Þórólfur áhyggjufullur og Kári segir líkur á nýrri bylgju innan skamms

Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar, segir smitin þrettán sem greindust inn­an­lands í gær vera dreifð um sam­fé­lagið. Íslend­ingar verði að búa sig undir nýja bylgju eftir 1-2 vikur, segir Kári Stef­áns­son.

Einn er á sjúkra­húsi og 75 í ein­angrun hér á landi með COVID-19. Í gær greindust þrettán ný smit inn­an­lands og aðeins einn úr þeim hópi var í sótt­kví. Þetta veldur Þórólfi Guðn­a­syni sótt­varna­lækni áhyggjum. Fjöldi geti bent til þess að dreif­ing veirunnar sé meiri en talið var.

Í við­tali við RÚV segir hann tíð­indin vís­bend­ingu um að lands­menn séu ekki að gæta nógu vel að sér þegar komi að hinum marg­um­töl­uðu ein­stak­lings­bundnu sótt­vörnum. „Þessi veira er fljót að koma í bakið á okkur ef við gætum ekki að okkur,“ sagði hann við RÚV.

[adspot]

Nokkrir þeirra sem greinst hafa síð­ustu daga tengj­ast Háskóla Íslands og hefur Íslensk erfða­grein­ing boð­ist til að skima fyrir veirunni meðal starfs­manna og nem­enda skól­ans. Fyr­ir­tækið hefur boð­ist til að gera slíkt hið sama í Háskól­anum í Reykja­vík. Með því móti fáist betri mynd á raun­veru­lega útbreiðslu veirunnar, að sögn Þórólfs.

[links]Hinir nýgreindu tengj­ast ekki allir með aug­ljósum hætti og því segir Þórólfur erfitt að segja hvort að um nýja hóp­sýk­ingu sé að ræða. „Þetta gæti verið vís­bend­ing um að eitt­hvað meira geti verið í aðsigi,“ sagði hann við RÚV.

Kári Stef­áns­son, for­stjóri Íslenskrar erfða­grein­ingar tal­aði á sömu nótum í við­tali við Vísi í dag og sagði að Íslend­ingar ættu að búa sig undir nýja bylgju far­ald­urs­ins hér á landi eftir 1-2 vikur. Sagði hann rann­sókn á sýnum úr þeim sem greindust í gær gæfu til kynna að fólkið sé með „mikið af veiru í sér,“ eins og hann orðar það við Vísi.

Hann vill ekki ganga svo langt að segja að líkur á nýrri bylgju á næstu dögum séu yfir­þyrm­andi en nægi­legar til þess að við þurfum að vera undir það búin.

Í dag var til­kynnt að tveir starfs­menn íbúða­kjarna fyrir fatlað fólk í Reykja­vík hafi greinst með COVID-19, ann­ars vegar í Graf­ar­vogi og hins vegar í Breið­holti. Báðir starfa þeir náið með ein­stak­lingum sem þurfa sól­ar­hrings­þjón­ustu. Íbúar kjarn­anna tveggja búa allir í eigin íbúðum og fá því alla nauð­syn­lega þjón­ustu inn á sín heim­ili.

Í íbúða­kjarn­anum í Graf­ar­vogi þurfa sex starfs­menn að fara í sótt­kví og um 20 í Breið­holti. Unnið er að því að manna vakt­irnar með öðru starfs­fólki vel­ferð­ar­sviðs. Báðir íbú­arnir sem fengu þjón­ustu við­kom­andi starfs­manna eru komnir í sótt­kví. Þeir fara í sýna­töku í dag og fylgst verður náið með líðan þeirra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár