Seðlabankinn sýknaður af kröfum Samherja en þarf að borga Þorsteini Má persónulega

Hér­aðs­dómur Reykja­víkur kvað í dag upp dóm í skaða­bóta­málum Samherja og Þor­steins Más Bald­vins­sonar for­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins á hendur bank­anum. Seðla­bank­inn var sýkn­aður af kröfu fyr­ir­tæk­is­ins, en þarf að borga for­stjór­anum skaða­bætur.

Frá aðalmeðferð málanna í Héraðsdómi Reykjavíkur í haust.
Frá aðal­með­ferð mál­anna í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í haust. Mynd: Arnar Þór

Seðla­banki Íslands var í dag sýkn­aður af rúm­lega 300 millj­óna króna skaða­bóta­kröfu sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæk­is­ins Samherja í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur, en bank­inn var hins vegar dæmdur til þess að greiða Þor­steini Má Bald­vins­syni for­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins per­sónu­lega tvær og hálfa milljón króna í skaða­bætur og tvö­hund­ruð þús­und krónu að auki í miska­bætur í hans per­sónu­lega máli gegn bank­anum.[links]



Þetta kemur fram í fréttum bæði RÚV og Vísis, sem sendu frétta­menn til þess að vera við­stadda dóms­upp­kvaðn­ing­una í dag. Dómarnir í mál­unum hafa nú verið birtir á vef Hér­aðs­dóms Reykja­víkur, hér og hér.

Þor­steinn Már fór per­sónu­lega fram á 6,5 millj­óna króna skaða­bætur frá Seðla­bank­anum en fékk dæmdar sam­tals 2,7 milljón króna skaða- og miska­bætur eins og áður sagði. Sam­herji krafði Seðla­bank­ann um 306 millj­óna skaða­bæt­ur og tíu millj­ónir króna í miska­bætur til við­bótar, en bank­inn var sýkn­aður af þeim kröfum.

Samherji var dæmdur til að greiða Seðla­bank­anum 3,7 millj­ónir króna í máls­kostnað í máli fyr­ir­tæk­is­ins, en Seðla­bank­inn þarf að greiða Þor­steini Má tæpar 1,5 millj­ónir króna í máls­kostnað í hans per­sónu­lega máli.

Kröf­urnar voru vegna tjóns sem Sam­herji og Þor­steinn Már sögðu að rann­sókn Seðla­bank­ans á ýmsum ætl­uðum brotum fyr­ir­tæk­is­ins á meðan að fjár­magns­höft voru við lýði á Íslandi hefði valdið fyr­ir­tæk­inu og honum per­sónu­lega.

Bankinn var sem áður segir sýkn­aður af hárri kröfu fyr­ir­tæk­is­ins, sem fól meðal ann­ars í sér end­ur­greiðslu á kostn­aði sem rann til fyr­ir­tækja í eigu Jóns Óttars Ólafs­sonar afbrota­fræð­ings, sem Samherji greiddi um það bil 130 millj­ónir króna fyrir að vinna í málum tengdum rann­sókn Seðla­bank­ans á Samherja.

Yfir 40 pró­sent af skaða­bóta­kröfu Sam­herja voru því vegna greiðslna til félaga sem tengj­ast Jóni Ótt­ari en einnig reyndi fyr­ir­tækið að fá end­ur­greidd­ann ýmsan kostnað vegna lög­manns­þjón­ustu og allan launa­kostnað vegna vinnu starfs­manna fyr­ir­tæk­is­ins þann dag sem hús­leit Seðla­bank­ans fór fram á skrif­stofum þess á Akureyri og í Reykja­vík árið 2012, auk ann­ars.

Í grein­ar­gerð­ lög­manns Seðla­bank­ans í mál­inu sagði að tjónið sem Sam­herji sagð­ist hafa orðið fyrir væri ósann­að. Í stefnu Sam­herja væri ekki að finna sund­ur­liðun eða nán­ari til­grein­ingu á því tjóni sem kraf­ist væri undir liðnum skaða­bætur og eig­in­leg sönn­un­ar­gögn ekki lögð fram. „Þannig er ekk­ert reifað hvenær ein­stakir kostn­að­ar­liðir féllu til eða af hvaða til­efni var til þeirra stofn­að,“ sagði meðal ann­ars í grein­ar­gerð lög­manns­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Seðlabankinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár