Óendurvinnanlegur úrgangur á bilinu 40 til 100 þúsund tonn á ári fram til ársins 2045

Skýrsla um þörf fyrir sorp­brennslu­stöðvar á Íslandi hefur litið dags­ins ljós. Umhverfis- og auð­linda­ráð­herra fagnar úttekt­inni og segir að nú sé hægt að stíga næstu skref.

Áður en ráð­ist er í upp­bygg­ingu á sorp­brennslu­stöð eða -stöðvum þá er nauð­syn­legt að skoða nánar inni­hald bland­aðs úrgangs á öllu land­inu, greiða úr upp­runa­skrán­ingu úrgangs og skoða tæki­færi til þess að nýta auka­af­urðir sorp­brennslu­ofna á Íslandi. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu um þörf fyrir sorp­brennslu­stöðvar á Íslandi sem birt var á vef Stjórn­ar­ráðs­ins í síð­ustu viku.

Skýrslan nefn­ist Greining á þörf sorp­brennslu­stöðva á Íslandi og var unnin af ráð­gjafa­fyr­ir­tæk­inu ReSource International fyrir Umhverf­is­stofnun að beiðni umhverfis- og auð­linda­ráðu­neyt­is­ins.

Talið er að óend­ur­vinn­an­legur úrgangur hér á landi verði á bil­inu 40 til 100 þús­und tonn á ári fram til árs­ins 2045, að því er fram kemur hjá umhverfis- og auð­linda­ráðu­neyt­inu. Í skýrsl­unni er fjallað um þrjár mögu­legar útfærslur varð­andi sorp­brennslu. Eina stóra sorp­brennslu­stöð á Suð­vest­ur­landi sem hefði 90 til 100 þús­und tonna brennslu­getu á ári, fimm minni sorp­brennslu­stöðvar sem dreifðar væru um landið og svo útflutn­ing á sorpi til brennslu.

Skil­grein­ing á óend­ur­vinn­an­legum úrgangi í skýrsl­unni er úrgangur sem endar í förgun en ekki í end­ur­vinnslu eða end­ur­nýt­ingu. „Hver þróun þessa úrgangs verður í magni til fram­tíðar er háð þeim árangri er næst í end­ur­vinnslu og end­ur­nýt­ingu á næstu ára­tugum. Fyrirséð er að ákveð­inn hluti úrgangs verði alltaf óend­ur­vinn­an­legur og því þarf að leita lausna til með­höndl­unar á honum. Hluta af óend­ur­vinn­an­legum úrgangi er t.d. hægt að brenna til orku­nýt­ingar.“

„Jákvætt að við séum að horfa til þess að takast á við þetta hér heima“

Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra, segir í sam­tali við Kjarnann að hann hafi beðið um að þessi skýrsla yrði unnin vegna þess að upp­lýs­ingar vant­aði um þörf­ina á sorp­brennslu­stöð við þær aðstæður sem gert er ráð fyrir að verði í fram­tíð­inni þegar Íslend­ingar verða farnir að end­ur­vinna miklu meira – sem mark­miðið sé.

„Skýrslan leiðir í ljós að þörf sé á brennslum, það sé ekki skyn­sam­leg til lengri tíma að flytja þetta út til brennslu og færðar fyrir því þær ástæður að það sé ekki gott að flytja sorp til útlanda út af sótspori heldur líka sé ýmis­legt sem bendi til þess að gjöld væru lögð á þetta úti þegar kemur að því að taka á móti sorpi frá öðrum löndum.

Ég held að það sé mjög jákvætt að við séum að horfa til þess að takast á við þetta hér heima. Þá er spurn­ingin hversu stóra brennslu­stöð við þurfum fyrir þann úrgang sem lík­legt er að þurfi að brenna eftir 20 ár, þegar við verðum búin að ná betri árangri í úrgangs­málum,“ segir ráð­herr­ann.

Álitlegasta staðsetning á brennslustöð í eða nálægt höfuðborgarsvæðinu

Guð­mundur Ingi segir að verk­efnið núna sé að finna út úr því hvað sé skyn­sam­leg­ast að gera í þessum málum. „Eigum við að vera með eina brennslu­stöð og þá hvar eða eigum við að vera með fleiri dreifðar út um landið? Þetta er vinna sem þarf að fara í gang núna og í sam­starfi ríkis, sveit­ar­fé­laga og einka­að­ila. Eftir sem áður erum við til­tölu­lega fá þannig að ég held að það sé mik­il­vægt að við náum utan um þetta fljótt og vel og að það verði teknar ákvarð­anir með hvaða hætti sé best að gera þetta.“

Í skýrsl­unni kemur fram að kostir þess að vera með eina brennslu­stöð á land­inu sé að rekstr­ar­kostn­aður sé lágur sam­an­borið við margar litlar. Álit­leg­asta stað­setn­ing á slíkum ofni sé í eða nálægt höf­uð­borg­ar­svæð­inu þar sem upp­spretta brenn­an­legs úrgangs sé sirka 73 pró­sent af heild­inni yfir land­inu öllu.

„Ofninn þyrfti að geta brennt um 11 til 13 tonn/klst ef miðað er við 8000 klst. gang­tíma á ári. Kostir þess að brennslu­stöðvum yrði dreift um landið er að dregið yrði úr flutn­ingi á úrgangi á milli lands­hluta og hægt væri hugs­an­lega að bæta orku­ör­yggi á ákveðnum stöðum á land­inu. Orku­nýt­ing væri meiri á köldum svæðum þar sem nýta mætti ork­una til hús­hit­unar. Þörf er á skil­virk­ari og nákvæm­ari gagna­öflun í flestum sveit­ar­fé­lögum til þess að geta áætlað nákvæm­ari orku­nýt­ing­ar­mögu­leika og stærð sér­hvers brennslu­ofns,“ segir í skýrsl­unni.

Kostir þess að sorp­brennsla fari fram erlendis er, sam­kvæmt skýrsl­unni, að nettó heild­ar­losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda frá brennslu sam­an­borið við urðun úrgangs er minni erlendis en á Íslandi. Það sé þó alfarið byggt á sam­an­burði við orku­fram­leiðslu með kolum erlendis, en mörg lönd hafi sett sér það mark­mið að hætta notkun á kolum við orku­fram­leiðslu fyrir 2037. Kostn­aður við útflutn­ing á úrgangi geti verið mjög breyti­legur en hann fari eftir olíu­verði, gengi gjald­miðla og svo fram­vegis og geti einnig hækkað tölu­vert á kom­andi árum í formi skatta á inn­fluttan úrgang.

Tímaramminn enn ekki ljós

Guð­mundur Ingi segir enn fremur að gott sé að vera kom­inn með þessa úttekt. Nú sé hægt að stíga næstu skref en eng­inn tímara­mmi sé þó enn kom­inn í ljós. „Við eigum eftir að átta okkur betur á því hvernig það verður.“

Samkvæmt skýrslu­höf­undum væri í kjöl­farið á þess­ari grein­ingu vert að skoða þörf á gas- og jarð­gerð­ar­stöðvum, skólp­hreinsi­stöðvum og end­ur­vinnslu­stöðvum á Íslandi og hvernig það hefði frek­ari áhrif á þörf fyrir sorp­brennslu.

Upp­bygg­ing sorp­brennslu­stöðva fæli í sér aukið aðgengi að þess konar úrgangs­með­höndl­un­ar­úr­ræði og í því sam­hengi væri ákjós­an­legt að sama aðgengi næð­ist einnig fyrir end­ur­vinnslu úrgangs­efna. „Jafn­framt hefur aukin skólp­hreinsun í för með sér aukn­ingu á brenn­an­legum úrgangs­efnum og fleiri gas- og jarð­gerð­ar­stöðvar geta dregið úr magni bland­aðs heim­il­is­úr­gangs og ann­arra brenn­an­legra úrgangs­efna. Í kafla 10.4 er rætt um brennslu úrgangs erlendis og því sam­hliða er nauð­syn­legt að ræða hvort öruggt sé að end­ur­vinnslu­stöðvar erlendis haldi áfram að taka á móti end­ur­vinnslu­efnum frá Íslandi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár