Vill nánari útlistun á aðhaldsaðgerðum

Við­skipta­ráð kallar eftir nán­ari útskýr­ingu á því hvernig hið opin­bera ætlar að haga aðhalds­að­gerðum í rík­is­fjár­málum sem eru boð­aðar eftir rúm tvö ár.

Konráð S. Guðjónsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, skrifar undir umsögnina.
Konráð S. Guð­jóns­son, aðstoð­ar­fram­kvæmda­stjóri Við­skipta­ráðs, skrifar undir umsögn­ina.

Stjórn­völd ættu að gera betur grein fyrir 100 millj­arða króna aðhalds­að­gerðir sem eru boð­aðar fyrir árin 2023 og 2024 í fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar. Þetta kemur fram í umsögn Við­skipta­ráðs um fjár­lög og fjár­mála­á­ætlun, sem skilað var til fjár­laga­nefndar Alþingis á mánu­dag­inn.

Í umsögn­inni skrifar Við­skipta­ráð að stjórn­völd sýni ábyrgð með stefnu sinni um að mæta efna­hags­þreng­ingum til skamms tíma með auknum slaka og stuðn­ingi, í stað þess að herða aðhald í rík­is­fjár­málum. Slík við­brögð mildi efna­hags­legu áhrif far­ald­urs­ins á meðan einka­geir­inn eigi undir högg að sækja.

Hins vegar telur ráðið að mik­il­vægt sé að ná jafn­vægi í rekstri rík­is­sjóðs til þess að hag­kerfið geti vaxið og starf­semi þess verði sjálf­bær til lengri tíma. Þar gagn­rýnir Við­skipta­ráð rík­is­stjórn­ina fyrir að vera ekki nógu skýra í fjár­má­l­á­ætlun sinni, sem til­greinir aðeins óskil­greindar „afkomu­bæt­andi ráð­staf­anir" upp á sam­tals 96 millj­arða króna á árunum 2023 og 2024 til þess að rétta af halla­rekstur hins opin­bera.

Skattahækkanir og niðurskurður

Í fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar kemur fram að þessum „ráð­stöf­unum" yrði skipt jafnt á tekju- og útgjalda­hlið rík­is­sjóðs, en þær komi ein­ungis fram á útgjalda­hlið sveit­ar­fé­laga.

Með öðrum orðum þýðir þetta að búast megi við skatta­hækk­unum og nið­ur­skurði hjá hinu opin­bera, auk nið­ur­skurðar í þjón­ustu hjá sveit­ar­fé­lög­unum, á tíma­bil­inu 2023-2025. Á þessu tíma­bili gerir rík­is­stjórnin ráð fyrir að umfang þess­ara ráð­staf­anna geti numið 35-40 millj­örðum króna árlega.

Við­skipta­ráð nefnir í umsögn­inni að best væri ef stjórn­völd sýndu á spilin í þeim efnum til að auka trú­verð­ug­leika áætl­un­ar­innar og auka lík­urnar á að mark­miði um sjálf­bærni í rík­is­fjár­málum verði náð.

Of bjartsýn um komufarþega

Ýmsar aðrar athuga­semdir fylgja í umsögn ráðs­ins, til að mynda efast það um að 900 þús­und ferða­menn komi til lands­ins á næsta ári eins og gert er ráð fyrir í fjár­laga­frum­varp­inu í ljósi þess hversu harðar sótt­varn­ar­að­gerð­irnar eru á landa­mær­unum þessa stund­ina. Að mati Við­skipta­ráðs þyrftu stjórn­völd að skýra betur frá þess­ari for­sendu, sem sam­tökin telja að hverf­andi líkur séu á að gangi eftir.

[links]Samtök ferða­þjón­ust­unnar taka undir þá gagn­rýni í sinni umsögn um fjár­laga­frum­varpið og fjár­mála­á­ætl­un­ina sem Kjarninn fjall­aði um fyrr í vik­unni. Í þeirri umsögn er sagt að for­sendur fjár­lag­anna fyrir næsta ár brostnar ef ekk­ert liggur fyrir um aðra aðferð­ar­fræði gagn­vart ferða­mönnum og sótt­vörnum en þá sem sé í gildi þessa stund­ina.

Aukin fjárfesting og endalok Jöfnunarsjóðs

Einnig hvetur Við­skipta­ráð til auk­innar fjár­fest­ingar, meðal ann­ars með sam­vinnu­leiðum (e. Public-Private Partners­hip) og meiri fram­lögum til nýsköp­un­ar­mála. Samtökin kalla líka eftir skatta­lega hvata til nýsköp­unar, eins og end­ur­greiðslur frá hinu opin­bera vegna rann­sóknar og þró­unar, auk sér­stakra frum­kvöðla­sjóða.

Sjónum er einnig bent að sveit­ar­fé­lögum, en að mati Við­skipta­ráðs ættu stjórn­völd að ráð­ast í rót­tæka end­ur­skipu­lagn­ingu í fjár­stuðn­ingi til þeirra. Ráðið kallar eftir því að leggja Jöfn­un­ar­sjóð niður, þar sem smærri sveit­ar­fé­lög fái hærri fram­lög úr honum heldur en þau stærri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár