þar sem smit hafa komið upp. Þeir sem koma til lands­ins, fyrir utan ferða­menn frá Nýja-Sjálandi sem myndað hefur ferða­kúlu með Ástralíu, þurfa að dvelja á sótt­kví­ar­hót­elum í tvær vikur. Nú er svo komið að sífellt fleiri sem þar dvelja eru að grein­ast með COVID-19 og því hefur að sögn for­sæt­is­ráð­herr­ans Scotts Morrison verið ákveðið að draga veru­lega úr ferða­lögum frá Indlandi, þar sem far­ald­ur­inn er í gríð­ar­legri upp­sveiflu, sem og frá nokkrum öðrum löndum þar sem svipað er uppi á ten­ingnum. Þá verða einnig settar ferða­hömlur á fólk á hinn veg­inn, þ.e.a.s. veru­lega á að draga úr ferða­lögum frá Ástralíu til þess­ara háá­hættu­svæða.

Nítján smit greindust á sótt­kví­ar­hót­elum í gær og var um helm­ingur þeirra, líkt og síð­ustu daga, hjá fólki sem var að koma frá Indlandi.

Morrison sagði þetta erf­iðar ákvarð­anir en að rík­is­stjórnin teldi þær nauð­syn­legar.

Í byrjun maí hefst næsta stig bólu­setn­ing­ar­her­ferð­ar­innar í land­inu og það verður breytt frá því sem áður stóð til. Enn verður lögð áhersla á að verja fram­línu­starfs­menn, unga sem aldna, og með bólu­efni Pfizer, en aðrir eldri en fimm­tugir munu fá bólu­efni AstraZeneca utan, líkt og fyrr segir, aldr­aðir íbúar hjúkr­un­ar­heim­ila.

„Pfizer verður ekki í boði fyrir fólk yfir fimm­tugu fyrr en við fáum stærri send­ingar af því síðar á þessu ári,“ sagði heil­brigð­is­ráð­herr­ann Brendan Murphy.

Um 1,8 millj­ónir skammta af bólu­efnum hafa verið gefnir í Ástralíu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bóluefni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár