ASÍ gagnrýnir að skattalækkun til fjármagnseigenda sé í forgangi

Alþýðu­sam­band Íslands segir að skatta­lækkun upp á 2,1 millj­arða til fjár­magns­eig­enda eigi ekki að vera í for­gangi heldur eigi verk­efni stjórn­valda að vera að tryggja afkomu fólks. Sam­bandið segir að atvinnu­leysi megi ekki leiða til fátæktar og ójöfn­uðar.

Alþýðu­sam­band Íslands (ASÍ) gagn­rýnir áform rík­is­stjórn­ar­innar um breyt­ingar á fjár­magnstekju­skatti sem boðuð eru í fjár­laga­frum­varpi hennar. Útfærslan á þeirri lækkun hefur enn ekki verið birt en Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, boð­aði hana þegar hann kynnti fjár­laga­frum­varpið í byrjun mán­aðar. Eina sem liggur fyrir um útfærsl­una er að skatt­stofn fjár­magnstekna á að miða við raun­á­vöxtun í stað nafn­á­vöxt­unar, og fyrir vikið eiga tekjur rík­is­ins vegna skatts­ins að lækka um 2,1 millj­arða króna á næsta ári.

Í umsögn ASÍ um fjár­laga­frum­varpið segir að sam­bandið telji að skatta­lækkun um 2,1 millj­arð til fjár­magns­eig­enda eigi ekki að vera í for­gangi við núver­andi aðstæður. Verkefni stjórn­valda á núna eigi að vera að tryggja afkomu fólks.

Þá gagn­rýnir sam­bandið líka fyr­ir­hug­aða hækkun skatt­leys­is­marka erfða­fjár­skatts, sem boðuð hefur verið án þess að fyrir liggi útfærsla á því hvernig stjórn­völd sjá fyrir sér þróun á erfða­fjár­skatti. „Þótt vel geti verið rétt­læt­an­legt að hækka skatt­leys­is­mörk erfða­fjár­skatts eigi sú aðgerð ekki að vera í for­gangi við núver­andi aðstæður. Þá ítrekar ASÍ þá afstöðu sína að færa þurfi skatt­lagn­ingu ann­arra tekna þ.m.t. fjár­magnstekna nær skatt­lagn­ingu launa.“

Skattur á fjár­­­magnstekjur er umtals­vert lægri en á launa­­tekj­­ur. Stað­greiðsla skatta á launa­­tekjur í fyrra var á á bil­inu 35,04 til 46,24 pró­­sent að útsvari með­­­töldu en fjár­­­magnstekju­skattur var hækk­­aður upp í 22 pró­­sent í byrjun árs 2018.

Kjarninn greindi nýverið frá því að þær tæp­lega 23 þús­und fjöl­skyldur sem mynda saman rík­ustu tíund lands­ins afla þorra fjár­magnstekna, sem eru allar vaxta­­tekjur auk sölu­hagn­að­­ar, arðs og tekna af atvinn­u­­rekstri. Í fyrra tók hún til sín 99,8 millj­arða króna í fjár­magnstekjur eða um 70,5 pró­sent allra slíka tekna.

Atvinnuleysi megi ekki leiða til fátæktar og ójöfnuðar

Atvinnu­leysi á Íslandi er sem stendur í hæstu hæðum. Í lok sept­em­ber mæld­ist það 9,8 pró­sent og spár Vinnu­mála­stofn­unar gera ráð fyrir að það fari í 11,3 pró­sent í lok næsta mán­aðar. Þetta ástand kemur verst niður á kon­um, ungu fólki og erlendum rík­is­borg­urum, en í síð­ast­nefnda hópnum er atvinnu­leysi yfir 20 pró­sent. Sér­fræð­ingar hafa bent á að kreppan geti aukið ójöfnuð ef ekk­ert verði að gert, auk þess sem hætta er á félags­legri ein­angrun á meðal við­kvæmra hópa sam­fé­lags­ins.

[adspot]ASÍ segir í umsögn­inni að ljóst sé að grípa þurfti til aðgerða til að afstýra að atvinnu­leysi leiði til greiðslu­vanda heim­ila, fátæktar og ójöfn­uðar með til­heyr­andi kostn­aði fyrir sam­fé­lagið.

Mik­il­vægt sé að hafa í huga að um 40 pró­sent atvinnu­lausra sé erlent launa­fólk sem að stórum hluta býr í leigu­hús­næði. „Þessi hópur hefur haft ekki úrræði sam­bæri­leg við eig­endur hús­næðis, t.d. greiðslu­hlé, og ekki notið á sama hátt góðs af lækkun vaxta á hús­næð­is­lánum.“

Sam­bandið telur að skil­virkasta leiðin til að styðja við atvinnu­leit­endur sé að hækka grunn­bætur atvinnu­leys­is­bóta ásamt því að lengja bóta­tíma­bilið til að mæta fyr­ir­séðri aukn­ingu lang­tíma­at­vinnu­leysis. Í fjár­laga­frum­varpi er gert ráð fyrir 3,6 pró­sent hækkun atvinnu­leys­is­bóta og sagt að bæt­urnar taki mið af með­al­taxta­þróun á vinnu­mark­aði. Í lögum um almanna­trygg­ingar er hins vegar kveðið á um að bæt­urnar skuli taka mið af launa­þróun.

ASÍ gagn­rýnir það við­mið sem stjórn­völd ákveða að styðj­ast við og segir að það leiði til þess að atvinnu­leys­is­bætur og bætur almanna­trygg­inga drag­ist aftur úr almennri launa­þróun.

Verði grunn­bætur þannig sem stjórn­völd ætla þá leiði það að óbreyttu til þess að þær verði um 85 pró­sent af lág­marks­tekju­trygg­ingu og því lægri en þær voru á árunum 2008-2012.

ASÍ vill hækka bæt­urnar í 95 pró­sent af dag­vinnu­tekju­trygg­ingu.

Velferð og grunnþjónusta ekki notuð sem afkomubætandi aðgerð

Í umsögn ASÍ er einnig fjallað um þann mikla sam­drátt sem ætlað er að verði á tekjum rík­is­sjóðs á þessu ári og því næsta. Áætlaður halli á árinu 2020 eða 269,2 millj­arðar króna og á næsta ári er hann áætl­aður 264,2 millj­arðar króna. Því stefnir í rúm­lega 533 millj­arða króna halla á tveimur árum.

[links]Þessum halla verður mætt með því að nýta svig­rúm opin­berra fjár­mála. Á manna­máli þýðir það að gjöldin munu hald­ast nán­ast þau sömu á næsta ári og í ár, þrátt fyrir hinn mikla tekju­sam­drátt, og verða 1.036 millj­arðar króna. Skuldum rík­is­sjóðs verður leyft að aukast á næstu árum til að mæta þessu og þær eiga að ná hámarki á árinu 2025 þegar þær eru áætl­aðar 59 pró­sent af lands­fram­leiðslu.

ASÍ segir að það mark­mið kalli hins vegar á afkomu­bæt­andi aðgerðir af hálfu stjórn­valda upp á 35 til 40 millj­arða á ári fyrir árin 2023-2025. „Verði efna­hags­legur bati hæg­ari en sam­kvæmt for­sendum yrði þörfin enn meiri en miðað við núver­andi efna­hags­horfur er raun­veru­leg hætta á að slík sviðs­mynd raun­ger­ist. Þá myndi fjölgun ferða­manna verða minni en gert er ráð fyrir í for­sendum og hjöðnun atvinnu­leysis hæg­ari. ASÍ ítrekar afstöðu sína að vel­ferð og grunn­þjón­usta verði ekki notuð sem afkomu­bæt­andi aðgerð í rík­is­fjár­málum og að nið­ur­greiðsla skulda verði á for­sendum kröft­ugrar við­spyrnu. Um þessi atriði mun þurfa að eiga sér stað póli­tísk stefnu­mörkun á næstu miss­erum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár