Segja forsendur fjárlaga að óbreyttu þegar brostnar vegna landamæraskimunar

Hags­muna­sam­tök aðila í ferða­þjón­ustu segja að ef núver­andi reglur um tvö­falda skimun á landa­mærum verði áfram í gildi muni fjöldi erlendra ferða­manna sem heim­sæki Ísland árið 2021 aldrei ná að verða 900 þús­und, líkt og for­sendur fjár­laga geri ráð fyrir.

Jóhannes Þór Skúlason er framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar og skrifar undir umsögn þeirra.
Jóhannes Þór Skúlason er fram­kvæmda­stjóri Samtaka ferða­þjón­ust­unnar og skrifar undir umsögn þeirra. Mynd: Arnar Þór Ingólfsson

„Ef núver­andi reglur verða áfram í gildi og ekk­ert liggur fyrir um nýja og fyr­ir­sjá­an­lega aðferða­fræði gagn­vart sótt­vörnum og ferða­mönnum munu for­sendur fjár­laga um tekju­öflun rík­is­ins og hag­vöxt á næsta ári verða brostnar áður en árið 2021 er gengið í garð, því að sala ferða til Íslands á næsta ári mun þá að stærstum hluta liggja niðri vegna óvissu um sótt­varna­reglur.“ Þetta kemur fram í umsögn Samtaka ferða­þjón­ust­unnar (SAF) um fjár­laga­frum­varp næsta árs sem skilað var inn til fjár­laga­nefndar í gær, en frestur til að skila slíkum inn rann út þá.

[links]Ein lyk­il­for­sendan í fjár­lögum næsta árs, eins og þau eru lögð fram í frum­varp­inu, er að 900 þús­und erlendir ferða­menn komi til lands­ins. Sá fjöldi á að tryggja öfl­uga við­spyrnu í tekjum þegar líður á árið og er grund­völlur þeirrar verð­mæta­sköp­unar sem frum­varpið byggir á.

SAF segir að sú verð­mæta­sköpun muni hins vegar ekki geta haf­ist ef núver­andi reglur um tvö­falda skimun á landa­mærum, sem hafa verið í gildi frá 19. ágúst, haldi sér. Fjöldin sem muni koma verði ein­fald­lega aldrei nálægt þessum 900 þús­und erlendu ferða­mönnum.

Samtökin kalla eftir því að settar verði „fyr­ir­sjá­an­legar og var­an­legar reglur um sótt­varnir á landa­mærum sem ferða­menn, ferða­skrif­stofur og flug­fé­lög geta treyst á og unnið með.“

Telja að aðgerðir hafi tekist misjafnlega

Í umsögn SAF er einnig óskað eftir því að stjórn­völd styðji betur við fyr­ir­tæki með beinum rekstr­ar­styrkjum og aðgerðum sem tak­marka eigi skulda­vanda sem safn­ast hafi upp hjá mörgum fyr­ir­tækjum í geir­anum.

Samtökin telja að þær aðgerðir sem þegar hefur verið gripið til frá því að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á hafi tek­ist mis­jafn­lega. Upp­sagn­ar­styrkir, greiðslu­skjól og smærri stuðn­ings­lán hafi reynst ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækjum vel en aðrar aðgerðir hafi virkað síðar. Þar nefna þau sér­stak­lega brú­ar­lánin svoköll­uðu, sem ein­ungis eitt fyr­ir­tæki hefur nýtt sér til þessa, og öðrum stuðn­ings­lánum. „Það er álit SAF að til að þessar tvær aðgerðir nái mark­miðum sínum miðað við núver­andi stöðu er nauð­syn­legt að lengja tíma­lengd rík­is­á­byrgðar á stærri stuðn­ings­lánum (40 m.kr.) í a.m.k. 36 mán­uði og tíma­lengd rík­is­á­byrgðar á við­bót­ar­lánum (brú­ar­lánum) í 6 ár.“

[adspot]SAF lýsir þó ánægju með aðgerðir rík­is­stjórn­ar­innar sem voru kynntar nýlega og er ætlað að styðja skulu við ein­yrkja og örfyr­ir­tæki með þrjá starfs­menn eða færri. Ljóst sé að fjöl­mörg smá fyr­ir­tæki í ferða­þjón­ustu um allt land muni geta nýtt aðgerð­irnar.

Þá leggja sam­tökin „afar mikla áherslu“ á að beinir rekstr­ar­styrkir til fyr­ir­tækja sem hafi orðið fyrir tekju­hruni vegna far­ald­urs­ins, sam­tals upp á sex millj­arða króna, komi til fram­kvæmda sem fyrst. Þeir styrkir voru kynntir í lok síð­asta mán­aðar sem hluti af pakka stjórn­valda til að koma í veg fyrir að Samtök atvinnu­lífs­ins létu á það reyna að segja upp Lífs­kjara­samn­ingnum.

Vilja losna við gistináttaskatt til frambúðar

SAF kallar líka eftir ýmis­konar við­bót­ar­að­gerðum stjórn­valda. Samtökin vilja til að mynda að tíma­bundið afnám gistin­átta­skatts, sem á að renna út í byrjun árs 2022 að óbreyttu, verði fram­lengt óend­an­lega. „SAF telja að engin rök mæli með end­ur­upp­töku gistin­átta­skatts í árs­byrjun 2022 og hvetja stjórn­völd ein­dregið til að leggja skatt­inn af til fram­búðar.“

Þá telja sam­tökin það aug­ljósa leið fyrir stjórn­völd til að aðstoðar fyr­ir­tæki sem orðið hafa fyrir tekju­hruni að fella tíma­bundið niður fast­eigna­skatt á þau. „Önnur væg­ari úrræði eru tæk þó þau séu ekki jafn áhrifa­rík en það er að fresta greiðslu þess­ara gjalda til lengri tíma. SAF hvetur ein­dregið til þess að Alþingi veiti sveit­ar­fé­lögum heim­ild til að fresta eða fella niður greiðslu þess­ara gjalda. Að öðrum kosti eykst hættan á því að mörg ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki sem þurfa að leiða við­spyrn­una verði hrakin í gjald­þrot vegna byrða sem sveit­ar­fé­lögin leggja á herðar þeirra.“

Vilja að vörugjöld á bílaleigubíla verði lækkuð

Með umsögn­inni fylgir einnig sér­stakt erindi til Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, þar sem farið er fram á lækkum vöru­gjalds á bíla­leigu­bílum á árunum 2021, 2022 og 2023.

Í til­lög­unni felst að SAF vilja að stjórn­völd lækki skráða losun bíla­leigu­bíla um 30 pró­sent en þó að hámarki þannig að „mis­munur á nýju vöru­gjaldi og þess upp­haf­lega verði ekki umfram 500.000 Til að koma í veg fyrir mis­notkun á nið­ur­fell­ingu er lagt til að lækkun vöru­gjalda verði aðeins heimil öku­tækja­leigum sem voru skráðar með leyfi hjá Sam­göngu­stofu 1.4.2020 og urðu þannig fyrir miklum nei­kvæðum áhrifum vegna Covid-19.“

Ástæður þess að þetta sé nauð­syn­leg aðgerð segja SAF meðal ann­ars vera þá að bíla­leigur hafi verið að selja nýrri bíla og hækka þannig kolefn­islos­un­ar­gildi sín, en nýrri bílar eru almennt umhverf­is­vænni og losa minna. Samkvæmt tölum SAF hefur skráðum bíla­leigu­bílum fækkað um 9.300, eða 37 pró­sent, á milli ára í júlí. Það telja sam­tökin að jafn­gildi um 465 töp­uðum störfum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár