Spurði ráðherra hvort verið væri að brjóta á Reykjavíkurborg

Þing­flokks­for­maður Við­reisnar segir að það sé ekk­ert sem bendir til ann­ars en að krafa Reykja­vík­ur­borgar um fram­lög úr Jöfn­un­ar­sjóði sveit­ar­fé­laga sé full­kom­lega rétt­mæt. Hún spurði mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra út í málið á þingi í dag.

Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar.
Hanna Katrín Frið­riks­son, þing­flokks­for­maður Við­reisnar. Mynd: Bára Huld Beck

Hanna Katrín Frið­riks­son, þing­flokks­for­maður Við­reisnar, sagði í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag að henni þætti mjög miður að heyra að Lilja D. Alfreðs­dóttir, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, treysti sér ekki til að taka afstöðu til þess hvort Reykja­vík­ur­borg ætti rétt á fram­lögum úr Jöfn­un­ar­sjóð sveit­ar­fé­laga. Lilja sagð­ist ekki kunna að meta mál­flutn­ing sem aðgreinir fólk í Reykja­vík frá íbúum lands­byggð­ar­innar. Við værum öll í þessu saman.

Forsaga máls­ins er sú að Reykja­vík­ur­borg telur að hún hafi verið úti­lokuð frá því að hljóta fram­lög úr Jöfn­un­ar­sjóði sveit­ar­fé­laga árum saman og að sú úti­lokun sé bæði and­stæð lögum og stjórn­ar­skrá. Hún fer fram á 8,7 millj­arða króna auk vaxta og drátt­ar­vaxta vegna fram­laga sem hún fékk ekki á árunum 2015 til 2019.

„Þær risa­stóru áskor­anir sem sveit­ar­fé­lög lands­ins standa frammi fyrir vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins hafa varpað ljósi á þann leiða sið rík­is­stjórn­ar­innar að nálg­ast mál­efni sveit­ar­fé­laga gjarnan út frá hefð­bundnum póli­tískum átaka­línum frekar en hags­munum íbúa,“ sagði Hanna Katrín og spurði ráð­herra út í orð sam­ráð­herra hennar, Sigurðar Inga Jóhanns­sonar for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins, vegna kröfu Reykja­vík­ur­borgar um tekju­jöfn­un­ar­fram­lag.

Sigurður Ingi sagði á árs­fundi Jöfn­un­ar­sjóðs sveit­ar­fé­laga þann 18. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn að 8,7 millj­arða krafa Reykja­vík­ur­borgar væri frá­leit og lýsti henni sem óskilj­an­legri aðför borg­ar­innar.

[adspot]

Menntamálaráðherra er „jú þingmaður Reykvíkinga“

Hanna Katrín sagði að það væri ekk­ert sem benti til ann­ars en að krafa borg­ar­anna væri full­kom­lega rétt­mæt með til­liti til laga um Jöfn­un­ar­sjóð sveit­ar­fé­laga. „Það lítur út fyrir að á vakt þess­arar rík­is­stjórnar og allt þar til lög­unum var breytt að gefnu til­efni á síð­asta ári hafi Reykja­vík­ur­borg verið úti­lokuð með ólög­mætum hætti frá fram­an­greindum jöfn­un­ar­sjóðs­greiðslum.“

Hún vildi því spyrja Lilju út í þetta mál. „Þeir fjár­munir sem þarna eru undir snú­ast að stórum hluta um grunn­skóla­menntun í Reykja­vík og mennta­mála­ráð­herra er jú þing­maður Reyk­vík­inga. Þetta snýst um rekstur grunn­skól­anna þar og stuðn­ing við nem­endur sem hafa íslensku sem annað tungu­mál.

Er að mati hæst­virts ráð­herra rétt­læt­an­legt að stilla þessu máli upp sem bar­áttu lands­byggðar og höf­uð­borg­ar­innar? Við höfum sam­eig­in­lega hags­muni af því að hér þrí­fist öflug byggð á land­inu og sterk höf­uð­borg sem getur sinnt þessum skyldum sínum. Og við höfum líka hags­muni af því að fram­kvæmd laga fari ekki eftir henti­stefnu stjórn­mála­manna hverju sinni. Mig langar til að fá fram afstöðu hæst­virts ráð­herra þing­manns Reyk­vík­inga til þess­ara mála yfir höfuð,“ sagði Hanna Katrín.

Vildi ekki „fara út í það á þessum tímapunkti hvernig dæmið lítur nákvæmlega út“

Lilja svar­aði þing­mann­inum en hún vildi benda á mik­il­vægi þess að Íslend­ingar stæðu saman í þess­ari bar­áttu um að styrkja mennta­kerfið. „Að menntun sé fyrir alla og við vinnum að því sam­eig­in­lega. Hvað kröfu Reykja­vík­ur­borgar og jöfn­un­ar­sjóð­inn varðar þá er það skilj­an­legt og það eru allir að reyna að gera hvað þeir geta til að tryggja sinn rekstr­ar­grunn. Ég mun ekki fara út í það á þessum tíma­punkti hvernig dæmið lítur nákvæm­lega út.

Ég er hins vegar alger­lega sam­mála hátt­virtum þing­manni um að það skiptir öllu máli að rekstur, og allt sem sveit­ar­fé­lögin eru að gera, sé full­kom­lega sjálf­bær. Þar þurfa allir að huga að því hvernig rekst­ur­inn gengur. Við höfum unnið mjög mikið með Sambandi íslenskra sveit­ar­fé­laga í þessum kór­ónu­veiru­far­aldri. Við höfum unnið að reglum um skóla­hald, það hefur verið gríð­ar­lega mikið sam­ráð við alla fræðslu­stjór­ana. Við höfum einnig unnið að heild­ar­stefnu um mennta­mál, mennta­stefnu til árs­ins 2030. Við höfum einnig unnið að hvít­bók um mál­efni barna með annað móð­ur­mál en íslensku og þær aðgerðir sem rík­is­stjórnin hefur verið að fara í tengj­ast auð­vitað sveit­ar­fé­lög­unum líka. Við skulum hafa það alveg á hreinu,“ sagði Lilja.

Óumdeilt að Reykjavík drægi vagninn

Hanna Katrín kom aftur í pontu og sagði að henni þætti mjög miður að heyra að ráð­herra treysti sér ekki til að taka afstöðu til þessa máls. „Vegna þess að þetta er ein­falt. Er rík­is­stjórnin og hæst­virtur ráð­herra, þing­maður Reyk­vík­inga búin að fara þannig ofan í þessi mál að hún geti svarað því hvort að hún telji að hér sé verið að brjóta á Reykja­vík­ur­borg. Annars vegar lög og hins vegar hvort að orð sam­göngu­ráð­herra, ráð­herra sveit­ar­stjórn­ar­mála, mjög mjög þung og að mínu mati ómak­leg orð í garð stærsta sveit­ar­fé­lags lands­ins, hvaða skoðun hún hafi á því?“

Hún sagði að óum­deilt væri að Reykja­vík drægi vagn­inn þegar kemur að mál­efnum félags­þjón­ustu ýmiss konar. Hún benti enn fremur á að þetta kæmi fram í skýrslu um sam­an­tekt sveit­ar­fé­laga og í umfjöllun Kjarnans.

[links]Kjarninn fjall­aði um málið á dög­unum en í þeirri umfjöllun kom fram að íbúar í Reykja­vík borg­uðu hver og einn sjö sinnum hærri fjár­hæð í fjár­hags­að­stoð til þeirra sem þurfa á slíkri að halda en íbúar á Sel­tjarn­ar­nesi. Þeir greiddu tvö­falt meira fyrir alla veitta félags­þjón­ustu en íbúar í Kópavogi og Garðabæ. Og drægju líka vagn­inn þegar kemur að upp­bygg­ingu á hús­næði fyrir lág­tekju­hópa.

„Ég bið hæst­virtan ráð­herra um að gefa upp afstöðu mennta­mála­ráð­herra hæst­virts til þess­ara orða, vegna þess að þetta er veru­lega skað­legt þegar kemur að sam­skiptum sveit­ar­fé­laga lands­ins og öfl­ugra stórra sveit­ar­fé­laga við rík­is­valdið og ég bendi á að hæst­virtur sam­göngu­mála­ráð­herra sagði ein­fald­lega að hér væri Reykja­vík að brjóta á minni sveit­ar­fé­lögum með því að ætla að sækja pen­ing þangað þegar það er sam­kvæmt lögum rangt,“ sagði hún.

„Við erum öll í þessu saman“

Lilja svar­aði í annað sinn og sagð­ist langa að fara yfir þær efna­hags­að­gerðir sem rík­is­stjórnin hefði farið í. „Ég ætla til að mynda að benda á háskóla­stigið og fram­halds­skóla­stigið, og stærstu fram­halds­skól­arnir og háskól­arnir eru allir hér í Reykja­vík. Við erum að bæta millj­örðum og aftur millj­örðum bara í mennta­kerfið og svo sann­ar­lega nýtur Reykja­vík­ur­borg, þar sem ég er þing­maður, ágóða og ávinn­ings af því. Við erum alger­lega að ná utan um fram­halds­skól­ana okkar með því að bæta í. Mennta­kerfið er að taka á móti 3.500 nýjum nem­endum á háskóla- og fram­halds­skóla­stig­inu og allt þetta nýt­ist auð­vitað stærsta sveit­ar­fé­lag­inu, Reykja­vík­ur­borg,“ sagði hún.

Það væri af og frá, og afskap­lega ómál­efna­legt af Hönnu Katrínu, að segja að rík­is­stjórnin væri ekki að styðja við öll sveit­ar­fé­lögin.

„Ég ætla að nefna eitt. Það sem hefur verið að ger­ast er að rík­is­stjórnin hefur aukið skuldir sínar en hún er að fara úr 20 pró­sent af lands­fram­leiðslu í yfir 60 pró­sent. Auðvitað nýt­ist það öllum í land­inu. Ég kann ekki að meta mál­flutn­ing sem er alltaf á þann veg að segja: Það eru ein­hverjir sem búa í Reykja­vík og ein­hverjir sem búa á lands­byggð­inni. Við erum öll í þessu saman,“ sagði hún að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Sveitarfélög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár