Segir þingmann ein­blína of mikið á eina ákveðna lausn – Sorpbrennsla sé ekki eina leiðin

Umhverfis- og auð­linda­ráð­herra og þing­maður Mið­flokks­ins ræddu með­höndlun sorps á Alþingi í dag.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra.
Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

„Við verðum að auka end­ur­notkun á hlutum. Við eigum að nota þá betur. Við eigum að nota minna og við eigum að end­ur­vinna eins mikið og við getum.“ Þetta sagði Guð­mundur Ingi Guð­brands­son umhverfis- og auð­linda­ráð­herra í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag en hann telur að sorp­brennslur séu ekki eina lausnin til að með­höndla sorp sem best hér á landi.

Karl Gauti Hjalta­son, þing­maður Mið­flokks­ins, vakti máls á mál­efn­inu og beindi spurn­ingum til umhverfis- og auð­linda­ráð­herra.

„Eins og hæst­virtum ráð­herra er kunn­ugt um urðum við mest­allt okkar sorp í dag. Þannig urðum við árlega um og yfir 200.000 tonn af sorpi og und­an­skil ég þar allan óvirkan úrgang. Þá höfum við einnig á und­an­förnum árum flutt út tölu­vert magn af úrgangi og kom fram í svari hæstv. ráð­herra við fyr­ir­spurn frá mér fyrr í vetur að þar er um að ræða um það bil 120.000 tonn árlega, að mestu til end­ur­nýt­ingar og -vinnslu. Nýlegar fréttir um eitt­hvað af sorpi Vest­ur­landa endi á risa­stórum sorp­haugum í löndum þriðja heims­ins valda okkur auð­vitað áhyggjum af afdrifum alls þess sorps sem verið er að flytja á milli landa,“ sagði Karl Gauti.

Þing­mað­ur­inn sagið að í ljósi þess að nú liti út fyrir að urðun verði hætt í Álfsnesi innan tveggja ára vildi hann beina þeirri spurn­ingu til ráð­herra hvort hann gæti ekki verið sam­mála honum um að við getum ekki lengur haldið áfram á þess­ari braut, það er að urða og flytja út úrgang.

[links]„Ef hann er sam­mála mér, hvaða lausnir sér hæst­virts ráð­herra fyrir sér í þeim efnum? Verðum við ekki að leysa sorp­mál okkar sem næst upp­runa­stað sorps­ins, það er hér á landi? Nú hefur tækni við brennslu sorps fleygt fram á umliðnum árum og vest­rænar þjóðir hafa byggt mjög umhverf­is­vænar sorp­brennslur í því skyni að losna við úrgang og fram­leiða um leið varma og raf­orku sem þær svo nýta. Ég hef í þrí­gang flutt til­lögu um að stjórn­völd kanni af alvöru að reisa slíka stöð hér á landi og leysa þannig sorp­vanda okkar. Sér hæst­virtur ráð­herra fyrir sér að hann beiti sér fyrir því að slík stöð rísi hér á landi?“ spurði Karl Gauti.

Hefur talað fyrir því að setja á urðunarskatt

Guð­mundur Ingi svar­aði og sagð­ist vera sam­mála Karli Gauta um að draga yrði mjög mikið úr urðun, en að það væri einmitt eitt af við­fangs­efnum nýrrar stefnu um með­höndlun úrgangs sem drög væru komin að í sam­ráðs­gátt stjórn­valda.

„Að auki eru drög að laga­breyt­ingum sem munu einmitt leiða til þess, ef að líkum lætur, að urðun minnki til muna hér á landi. Meðal ann­ars er stefnt að því að taka upp skyldu á flokkun, sam­ræma flokkun alls staðar á land­inu og færa þjón­ust­una nær íbú­unum þannig að í þétt­býli verði skylda að bjóða upp á við hús­vegg að taka á móti líf­rænum úrgangi, úrgangi sem er með pappa og pappír og plasti.“

Sagði ráð­herr­ann þetta allt saman vera grund­vall­ar­at­riði til að ýta undir end­ur­vinnslu­sam­fé­lag á Íslandi og að það skipti mjög miklu máli. „Ég hef talað fyrir því að setja á urð­un­ar­skatt til þess að búa til hvata til að leiða til þess að það verði minni urðun en er í dag. Það er í þess­ari stefnu og ég von­ast til að geti komið til fram­kvæmda á næstu árum.

Mig langar að segja varð­andi sorp­brennslu og beina því til hátt­virts þing­manns að sorp­brennslur eru ekki eina lausnin, en þær eru lausnin á því sem við getum ekki end­ur­notað, getum ekki end­ur­unnið eða end­ur­nýtt. Það er betra að brenna sorpi og búa til orku en að urða það. En við megum ekki byggja upp þannig kerfi að það sé eina lausnin í úrgangs­málum á Íslandi. Þá væri ekki vel fyrir okkur komið. En við þurfum að vinna að þeim lausnum líkt og öðrum.“

„Er ekki kominn tími til að fara að undirbúa byggingu hátæknisorpbrennslustöðvar?“

Karl Gauti spurði ráð­herr­ann í annað sinn og sagð­ist fagna því að hann hefði látið vinna skýrslu sem heitir Stefna í með­höndlun úrgangs. Drög að þeirri stefnu hefðu verið sett í umsagn­ar­ferli á vegum ráðu­neyt­is­ins í átt að hringrás­ar­hag­kerfi.

Vildi hann benda ráð­herra á að þar væru lögð drög að 24 aðgerðum á vegum stjórn­valda í úrgangs­málum en að þar væri ekki að finna nein áform um að reisa sorp­brennslu­stöð hér á landi.

„Hæst­virtur ráð­herra talar um að til séu fleiri leiðir. Ég get tekið undir það, það hefur einnig verið rann­sakað að hægt er að end­ur­nýta úrgang og auð­vitað verðum við að stefna að því. En í dag erum við að urða 200.000 tonn, og yfir það, og flytja eitt­hvað út. Og þó að við end­ur­nýtum og end­ur­vinnum tölu­verðan hluta þarf alltaf að losna við eitt­hvað. Nið­ur­stöður þess­arar skýrslu eru þær að það eru u.þ.b. 100.000 tonn. Hvað ætlar hæst­virtur ráð­herra að gera í þeim málum? Og tím­inn líður, Álfsnes er að loka. Er ekki kom­inn tími til að fara að und­ir­búa bygg­ingu hátækni­sorp­brennslu­stöðvar?

Íslendingar urða of mikið

Guð­mundur Ingi svar­aði og benti á að end­ur­vinnslu­hlut­fall heim­il­is­úr­gangs væri um 30 pró­sent á Íslandi, en ætti að vera 50 pró­sent. Það væri við­fangs­efnið.

„Við urðum of mikið, það er hár­rétt hjá hátt­virtum þing­manni. En að halda að sorp­brennsla sé eina lausnin í þessu sam­bandi segir mér bara að þing­mað­ur­inn ein­blínir of mikið á eina ákveðna lausn. Við verðum að auka end­ur­notkun á hlutum. Við eigum að nota þá betur. Við eigum að nota minna og við eigum að end­ur­vinna eins mikið og við getum. Að því sögðu er í skoðun á milli Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga og ráðu­neyt­is­ins og fleiri aðila með hvaða hætti sorp­brennslu­mál­unum verði best fyrir komið á Íslandi vegna þess að það kallar á ákvörðun um það hvort við eigum að ráð­ast í eina stóra stöð, sem næst upp­runa úrgangs­ins, eða fleiri minni sem yrðu þá dreifðar út um allt land og sú vinna er í gangi,“ sagði ráð­herr­ann að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár