Umsókn um líf- og sjúkdómatryggingu frestað vegna „óljósra aukaverkana af bóluefni“

Kona sem sótti um líf- og sjúk­dóma­trygg­ingu hjá TM fékk ekki trygg­ing­una heldur var umsókn­inni frestað vegna óljósra auka­verk­ana af bólu­efni. Embætti land­læknis hefur ekki heyrt af málum sem þessu.

„TM líf­trygg­ingar hf. hefur haft umsókn þína um líf- og sjúk­dóma­trygg­ingu til skoð­unar. Það er nið­ur­staða áhættu­mats félags­ins að það verður því miður að fresta henni vegna óljósra auka­verk­ana af bólu­efni. Félagið er reiðu­búið að skoða nýja umsókn frá þér síðar.“

Þannig hljómar svar trygg­inga­fé­lags­ins TM við umsókn konu um líf- og sjúk­dóma­trygg­ingu, sem Kjarninn hefur undir höndum. Samkvæmt fyr­ir­tæk­inu hefur það einu sinni frestað slíkri umsókn og aldrei neitað. Að sögn kon­unnar var hún spurð í umsókn­ar­ferl­inu hvort hún hefði upp­lifað ein­hver „hjarta­vanda­mál“ og sagði hún frá því að hún hefði fundið fyrir hjart­slátt­ar­trufl­unum eftir bólu­setn­ingu. Einnig að blæð­ingar hefðu orðið óreglu­legar.

Kjarninn sendi fyr­ir­spurnir á hin stærstu trygg­inga­fé­lögin, Sjóvá og VÍS, en sam­kvæmt svörum frá þeim hafa þau ekki frestað eða hafnað umsóknum um líf- og sjúk­dóma­trygg­ingar á þessum for­sendum.

Í svari emb­ættis land­læknis við fyr­ir­spurn Kjarnans kemur fram að þau hafi „ekk­ert heyrt af málum sem þessum“.

[adspot]

Yfir 280.000 Íslendingar fullbólusettir

Samkvæmt upp­lýs­ingum á covid.is eru 90 pró­sent lands­manna full­bólu­settir, 12 ára og eldri. 286.323 ein­stak­lingar hafa fengið að minnsta kosti einn skammt, 281.841 ein­stak­lingur hefur verið full­bólu­settir og 121.234 ein­stak­lingar fengið örv­un­ar­skammt.

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir hefur frá upp­hafi hvatt fólk til að bólu­setja sig og nú síð­ast í gær, 8. des­em­ber. í pistli á covid.is.

„Þar sem að delta afbrigði kór­óna­veirunnar er enn í miklum meiri­hluta hér og erlendis þá er mik­il­vægt að allir mæti í bólu­setn­ingu og þiggi jafn­framt örv­un­ar­skammt. Ávinn­ingur af bólu­setn­ingu og sér­stak­lega örv­un­ar­skammti er ótví­ræður,“ skrif­aði hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bóluefni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár