Þrettán ný smit og einungis einn í sóttkví

Þrettán ný kór­ónu­veirusmit greindust hér á landi í gær, sem er mesti fjöldi smita sem hefur greinst inn­an­lands frá 6. ágúst.

Frá skimun á Akranesi fyrr á árinu.
Frá skimun á Akranesi fyrr á árinu. Mynd: Lögreglan

Þrettán ný kór­ónu­veirusmit greindust hér á landi í gær, sem er mesti fjöldi smita sem hefur greinst inn­an­lands síðan 6. ágúst. Tólf manns greindust eftir að hafa leitað í skimun með ein­kenni og einn ein­stak­lingur sem fór í skimun hjá Íslenskri erfða­grein­ingu.

Einungis einn af þeim þrettán sem greindust voru í sótt­kví. Alls voru 582 ein­kenna­sýni tekin og Íslensk erfða­grein­ing skimaði 135 manns til við­bótar.

Alls eru nú 75 manns í ein­angrun á Íslandi vegna kór­ónu­veirusmits og 437 manns í sótt­kví. Til við­bótar eru 2.118 manns í skimun­ar­sótt­kví eftir að hafa komið hingað til lands und­an­farna daga, sam­kvæmt því sem fram kemur á vefnum covid.is. Einn ein­stak­lingur er á spít­ala með COVID-19.

Sem áður segir voru 12 af þeim 13 sem greindust með COVID-19 ekki í sótt­kví og því við­búið að rakn­ing­arteymi almanna­varna hafi nóg að gera í dag.

Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir segir í sam­tali við mbl.is að við fyrstu sýn virð­ist sem ekki sé um hóp­sýk­ingu að ræða, smitin virð­ist ekki öll tengd. Til stendur að skima fyrir veirunni innan veggja Háskóla Íslands, en þar hafa nokkur smit greinst að und­an­förnu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár