Fjármagnstekjur ríkustu tíundarinnar voru 100 milljarðar í fyrra

Fjár­magnstekjur Íslend­inga voru tæp­lega 142 millj­arðar króna í fyrra. Skattur af þeim er umtals­vert lægri en af launa­tekjum. Rúmlega 70 pró­sent af öllum fjár­magnstekjum fóru til rík­ustu tíu pró­sents lands­manna.

Alls námu fjár­magnstekjur lands­manna 141,7 millj­örðum króna á síð­asta ári. Þær juk­ust um 3,9 millj­arða króna á milli ára eftir að hafa dreg­ist saman á árinu 2018 um 28,2 millj­arða króna.

Þær tæp­lega 23 þús­und fjöl­skyldur sem mynda saman rík­ustu tíund lands­ins afla þorra fjár­magnstekna, sem eru allar vaxta­tekjur auk sölu­hagn­að­ar, arðs og tekna af atvinnu­rekstri. Í fyrra tók hún til sín 99,8 millj­arða króna í fjár­magnstekjur eða um 70,5 pró­sent allra slíka tekna.

Þetta kemur fram í nýjum tölum Hag­stofu Íslands um eignir og skuldir lands­manna sem birtar voru í lið­inni viku.

Lands­menn eiga enn langt í land með að ná þeim met­hæðum í upp­gefnum fjár­magnstekjum sam­kvæmt skatt­fram­tölum sem voru við lýði fyrir banka­hrun. Árið 2006 var heild­ar­um­fang slíkra tekna 172 millj­arðar króna og árið 2007, sem enn er metár yfir upp­gefnar fjár­magnstekjur í Íslands­sög­unni, voru þær 262,7 millj­arðar króna. Það ár rataði um 82 pró­sent fjár­magnstekna til þeirra tíu pró­sent lands­manna sem höfðu hæstu tekj­urn­ar.

[adspot]Skattur á fjár­magnstekjur er umtals­vert lægri en á launa­tekj­ur. Stað­greiðsla skatta á launa­tekjur í fyrra var á á bil­inu 35,04 til 46,24 pró­sent að útsvari með­töldu en fjár­magnstekju­skattur var hækk­aður upp í 22 pró­sent í byrjun árs 2018.

Eigið fé í fyrsta sinn meira en fimm þúsund milljarðar

Kjarninn greindi frá því í vik­unni að eigið fé Íslend­inga, það sem stendur eftir þegar búið er að draga skuldir frá eignum, hafi hækkað um 433 millj­arða króna í fyrra. Það er tölu­vert minna en sú hækkun sem varð á árunum 2017 (760 millj­arðar króna) og 2018 (641 millj­arðar króna), en vert er að taka fram að á þeim árum varð mesta hækkun sem átt hefur sér stað á vexti á eigin fé frá því að Hagstofa Íslands hóf að halda utan um þær tölur.

Upp­gangur síð­ustu ára hefur skilað því að eigið fé lands­manna, eignir þeirra þegar búið er að draga skuldir frá, hefur farið úr því að vera 1.565 millj­arðar króna í lok árs 2010 í að vera 5.176 millj­arðar krókna um síð­ustu ára­mót. Það hefur aldrei verið meira og er nú í fyrsta sinn yfir fimm þús­und millj­arðar króna.

Mest fer til þeirra sem eiga mest

Á þessu tíma­bili, frá byrjun árs 2011 og út síð­asta ár, hafa orðið til 3.612 nýir millj­arðar króna í íslensku sam­fé­lagi. Þorri þeirrar upp­hæðar, 1.577 millj­arðar króna, hafa farið til þeirra tíu pró­sent lands­manna sem eiga mest, alls 22.697 fjöl­skyldna, eða tæp­lega 44 pró­sent.

[links]Í fyrra jókst auður þessa hóps um 198 millj­arða króna á á síð­ustu þremur árum hefur hann vaxið um 865 millj­arða króna. Á sama tíma hefur heild­ar­auður lands­manna auk­ist um 1.833 millj­arða króna. Því hefur um 47 pró­sent af því nýja eigin fé sem orðið hefur til á Íslandi á árunum 2017, 2018 og 2019 farið til þeirrar tíundar sem átti mest fyrir.

Sá hópur átti rúm­lega 56 pró­sent af öllu eigin fé lands­manna um síð­ustu ára­mót, eða alls 2.927 millj­arða króna. Þar á meðal er tæp­lega helm­ingur alls eigin fjár í fast­eignum sem til er í land­inu og rúm­lega helm­ingur allra inn­lána.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár