Ljósi varpað á hvað það var sem fólst í kæru Seðlabankans á hendur Samherja

Við aðal­með­ferð í skaða­bóta­máli Samherja á hendur Seðla­bank­anum í dag kom fram í fyrsta skipti fyrir hvaða efn­is­at­riði Seðla­bank­inn kærði Samherja fyrir til sér­staks sak­sókn­ara árið 2013. Veiga­mesta kæru­efnið laut að félagi á Kýpur.

Ekki hefur áður komið efnislega fram hvað það var sem Seðlabankinn kærði Samherja fyrir á sínum tíma.
Ekki hefur áður komið efn­is­lega fram hvað það var sem Seðla­bank­inn kærði Samherja fyrir á sínum tíma. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Jóhannes Karl Sveins­son lög­maður Seðla­banka Íslands varp­aði í mál­flutn­ingi sínum fyrir Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í dag ljósi á það hvaða efn­is­at­riði það voru sem Seðla­banki Íslands kærði Samherja og tengda aðila fyrir árið 2013. Þau hafa ekki verið opin­beruð áður.

Fram kom hjá Jóhann­esi að mál Seðla­bank­ans hefði í raun verið þrí­þætt. Það sner­ist í fyrsta lagi um meint brot erlendra félaga tengdum Samherja gegn skila­skyldu á erlendum gjald­eyri til Seðla­banka Íslands, í öðru lagi um meint skila­skyldu­brot félaga tengdum Samherja á Íslandi og í þriðja lagi um meint brot sem vörð­uðu milli­verð­lagn­ingu á þremur fisk­teg­undum.

Jóhannes sagði að meint brot sem vörð­uðu dóttur- og dótt­ur­dótt­ur­fé­lög Samherja úti í heimi væru langstærsti þátt­ur­inn af þessu þrennu, en í þeim hefðu sam­kvæmt rann­sókn­ar­skýrslu gjald­eyr­is­eft­ir­lits­ins verið and­virði 67 millj­arða króna í erlendum gjald­eyri undir.

Þessum gjald­eyri hefði ekki verið skilað til Íslands, þrátt fyrir að Seðla­bank­inn teldi að erlendu félögin ættu í reynd að telj­ast inn­lendir aðilar og þar með skila gjald­eyri sem slíkir á tímum gjald­eyr­is­haft­anna sem sett voru á eftir efna­hags­hrunið árið 2008.

Katla Seafood Limited

Ástæðan fyrir því að Seðla­bank­inn taldi að flokka ætti erlendu félögin sem inn­lenda aðila er sú að bank­inn taldi að þeim væru raun­veru­lega stjórnað frá Íslandi, af íslenskum ein­stak­lingum. „Aðal­málið“ af þessu tagi, sagði Jóhannes, varðar félagið Katla Seafood Limited, sem eitt sinn var skráð í Belís í Mið-Ameríku en síðar á Kýpur.



Jóhannes sagði að Seðla­bank­inn hefði séð það í bók­halds­gögnum Sam­herj­a­sam­stæð­unnar að þetta félag hefði selt fiskaf­urðir fyrir 55 millj­arða króna í erlendum gjald­eyri, sem ekki hafi skilað sér til Íslands. Í rann­sókn­ar­skýrslu Seðla­bank­ans kom fram að hjá þessu félagi væru engir starfs­menn. „Þó að þetta væri sölu­fé­lag sem velti millj­örðum þá var eng­inn sem tók upp sím­ann og tók við sölupöntun,“ sagði lög­mað­ur­inn.[links]

Jón Óttar Ólafsson, sem starf­aði sem verk­taki Samherja, meðal ann­ars við það að rann­saka hvort ein­hver „súbstans“ væri í þessum erlendu félögum, gat ekki stað­fest við vitna­leiðslu í morgun að þetta félag hefði verið með ein­hverja starfs­menn. Hann sagði að þessu félagi hefði þó ekki verið stýrt frá Íslandi, heldur frá Las Palmas á Kanarí­eyjum, þar sem sann­ar­lega hefðu verið starfs­menn til staðar.

Skilaskylda innlendra félaga

Jóhannes sagði dóm­inum að að hann teldi að það væri alveg rétt að Samherji hf., móð­ur­fé­lagið sjálft, hefði skilað gjald­eyri til Íslands eftir því sem félagið fékk greitt fyrir vörur og þjón­ustu.

Ágrein­ingur Seðla­bank­ans við skil inn­lendra félaga sam­stæð­unnar á gjald­eyri hefði hins vegar snúið að öðrum þáttum, fjár­magnstekjum og upp­gjöri á afleiðu­samn­ingum, en að „stóri punkt­ur­inn“ varð­andi meint brot á skila­skyldu gjald­eyris inn­an­lands hefðu snú­ist um félag sem í dag heitir Axel hf., en hét áður Katla Seafood ehf. Þar voru 14 millj­arðar undir.

[adspot]

Lög­mað­ur­inn sagði að þegar Seðla­bank­inn hefði farið að leita að inn­borg­unum á gjald­eyri, sem Axel hf. hefði átt að standa skil á, hefðu þær ekki fund­ist nema að litlum hluta. Fundist hefði 3-4 millj­arðar af alls um það bil 14 millj­örðum, sem hefðu sam­kvæmt sölu­yf­ir­liti átt að renna til lands­ins. Það var tíu millj­arða gat.

Seðla­bank­inn taldi tvennt skýra þetta gat. Annars vegar skulda­jafn­anir innan Sam­herj­a­sam­stæð­unnar og hins vegar greiðslur upp á einn og hálfan millj­arð til þriðja aðila, inn á per­sónu­legan gjald­eyr­is­reikn­ing erlendis. Þor­steinn Már Bald­vins­son for­stjóri Samherja sagði í skýrslu­töku í morgun, spurður út í þetta, að Axel hf. hefði skuldað sér per­sónu­lega fjár­muni.

Milliverðlagning á þremur fisktegundum

Veiga­minnsti þátt­ur­inn sem Seðla­bank­inn kærði fyrir á sínum tíma laut svo að milli­verð­lagn­ingu á þremur fisk­teg­undum. Jóhannes lög­maður sagði þau meintu brot snú­ast um hvort fisk­ur­inn hefði verið seldur á réttu verði innan sam­stæðu Samherja og voru alls tíu fisk­teg­undir teknar til skoð­unar. Seðla­bank­inn komst að þeirri nið­ur­stöðu að það væri eitt­hvað athuga­vert við verð­lagn­ingu þriggja þeirra; bleikju, karfa og ufsa.

„Þarna erum við ekki að tala þessa göll­uðu útreikn­inga, þetta er vegið með­al­tal,“ sagði lög­mað­ur­inn, en nið­ur­staða Seðla­bank­ans varð sú að í heild­ina hefði þarna „mögu­lega skeikað 270 millj­ónum“ í heild­ina.

... og þá að máli dagsins í dag

Þetta hér að ofan er á meðal þess sem kom fram við aðal­með­ferð skaða­bóta­máls Samherja gegn Seðla­bank­anum sem fram fór í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í dag og hefur ekki legið fyrir opin­ber­lega áður, en mikil leynd hefur verið yfir öllum efn­is­at­riðum kær­anna á hendur Samherja, sem ekk­ert varð síðan úr sökum þess að í ljós kom að Seðla­bank­inn hafði ekki gildar refsi­heim­ildir í málum sem þessum.

Ástæðan fyrir því er sú að þáver­andi ráð­herra banka­mála rit­aði ekki undir reglu­gerð sem veitti gjald­eyr­is­eft­ir­liti Seðla­banka Íslands þá heim­ild sem stjórn­völd ætl­uðu því til að refsa lög­að­ila eins og Samherja.

Í grein­ar­gerð lög­manns Seðla­bank­ans vegna þessa máls, sem Kjarninn fékk afhenta og fjall­aði um í frétta­skýr­ingu fyrr í sumar, var strikað með svörtu yfir öll efn­is­at­riði rann­sóknar bank­ans á hendur Samherja.

Samherji vill að Seðla­bank­inn greiði fyr­ir­tæk­inu tæpar 290 millj­ónir í skaða­bætur vegna kostn­aðar sem hlaust af rann­sókn bank­ans á hendur Samherja og Þor­steinn Már Bald­vins­son for­stjóri vill einnig nokkrar millj­ónir til við­bótar í per­sónu­legar skaða­bætur.

„Menn vissu að þeir máttu ekki gera þetta“

Garðar Gíslason lög­maður Samherja sagði að fram­ganga Seðla­bank­ans í mál­inu hefði verið ólög­mæt og við­höfð af ásetn­ingi. „Menn vissu að þeir máttu ekki gera þetta,“ sagði lög­mað­ur­inn og bætti við að þetta væru stór orð, en að minnsta kosti hefði verið um stór­kost­legt gáleysi að ræða af hálfu Seðla­bank­ans.

Það hefðu nefni­lega verið „veru­lega miklar efa­semdir og rúm­lega það,“ um refsi­heim­ildir Seðla­bank­ans innan gjald­eyr­is­eft­ir­lits­ins sjálfs. Hann sagði Seðla­bank­ann hafa gengið hart fram og sagð­ist ekki skilja hvernig mönnum hefði dottið í hug að „fara í þetta ferða­lag sem þeir fóru í.“

[adspot]

Jóhannes Karl lög­maður Seðla­bank­ans sagði að ekki væri um það deilt að mála­rekstri Seðla­bank­ans gegn Samherja væri lokið, en þar sem aldrei hefði verið dæmt um rann­sókn­ar­efnin væri staðan ankanna­leg.

Hann sagði að þó að aðgerð­irnar sem beindust gegn Samherja af hálfu Seðla­bank­ans hefðu ekki leitt til sak­fell­ingar, leiddi það ekki sjálf­krafa til þess að þær væru bóta­skyldar og vís­aði m.a. í lyktir Aserta-máls­ins svo­kall­aða í því sam­hengi, máli sínu til stuðn­ings.

Nokkuð mikið var rætt um hús­leit­ina hjá Seðla­bank­anum í mars árið 2012 sem að ein­hverju leyti var upp­haf þessa máls og þeirrar atburða­rásar sem síðan fór í hönd, af hálfu lög­mann­anna tveggja.

Jóhannes Karl sagði að stóra myndin í mál­inu væri sú að Seðla­bank­inn hafi árið 2010 hafið eft­ir­lit með skilum stærstu útflutn­ings­fyr­ir­tækja lands­ins á erlendum gjald­eyri, gert úttekt á þeim nokkrum og beðið um upp­lýs­ingar um erlenda banka­reikn­inga.

Gögn sem Seðla­bank­inn safn­aði um gjald­eyr­is­skil á árunum 2008 og 2009 voru svo borin saman við gögn frá Toll­stjóra og gaf skýrsla sem gerð var í kjöl­farið vís­bend­ingar um að Samherji og Icelandic Seafood hefðu brotið gegn reglum um skila­skyldu.

Í febr­ú­ar­mán­uði árið 2012 hafi bank­anum svo borist ábend­ingar frá frétta­manni um svo­kall­aða milli­verð­lagn­ingu. Þá hafi bank­inn ráð­ist í að gera nýja útreikn­inga og þannig hafi atburða­rásin farið í gang sem leiddi til þess að bank­inn fékk dóms­úr­skurð ti þess að ráð­ast í hús­leit á starfs­stöðvum Samherja í Reykja­vík og á Akureyri.

Jóhannes Karl sagði að í úrskurði um hús­leit­ina kæmi fram, að dóm­ari teldi „ríkar ástæður“ til að ætla að brotið hefði verið gegn fyr­ir­mælum um skila­skyldu. Lög­mað­ur­inn rök­studdi að nauð­syn­legt hefði verið að ráð­ast í þessar hús­leitir, þar sem eðli upp­lýs­ing­anna hefði verið „um þannig mál­efni að það er ekki hægt að ræða sig á það að fá allt upp í hend­urnar.“

„Það er ekk­ert sagt Samherja til hnjóðs, það er bara þannig,“ sagði lög­mað­ur­inn og bætti við að það sem Seðla­bank­inn hefði verið að rann­saka væri þess eðlis að það væru engin vitni og í raun ekk­ert til­tækt nema bók­hald fyr­ir­tækj­anna sem í hlut ættu, sem þyrfti að fara yfir í heild sinni til að sjá að hvaða marki grun­semdir væru á rökum reistar.

Efins um útlagðan kostnað Samherja

Jóhannes Karl gerði veru­legar athuga­semdir við þann útlagða kostnað verk­taka sem Samherji vill fá bættan. Þannig sagði hann til dæmis að það væri „engin afurð“ af þeirri vinnu sem tvö félög Jóns Óttars Ólafs­sonar hefðu sinnt fyrir Samherja og ekk­ert í útgefnum reikn­ingum varp­aði ljósi á það hvað hann hefði verið að gera.



Las lög­mað­ur­inn upp úr reikn­ingum vegna vinnu hans útskýr­ingar á því sem félög Jóns Óttar voru að rukka fyrir. Þar var meðal ann­ars rukkað fyrir „vinnu tengda Márit­aníu“ og „leit að nið­ur­fell­ing­ar­bréfi.“ „Af hverju er verið að fjalla um mál­efni Márit­aníu í þessu máli?“ spurði lög­mað­ur­inn og sagði að það væri lítið hægt að gera með þennan kostnað, sem alls nam rúmum 130 millj­ónum.

Því næst fór að hann að ræða kostnað sem ein lög­manns­stofa hefði rukkað fyrir og þar sagði Jóhannes Karl að ýmis­legt væri sem ekki væri hægt að sjá að tengd­ist mál­inu beint.

Á meðal þess sem Samherji er að reyna að fá bætt og þessi lög­manns­stofan rukk­aði félagið fyrir var m.a. vinna við kæru Samherja á hendur dóm­ar­ans sem sam­þykkti hús­leit­ar­beiðni Seðla­bank­ans. Einnig rukk­aði lög­manns­stofan fyrir vinnu við kæru til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu, sem Jóhannes Karl sagði ekki geta verið hluti af þessu máli. Þá rukk­aði lög­mann­stofan, að sögn Jóhann­esar, Samherja fyrir „fund með þing­mönnum“ og skrif á bréfi til starfs­manna Samherja.

Önnur lög­manns­stofa rukk­aði svo Samherja fyrir m.a. vinnu við yfir­ferð tölvu­pósta, skoðun ein­hverra gagna frá Kýpur og „ritun greina í Morg­un­blaðið,“ sem Jóhannes Karl sagði að ekki væri sýnt fram á að tengd­ust þessu máli beint.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Seðlabankinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár