Seðlabankinn hafi sakað Samherja um að skila ekki 85 milljarða gjaldeyri

Þor­steinn Már Bald­vins­son for­stjóri Samherja segir að Seðla­bank­inn hafi sakað Samherja um að standa ekki í skil á 85 millj­örðum í gjald­eyri til lands­ins. Seðla­bank­inn virð­ist telja að dótt­ur­fé­lögum Samherja hafi verið stjórnað frá Íslandi í reynd.

Úr dyragættinni í dómsalnum í morgun, en þar hafa blaðamenn setið í hnapp og fylgst með því sem fór fram.
Úr dyra­gætt­inni í dóm­salnum í morgun, en þar hafa blaða­menn setið í hnapp og fylgst með því sem fór fram. Mynd: Arnar Þór Ingólfsson

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, segir að Seðla­bank­inn hafi sakað Samherja um að hafa van­rækt skil á alls 85 millj­örðum á gjald­eyri til Íslands. Þetta kom fram í máli for­stjór­ans við aðal­með­ferð í skaða­bóta­máli Samherja gegn Seðla­banka Íslands, sem fer fram í dag.

Þor­steinn Már var fyrstur að gefa skýrslu í mál­inu, sem snýst um það að Samherji krefur Seðla­bank­ann um 306 millj­óna skaða­bætur og tíu millj­ónir króna í miska­bætur vegna skaða sem Samherji segir að rann­sókn Seðla­bank­ans hafi valdið fyr­ir­tæk­inu. Auk þess höfð­aði Þor­steinn Már per­sónu­lega mál á hendur bank­anum af sömu sökum og fer fram á 6,5 millj­ónir króna í bætur.

Þor­steinn Már fór mik­inn á tíma­bili við skýrslu­tök­una og sak­aði Seðla­bank­ann ítrekað um að hafa gengið ótil­hlýði­lega fram gagn­vart Samherja.

Hann sagði að aðgerð­irnar hefðu verið svo íþyngj­andi að eig­endur Samherja hafi orðið „hræddir um að missa fyr­ir­tækið“ sökum þess að aðgerð­irnar tak­mörk­uðu aðgang Samherja að fjár­magni og að vinnan sem Samherji hafi lagt í til þess að að átta sig á því hvað fyr­ir­tækið var sakað um af hálfu Seðla­bank­ans hafi verið algjör­lega „botn­laus“, en Samherji er að krefja Seðla­bank­ann um að end­ur­greiða bæði innri og ytri kostnað fyr­ir­tæk­is­ins vegna aðgerða Seðla­bank­ans.[links]

„Við vorum alltaf að reyna að finna – hvað var það sem við gátum hafa gert rangt?“ sagði Þor­steinn Már, sem hækk­aði nokkrum sinnum raustina þegar hann var að svara spurn­ingum frá lög­manni Seðla­bank­ans og fór stundum að tala um hluti ótengda eða laustengda því sem spurt var um.

Dómari sagði betra að „halda þessu við stofuhita“

„Ég er ekki að tala neitt um karfa,“ greip lög­maður Seðla­bank­ans meðal ann­ars fram í fyrir Þor­steini á einum tíma­punkti, þegar umræðan hafði færst frá spurn­ingu hans og að karfa. Kjartan Bjarni Björg­vins­son dóm­ari máls­ins sagði að best væri að „halda þessu við stofu­hita“ og upp­lýsa málið með því að svara þeim spurn­ingum sem settar væru fram.

Arna McClure yfir­lög­fræð­ingur Samherja kom fyrir dóm­inn og sagði að Samherji hefði lagt í mikla og afar kostn­að­ar­sama vinnu við að reyna að kom­ast að því hvað fyr­ir­tækið var sakað um af hálfu Seðla­bank­ans. Hún var beðin um að skýra þennan kostnað, en Seðla­bank­inn byggir á því í þessu skaða­bóta­máli að kostn­aður Samherja geti ekki talist sann­an­legur og eðli­legur.

[adspot]

„Ef að Samherji var að gera eitt­hvað rangt sem okkur var ekki kunn­ugt um vildum við fyrir alla muni ekki halda því áfram,“ sagði Arna, sem rak síðan kostnað fyr­ir­tæk­is­ins, en eins og Kjarninn greindi frá fyrr í dag fólst stærsti hluti hans í vinnu Jóns Óttars Ólafs­sonar afbrota­fræð­ings, alls rúmar 130 millj­ónir króna.

Arna sagði að vinna Samherja hefði meðal ann­ars snú­ist um það að fara á starfs­stöðvar erlendra félaga í eigu Samherja, en það sem Seðla­bank­inn taldi í mála­til­bún­aði sínum gagn­vart Samherja, var að erlendum félögum í eigu Samherja hefði í reynd verið stýrt frá Íslandi og því bæri þeim að skila gjald­eyri líkt og inn­lendum aðilum.

Lögmaður Seðla­bank­ans í mál­inu sagði að Seðla­bank­inn hefði haft þá „kenn­ingu“ í rann­sókn­ar­skýrslu sinni að stærsti hlut­inn af meintum van­ræktum skilum á gjald­eyri væru vegna fyr­ir­tæk­is­ins Kötlu Seafood Limited á Kýpur, eða um 50 millj­arðar króna. Þor­steinn Már sagði að þarna væri ekki farið rétt með upp­hæð­ina, en aðspurður sagði hann að Katla Seafood hefði veitt fisk í Afríku og seldi fisk í Afríku.

Arna sagði að þetta hefði Samherji ekki fengið að vita fyrr en löngu eftir að málið var farið af stað og raunar ekki fyrr en að rík­is­sak­sókn­ari komst að þeirri nið­ur­stöðu að Samherji ætti rétt á að fá gögn máls­ins. Á þeim tíma­punkti hafði Seðla­bank­inn kært starfs­menn Samherja per­sónu­lega.

Nauðsynlegt að sýna fram á „súbstans“ í erlendum dótturfélögum

Jón Óttar Ólafsson, afbrota­fræð­ingur og fyrr­ver­andi rann­sókn­ar­lög­reglu­maður sem starf­aði fyrir Samherja, kom fyrir dóm­inn og lýsti þessu svo: „Seðla­bank­inn var með tölvu­pósta sem hann hafði hand­lagt á Íslandi og var að túlka út frá því hvernig stjórnun ýmissa erlendra dótt­ur­fé­laga hefði verið háttað. Við þurfum að fara erlendis og ná í gögn sem Seðla­bank­ann vant­aði,“ sagði Jón Óttar, en hann og Arna unnu náið saman við þetta.

Jón Óttar sagði að þegar farið hefði verið út í heim til staða eins og Kanarí­eyja og Kýpur og til dótt­ur­fé­laga Samherja þar, hafi komið „í ljós að þessir póstar sem Seðla­bank­inn var að túlka hér heima var bara eitt pró­mill af þeim póstum sem voru til staðar í rekstri þess­ara félaga.“

„Það var nauð­syn­legt fyrir okkur að sýna fram á að það væri „súbstans“ í rekstri félag­anna erlendis,“ sagði Jón Óttar, sem sagði að ásak­an­irnar hefðu haft „gríð­ar­leg áhrif á lyk­il­starfs­menn Samherja.“ Það taldi Jón Óttar ástæð­una fyrir því að Samherji hefði þurft að kaupa aðkeypta þjón­ustu á borð við hans til þess að rýna í málið, starfs­menn félags­ins hefðu ein­fald­lega ekki verið færir um það.

Lögmaður Seðla­bank­ans spurði Jón Óttar sér­stak­lega út í félagið Kötlu Seafood Limited á Kýpur, en Seðla­bank­inn telur að það félag hafi í reynd verið rekið frá Íslandi. Jón Óttar var spurður hvað þetta félag á Kýpur hafði marga starfs­menn. Hann sagð­ist ekki vita það. Lögmaður Seðla­bank­ans spurði þá hvort hann teldi félagið hafa haft ein­hvern starfs­mann. „Ég myndi þurfa að athuga það,“ sagði Jón Óttar þá.

Jón Óttar sagð­ist hafa kom­ist að því við skoðun sína á þessu félagi að að það hefðu verið samn­ingar á milli þess og rek­star­fé­lags á Las Palmas. Þar hafi verið fullt af starfs­mönnum. „Það er rekið í raun og veru frá öðrum löndum en ekki Íslandi. Þetta er dálítið mikið atriði,“ sagði Jón Óttar og sagði að þetta hefði farið fram­hjá Seðla­bank­anum.

„Það sem þeir sáu aldrei almenni­lega skýrt var hvernig rekst­ur­inn var fyrir utan gjald­eyr­is­höftin,“ sagði Jón Óttar.

Samherji kallaði Hreiðar Eiríksson til sem vitni

Samherji kall­aði Hreiðar Eiríks­son, fyrr­ver­andi yfir­mann gjald­eyr­is­eft­ir­lits Seðla­bank­ans, til sem vitni í mál­inu. Dóm­salnum var lokað á meðan að vitn­is­burð­ur­inn yfir Hreiðari stóð yfir því stað, þar sem þar voru til umræðu atriði sem falla undir banka­leynd.

Undarlegar aðstæður

Erfitt hefur verið fyrir blaða­menn hér í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur að heyra nákvæm­lega orða­skil inni í dóm­salnum, sem er númer 202. Einungis tíu manns mega vera inni í salnum vegna sótt­varna­ráð­staf­ana og reyndar er þessi dóm­salur svo lít­ill að það væri hrein­lega ekki pláss fyrir marga til við­bótar þar inni, en fyrir utan lög­fræði­teymi Samherja og Seðla­bank­ans og dóm­ar­ann sjálfan er pláss fyrir þrjá áheyr­endur í salnum.

Sökum þess­ara aðstæðna ákvað dóm­ari í mál­inu að leyfa að opið yrði fram á gang – og þar hafa blaða­menn fjög­urra miðla setið og fylgst með þessu máli, sem við­búið var að myndi vekja áhuga fjöl­miðla. Aðal­með­ferðin fær­ist í aðal­sal dóm­stóls­ins, eftir hádegi, en hann var upp­tek­inn í morgun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

dómstólar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár