Að minnsta kosti 19 ný smit í gær

Thor Aspelund pró­fessor í líf­töl­fræði segir að minnsta kosti 19 manns hafa greinst með COVID-19 hér á landi í gær.

Thor Aspelund (t.v.) ásamt Þórólfi Guðnasyni sóttvarnalækni á upplýsingafundi almannavarna í vor.
Thor Aspelund (t.v.) ásamt Þórólfi Guðn­a­syni sótt­varna­lækni á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í vor. Mynd: EPA

Að minnsta kosti 19 ný kór­ónu­veirusmit greindust hér á landi í gær, en þetta kom fram í máli Thors Aspelunds, pró­fess­ors í líf­töl­fræði við Háskóla Íslands, í Morg­un­út­varp­inu á Rás 2 í morgun.

Hann kom þar til að ræða stöðu mála í COVID-19 far­aldr­inum, sem virð­ist nú í vexti, en 13 ný smit greindust í fyrra­dag. Hann sagði smitin nítján vera meira en hann bjóst við.[links]

„Ég gat fengið fréttir af því að það væru komin 19 smit í gær og það er meira en í fyrra­dag. Ef far­ald­ur­inn væri í eðli­legum gangi þá hefði ég búist við minna, ég hefði getað verið rólegur með 8-9 [smit], en 19, nei, þá er eitt­hvað á seyði,“ sagði Thor við þátt­ar­stjórn­endur.

Hann sagði að smitin væru af þeim sama stofni veirunnar og hefur verið að smit­ast á milli fólks hér á landi frá því í lok júlí. „Það er ekki kom­inn nýr stofn inn til lands­ins að kveikja eitt­hvað annað bál,“ sagði Thor.

[adspot]

Thor sagði að þessi fjöldi smita pass­aði illa við töl­fræði­líkanið um þróun far­ald­urs­ins sem hann og fleiri hafa þróað. Það væri ljóst að við hefðum beygt af leið.

„Þessi fjöldi smita núna er óvenju­lega mik­ill miðað við fjölda smita í sam­fé­lag­inu,“ sagði Thor.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár