Fólk þarf að finna „aðrar leiðir til að henda leyndarmálunum sínum“

Sorpa hefur bannað notkun á svörtum plast­pokum á end­ur­vinnslu­stöðvum fyr­ir­tæk­is­ins – og tekið upp þá glæru. Samkvæmt fyr­ir­tæk­inu hafa fyrstu dag­arnir gengið vel en til­gang­ur­inn er að minnka urðun til muna.

Sorpa hefur ákveðið að „kveðja“ svarta rusla­pok­ann og taka þess í stað á móti glæra pok­anum á end­ur­vinnslu­stöðvum fyr­ir­tæk­is­ins. Svarta plast­poka­bannið tók gildi þann 1. júlí síð­ast­lið­inn en sam­kvæmt Sorpu er til­gangur banns­ins að stuðla að meiri end­ur­vinnslu og styðja við hringrás­ar­hag­kerfið.

Allur úrgangur og end­ur­vinnslu­efni þarf því að koma í glærum pokum á end­ur­vinnslu­stöðvar. Það þýðir að engum úrgangi megi skila í ógagn­sæjum pokum á end­ur­vinnslu­stöðvar Sorpu.

Gunnar Dofri Ólafsson, sér­fræð­ingur í sam­skiptum og sam­fé­lags­virkni hjá Sorpu, segir í sam­tali við Kjarnann að um sé að ræða alla svarta poka sem koma inn á Sorpu, þar með talið poka undir flöskur og dósir. „Meg­in­reglan er sú að allt eigi að vera í glærum pokum. Annað væri bara til að flækja hlut­ina fyrir starfs­fólkið og við­skipta­vin­ina.“

Mikilvægt að fyrirtæki fari á „þennan vagn“

Krónan greindi frá því í fyrra­dag að sölu á svörtum rusla­pokum hefði verið hætt í versl­un­inni en glærir rusla­pokar kæmu þeirra í stað. „Til­gang­ur­inn með breyt­ing­unni er að stuðla að auk­inni end­ur­vinnslu og að efla hringrás­ar­hag­kerfið en frá deg­inum í dag eiga við­skipta­vinir Sorpu að koma með allan úrgang og end­ur­vinn­an­legt efni í glærum pokum á end­ur­vinnslu­stöðvar. Glæru pok­unum er ætlað að auð­velda starfs­fólki end­ur­vinnslu­stöðv­anna að aðstoða við­skipta­vini að skila end­ur­vinnslu­efnum í réttan far­veg,“ segir í til­kynn­ingu frá Krónunni.

Gunnar Dofri segir að glæru pok­arnir verði ekk­ert vanda­mál þegar allir verða komnir á þennan vagn. „Það þarf auð­vitað smá hug­rekki til að hálfu fyr­ir­tækis að taka þessa ákvörðun og fara út í þetta en þetta sýnir mik­il­vægi þess að atvinnu­lífið komi inn í þessi mál og ekki endi­lega með hlutum sem kosta neitt, heldur til að taka þátt.“

Fólk á vænt­an­lega enn lager heima af svörtum rusla­pokum, hvað á að gera við þá?

„Jú, að sjálf­sögðu skellum við ekki á nefið á fólki á degi eitt. Þetta verður stig­vax­andi en því lengur sem líður frá 1. júlí þeim mun minni þol­in­mæði munum við hafa fyrir svörtum pokum.“

Hefur Sorpa fyr­ir­myndir varð­andi þessa glæru poka?

Gunnar Dofri segir að glærir pokar hafi verið not­aðir í Danmörku til margra ára. „Maður heyrir í vinum og kunn­ingjum í Danmörku sem hósta og spyrja: „Ha, eruð þið ennþá að nota svarta poka á end­ur­vinnslu­stöðvum? Hvað eruð þið að pæla?“ Þannig að við erum þessum hefð­bundnu 10 árum á eftir með allt.“

Glæru pokarnir ekki umhverfisvænni en þeir svörtu

Eru fleiri ástæður en sjá­an­leiki fyrir því að skipta yfir í glæra poka?

Hann segir að í sjálfu sér séu glæru pok­arnir ekki umhverf­is­vænni en þeir svörtu. „Þeir koma út á sléttu með þetta. Við höfum fengið boð frá fyr­ir­tækjum erlendis um að breyta plast­inu okkur í gagn­sæja poka. Þannig að glærir pokar geta verið úr tærri end­ur­vinnslu­af­urð en til­gang­ur­inn er fyrst og fremst að hjálpa okkar fólki að leið­beina um hvað eigi að fara hvert.“

Bendir hann enn fremur á að glæru pok­arnir nýt­ist flestum betur. „Til dæmis þegar maður fer að taka til í geymsl­unni þá er það mikið betra fyrir mann að vera með hlut­ina í glærum pokum svo maður sjái hvað er í þeim og þurfi ekki að opna þá. Þannig að þegar fólk kemur á stöðv­arnar þá veit það hvað er í pok­unum og þarf ekki að rífa þá upp.“

Þá er eins gott að fólk sé ekki með „leyndó“ í glæru pok­unum?

„Já, það þarf þá að finna ein­hverjar aðrar leiðir til að henda leynd­ar­mál­unum sínum,“ segir hann kím­inn.

Ódýrara fyrir samfélagið að urða minna

Gunnar Dofri segir að fyrstu dag­arnir hafi gengið ágæt­lega. Fólk taki þessum breyt­ingum vel.

„Það er í sjálfu sér engin ástæða til að hafa poka ekki gagn­sæja. Við sjáum það alla­vega ekki. Við erum líka ekki að gera þetta að gamni okkar, við förum ekki út í þetta bara vegna þess að við viljum það heldur er grund­vallar­á­stæðan fyrir því að við viljum fá allt í glæru svo helm­ing­ur­inn af því sem er hent í urð­un­ar­gám­inn geti farið á betri stað – í end­ur­vinnslu eða jafn­vel end­ur­not hjá Góða hirð­inum. Þannig að þetta er fyrst og fremst hugsað sem aðgerð í þágu umhverf­is­ins og hringráðs­ar­hag­kerf­is­ins.

Svo er þetta ódýr­ara fyrir sam­fé­lagið því Sorpa og end­ur­vinnslu­stöðv­arnar eru reknar fyrir útsvar íbúa á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og þeir þurfa að greiða fyrir það sem verður um úrgang­inn. Þannig að því minna sem þarf að fara í urðun, og síðan brennslu þegar við hættum að urða, því ódýr­ara.“

Hann segir að í full­komnum fram­tíð­ar­heimi myndu Íslend­ingar ekki urða eitt gramm en því miður sé þó ólík­legt að af því verði. „En það er stefnan. Við viljum ekki urða,“ segir hann að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Neytendamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár